Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.2016, Blaðsíða 18

Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.2016, Blaðsíða 18
við okkur það stundum að leik að slaka bara toghlerunum út nokkra faðma með grandara á milli en trollið skilið eftir á dekki svo engin von var til þess að „klipping“ tækist. Svona rúntuðu þeir eins og rófulausir rakkar, með klippurnar úti, í kringum okkur á mikilli ferð þannig að boðaföllin stóðu í allar áttir, tímum saman. Þetta var vægast sagt vafasöm sjómennska en stjórnhæfni frei- gátanna bjargaði því að ekki varð slys. Einu sinni sem oftar vorum við orðnir leiðir á þessum leik og höfðum skemmt okkur nægilega við að horfa á aðfarirnar, hífðum hlerana upp í gálga og sigldum burtu. Að sjálfsögðu fylgdi ekkert troll með því það lá allan tímann á dekkinu, en fulltrúar Halla kóngs héldu í fávísi sinni að þeir hefðu klippt aftan úr okkur og brutust út gífurleg fagnaðarlæti um borð í freigátunni. Daginn eftir komu fréttir í norsku blöðunum um afrekið með stríðsfyrirsögnum á borð við; „Norska strandgæslan klippti trollið aftan úr Hágangi II, einum af harðsvíruðustu íslensku ræningjunum á Svalbarðasvæð- inu“. Með fylgdu viðtöl við æðstu yfir- menn strandgæslunnar þar sem þeir hreyktu sér af „hetjudáðinni“. En þar kom að piltar hans hátignar, Haraldar Ólafssonar Noregskonungs, átt- uðu sig á því að aðfarirnar voru ekki að virka sem skildi eða svo nákvæmara sé að orði komist þá voru þær fullkomlega gagnslausar, nema okkur til skemmtunar. En þá tók ekki betra við því þeir smíðuðu mini- útgáfu af klippunum og hengdu aftan í léttbáta freigátanna og sigldu þeim á fullri ferð með draslið hangandi aftur úr sér. Sem betur fer fyrir þá tókst sú aðferð ekkert betur en hin fyrri því það hefði getað orðið hættulegt fyrir sjóliðana ef þeir hefðu flækt vasa- klippurnar í trollinu eða togvír- unum. Eitt sinn þegar við vorum að hífa í Leirdýpi, austur úr Bjarnar- ey og um 30 sjómílum norðan við norsku landhelgislínuna voru piltar konungs á léttbátnum að sniglast við rassgatið á okkur en við höfðum áhyggjur af því að þeir færu sér að voða. Ég kallaði því í freigátuna á neyðarrásinni CH-16 og krafðist þess að þeir kölluðu bátinn til baka og ég gæti ekki tekið ábyrgð á öryggi sjólið- anna, eins og þeir höguðu sér. Við því varð ekki orðið og þeir héldu áfram sinni iðju með klippu-líkið hangandi aftan úr sér. Okkur leist ekkert á blikuna og stoppuðum hífinguna um stund en þegar við héldum áfram lenti klippan á togvírnum bakborðsmegin og kom upp í gegnum blökkina en slitn- aði frá léttbátnum. Ekki dugði það til að þeir hættu þessum heimskupörum og eft- ir að hlerarnir komu upp og við vorum að hífa trollið inn voru þeir að reyna að festa eitthvað drasl sem við vissum ekki hvað var en líklega annað klippu-líki í trollpokann sem flaut fullur af fiski aftan við skipið. Ég kallaði niður á dekk og sagði mínum mönnum að taka spúlinn og sprauta á þá af fullum krafti til að koma þeim í burtu en það dugði ekki alveg þó þeir fengju einhverjar gusur á sig. Á meðan á þessu öllu stóð var stýri- maðurinn Anton Ingvason frá Dalvík á dekki og stjórnaði aðgerðum röggsam- lega. Anton er maður mikill á velli og hraustari en andskotinn og því hlýtur að hafa farið um dátana þegar hann birtist skyndilega uppi á afturgálga með hagla- byssu og stóð þar eins og Rambó sjálfur en í miklu stærri og vígalegri útgáfu. En þeir höfðu samt ekki vit á að vera nógu hræddir til að hörfa og því greip Anton til þess ráðs að skjóta einu skoti upp í loftið, þeim til viðvörunar. Þá en ekki fyrr kviknaði ljóstýra í kolli dátanna og þeir áttuðu sig á því að líklega væri ekki hollt fyrir líf og limi að abbast meira upp á Tona á Hrísum og hörfuðu í snarhasti, með eldglær- ingarnar aftan úr rassgatinu, heim til mömmu þ.e. freigátunn- ar Kv. Senja, sem beið álengdar. Áföll og lífsreynsla byrjuðu sem sé ekki að setja mark sitt að ráði á dátana, fyrir en þeir kynntust Tona en fram að þessu litu þeir út fyrir að vera nýhættir að nota bleyjur en hafa sennilega byrjað á því aftur þegar þeir komu til baka í Senju, í tilefni dagsins. Nokkru síðar kallaði skipherr- ann á Senju í okkur í talstöðinni, ábúðarfullur mjög og bar sig illa yfir meðferðinni á dátunum sem hann sagði hafa verið í bráðri lífs- hættu og að skotið hafi verið á þá. Ég svaraði og sagði það rétt að þeir hefðu verið í lífsháska en það væri eingöngu vegna þess að hann sjálfur hefði sent þá í þessa glórulausu heimskuför og stýri- maðurinn hefði verið á fugla- veiðum en ekki skotið á dát- ana. Ég sagði honum jafnframt að við værum vanir því að alls konar „fuglar“ og illþýði væri á sveimi í kringum skipið, sem styggja þyrfti í burtu, en hann Eiríkur Sigurðsson. 18 – Sjómannablaðið Víkingur

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.