Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.2016, Síða 24

Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.2016, Síða 24
24 – Sjómannablaðið Víkingur U m vorið 1961 í maí er ég var sextán ára og nýkominn af héraðsskólan- um á Núpi í Dýrafirði, þar sem ég varð gagnfræðingur, gerði faðir minn boð fyrir mig og ræddi við mig um hvað ég ætlaði að hafa fyrir stafni um sumar- ið. Sumarið áður hafði ég verið í vega- vinnu og líkað vel, en ekki þénað sem skildi að dómi föður míns og þar að auki skuldaði ég einhverja peninga fyrir skólagönguna á Núpi fyrir síðasta veturinn þar. Hann spurði því hvort ég vildi ekki vinna við frystihús staðarins, en ég taldi það víðs fjarri og nefndi að ég vildi fara til sjós. Honum fannst það ekki ráðlegt og sagði að ég væri ekki vel til þess fall- inn að stunda sjómennsku, þetta væri ekkert spaug, miklar vökur og stöður. Ég sat við minn keip, til sjós vildi ég fara. Karl faðir minn horfði á mig lengi, og sagði svo: „Þú skalt þá standa þig, ég reyni svo að útvega þér pláss á einhverj- um „skakbátnum.“ Ég var ekki hrifinn Móður minni var ekki rótt er hún heyrði þetta, hún hafði aldrei hugsað sér að ör- verpið legði sér sjómennsku fyrir hendur, en úr því sem komið var var ekkert við því að gera, en vonandi fengi sonurinn nóg eftir nokkrar sjóferðir. Stuttu seinna tilkynnti faðir minn mér að hann væri búinn að útvega mér pláss hjá Magnúsi Jónssyni sem kallaður var manna á meðal „Mangi ýsa.“ Með honum á bátnum var Jón Júlí Einarsson, kallað- ur Jónsi Júl. Báturinn sem þeir félagar, Magnús og Jón, réru á hét Hinrik og var með skráningarnúmerið ÍS 278, smíðað- ur um aldamótin 1900 (að Görðum í Ön- undarfirði að ég held) og mikið endur- nýjaður síðan. (Hinrik var dæmdur ónýtur 1964). Hinrik var í eigu Magnúsar og Hjartar Hjálmarssona hreppstjórans og skóla- stjórans á staðnum, öðlingsmaður og mig grunar að Hjörtur hafi haft þar hönd í bagga um að ég fengi plássið á Hinriki. Hann hafði ávallt sagt við móður mína að strákurinn yrði sjómaður, þvert á allt sem aðrir héldu. Ekki var ég hrifinn að fara til þeirra félaga, Manga og Jónsa, mér fannst þeir of gamlir. Magnús hátt á sextugsaldri og Jónsi yfir sextugt og báðir afturhaldssam- ir og fornir í hugsun og ekkert í takt við tímann. Þetta fannst mér á þessum tíma, en það breyttist er á sumarið leið. Ég vildi fara á bát hjá yngri mönnum, en úr því sem komið var var ekkert við þessu að gera, ég vildi ekki gera föður mínum það á móti skapi að svo stöddu. Ég var síðan beðinn að mæta um borð í Hinrik sem var bundinn við bryggju og þar voru þeir félagar Magnús og Jónsi að dytta að bátnum. Magnús sem var skipstjóri lagði mér lífsreglurnar og kallaði mig ávallt „drenginn“ eða „strákinn.“ Hann fór vandlega yfir allt sem laut að handfæra- veiðum á þessum tíma, en þá var „skak- rúllan“ nýlega komin á bátana almennt. Og eins hvað ég þyrfti að hafa með af sjó- klæðnaði og annað sem tilheyrði dag- róðrarbáti. Og eitt er það drengur minn sagði hann að lokum og hvessti á mig augun, „ekkert kæruleysi eða leikaraskap nú tekur alvaran við.“ „Og svo er það annað,“ sagði hann ,,það sem þú fiskar, þá fiska merkir þú þér sérstaklega. Þú verður ekki með okk- ur Jóni um sameiginlegan fisk eða hlut, því ég býst ekki við að þú fiskir jafnmik- ið og við. Einn fjórði af þínum afla geng- ur svo til bátsins hitt átt þú sjálfur.“ Þessu jánkaði ég. „Og svo er það eitt,“ sagði Magnús, „þegar farið er í róður, þá vekjum við þig með því að banka í húsgaflinn heima hjá þér og ef þú drattast ekki á fætur fljótlega og kemur þér niður í bát, þá þarft þú ekki hafa áhyggur meir af hásetaplássi hjá mér.“ Ég harkaði af mér Þótt ég bæri lotningu fyrir þeim báðum og þekkti þá vel, af stráki að vera, vissi ég ýmislegt um þá sem var bæði satt og Á skaki með Manga ýsu og Jónsa Júlí Guðmundur Kr. Kristjánsson Guðmundur þvær Hinrik eftir „löndun“ og góða veiði. Myndin er tekin í júlí 1961.

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.