Sjómannablaðið Víkingur

Ukioqatigiit

Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.2016, Qupperneq 42

Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.2016, Qupperneq 42
selskabet Nökkvi í Reykjavík en aðstandendur þess voru Thor Jensen, Jón Árnason frá Heimaskaga og Sigurður Magnússon. Jón var skipstjóri á Geraldine og allir skipverjar íslenskir. Skip- ið var þannig fyrsta gufuskipið í íslenskri eigu með alíslenska áhöfn. Geraldine hóf póstferðir á milli Reykjavíkur, Akraness og Borgarness skömmu eftir komuna til Íslands og hélt þeim áfram fram í maí 1908. Þá hóf skipið ferðir á milli Reykjavíkur og hafna við Breiðafjörð og fór einnig stöku ferðir vestur á firði. En Geraldine var ekki lengi í þjónustu Íslendinga. Í lok nóvember 1908 var skipið á leið frá Stykkishólmi til Reykjavík- ur og lenti í foráttuveðri. Þá vildi svo illa til að stýrið brotnaði og hvarf í hafið. Skipið rak upp á sker en losnaði síðan af því aftur og sökk. Tíu manns voru um borð, sjö skipverjar og þrír farþegar, og fórust þrír skipverjar. Reykjavíkurblaðið Þjóðólfur skýrði þannig frá þessum atburði hinn 4. desember 1908: „Á laugardaginn var, 28. f.m., sökk Breiðafjarðarbáturinn „Gerald- ine“ skammt frá landi milli Lóndranga og Dritvíkur undir Jökli, á leið til Reykjavíkur. Hafði lagt af stað frá Stykkishólmi á fimmtu- daginn, og var kominn móts við Lóndranga, þegar stýrið losnaði, og hrakti þá skipið alla föstudagsnóttina í landnorðan-stórviðri og kafaldshríð, þekktu skipverjar daginn eptir, að þeir voru skammt fyrir norðan Dritvík. Var þá reynt að varpa akkerum, en akkeris- festin slitnaði og rak því aptur til hafs. Kom þá brátt í ljós, að skipið var orðið mjög lekt, og stóðu skipverjar í austri allan síðari hluta föstudagsins, og nóttina eptir og fram undir nótt á laugardag. Um það leyti kenndi skipið grunns skammt frá landi milli Lóndranga og Dritvíkur og var þar með eins á land að líta og brimrót mikið. Þá veit skipstjóri ekki fyrri til en stýrimaður og 3 skipverjar aðrir eru komnir í skipsbátinn, höfðu hlaupið í hann af einhverju fáti; einn þeirra náði í kaðal er kastað var til hans frá skipinu, og var dreginn upp, varð það honum til lífs því að ósenni- legt er, að hinir hafi bjargast í land, þótt tveir þeirra væru syndir, en að vísu er ekki fullfrétt um það enn. Rétt á eptir losnaði skipið út úr brimrótinu, og var þá lagst við akkeri. En þá var svo mikill sjór kominn í skipið, að skipverjar höfðu ekki við að ausa. Í þeim svifum kom enskt botn- vörpuskip, Fraser frá Hull, norðan fyrir nesið frá Breiðafirði, og stefndi beint á „Geraldine“, hafði séð neyðarvita, er kyntur hafði verið í siglutoppnum frá því stýrið losnaði. Var þá bjargað skipstjór- anum á „Geraldine“ (Jóni Árnasyni frá Heimaskaga á Akranesi) 3 hásetum og 3 farþegum, öllum slyppum og allslausum að öðru en því er þeir stóðu í. Að 10 mínútum liðnum sökk „Geraldine“, en botnvörpuskipið hélt til Reykjavíkur með skipbrotsmennina...“ Skömmu áður en Geraldine mætti örlögum sínum við Snæfellsnes kom til landsins nýr flóabátur, mun stærri og betur búinn. Hann hét Ingólfur (vafa- lítið eftir Ingólfi Arnarsyni) og var smíðaður í Björgvin í Noregi fyrir ný- stofnað „Gufuskipafélag Faxaflóa“ í Reykjavík. Ingólfur var fyrsta vélknúna farþega- og flutningaskipið sem smíðað var af nýju fyrir Íslendinga. Hann var 126 brúttótonn að stærð og gat flutt SAGA FLUGSINS holabok.is / holar@holabok.is Saga flugsins frá upp- hafi flugtilrauna til okkar dags - með ágripi af flugsögu Íslands. Snilldarverk af hálfu Örnólfs Thorlaciusar, þess mikla fræðimanns á mörgum sviðum. 42 – Sjómannablaðið Víkingur Reykjavíkurhöfn.

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.