Sjómannablaðið Víkingur

Årgang

Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.2016, Side 48

Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.2016, Side 48
48 – Sjómannablaðið Víkingur James A. hafi öflugri farartæki undir sinni stjórn enda er hans skip hannað af hernaðarsérfræðingum meðan James T. er stjórnandi farartækis hannað af ein- staklingum með öflugt ímyndunarafl. Skip James A. er engin smásmíði en það er 185 metra langt og 25 metra breitt. Ekki tókst þó að komast að djúpristunni en þrjú þilför eru að öllu leyti undir sjólínu. Þá er uppgefinn ganghraði 30 hnútar en eflaust luma þeir á auknu vél- arafli sem ekki er gefið upp. Skipið er nefnt í höfuð Elmo „Bud“ Zumwalt, Jr. aðmíráli en hann tók þátt í þremur styrj- öldum, seinni heimstyrjöldinni, Kóreu- og Víetnam stríðum. Elsti bjór í heimi? Vísindamenn í Tasmaníu halda því fram að þeir hafi bruggað elsta bjór í heimi eftir að þeir fundu ger í flaki skips frá 18 öld. Vísindamennirnir fundu þessa flösku með lifandi gerli í flaki seglskips- ins Sydney Cove en hún sökk 1797 und- an Preservationeyju í Tasmaníu. Gerið notuðu þeir til bruggunar á bjór og not- uðu þeir uppskriftir og aðferðir frá þess- um tíma. Hafa þeir gefið bjórnum nafnið Preservation Ale. Bjórinn mun vera ljós og með fersku bragði sem ekki hefur verið sopið á í 220 ár. Þá var einnig bakað súrdeigsbrauð þar sem sama ger var notað. Verið er að skoða hvort unnt sé að brugga meiri bjór úr gerinu svo unnt sé að gefa heimsbyggðinni mögu- leika á að smakka þennan einstaka bjór. Utan úr heimi USS ZUMWALT við bryggju. GAMLA MYNDIN Fatan enn í góðu gildi! Hafliði Óskarsson sendi Víkingnum þessa mynd og skrifar með henni eftir- farandi texta: Árið er 1946 og skammt liðið frá styrjaldarlokum. Íslenski togaraflotinn sem beitt hafði verið linnulítið á árunum á undan, styrjald- arárin 1939-45, er tekinn að eldast. Kominn er tími á endurnýjun skipanna sem smíðuð höfðu verið á árunum 1920-30. Allt skip með mikla og langa sögu þar sem sum hver höfðu meira að segja staðið af sér Halaveðrið mikla á sínum tíma í febrúar árið 1925. En það eru nýir tímar framundan. Íslensk stjórnvöld höfðu þegar hér er komið áður gengið til samninga við bresk stjórnvöld um smíði 32ja togara, sem ýmist skyldu eim eða díselknúnir. Allur aðbúnaður hinna nýju skipa yrði allur betri en í gömlu skipunum, þar með talið öll hreinlætisaðstaða. Fatan góða á Karlsefni RE 24 árið 1946. Skipverjar á Reykjavíkurtogaranum Karlsefni RE 24, undir stjórn Halldórs Ingimarssonar skipstjóra, sigldu án afláts til Englands á árinu 1946. Alls 11 söluferðir. Áhöfnin um borð, eins og aðrar togaraáhafnir þess tíma, héldu eingöngu til í afturskipi þegar siglt var landa á milli því enn stafaði ógn af tundurduflum sem víða voru á reki í úthöfunum og með ströndum fram þetta skömmu eftir stríðslokin. Karlarnir á „gamla“ Karlsefni höfðu í nægu að snúast á siglingunni og mikið var unnið að viðhaldi veiðar- færa. Vírasplæsingar ýmis konar voru þar snar þáttur í vinnu dagvaktarmanna. Að lokinni dekkvakt, þegar hægt var að snúa sér að einkamálum hvers og eins, var fátt um fínheit er laut að aðstöðu hvers konar um borð í gamla skipinu. Fatan góða hélt því mikilvægi sínu uns nýr togari, Karlsefni RE 24 – og um leið nítj- ándi nýsköpunartogarinn – leysti forvera sinn af hólmi í byrjun árs 1948. Skipstjóri var líkt og á gamla Karlsefni, Halldór Ingimarsson. Mynd: Jens Hinriksson

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.