Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.2016, Side 46
Æfingasvæði skilgreint
Norska siglingamálastofnunin og Kyst-
verket hafa undirritað samkomulag um
að opna æfingasvæði fyrir mannlaus skip
í Þrándheimsfirði. Fram kom í yfirlýs-
ingu siglingamálastjóra, Olav Akselsen,
að ekki væri vitað hversu mikla út-
breiðslu sjálfvirkni muni fá í siglingum
framtíðarinnar en þeir litu svo á að mik-
ilvægt væri að taka þátt í þróuninni.
Þrándheimsfjörður verður heimsins
fyrsta prófunarsvæði sjálfvirkra skipa.
Áður höfðu einungis verið til svæði til
æfinga á sjálfvirkum bifreiðum. Olav
sagði að mikið væri að gerast í þróun
skipa sem spennandi væri að fylgjast
með hvort heldur væri á sviði sjálfvirkni
eða að gera skipin umhverfisvænni. Með
því að kalla eftir samstarfi við atvinnulíf-
ið gætu þeir verið í forsvari við hönnun
á nýju regluverki sem tæki tillit til nýrra
tæknilausna.
Smyglarar á ferð
Ítalska lögreglan upplýsti nýlega að þeim
hefði tekist að koma í veg fyrir umfangs-
mikið smygl þar sem gámaskipið Rio De
Janeiro og níu skipverjar þess komu við
sögu. Stórum farmi af kókaíni átti að
lauma úr skipinu einhversstaðar á leið
skipsins frá Spáni til Gioia Tauro á Ítalíu.
Ítalska lögreglan og strandgæslan byrj-
uðu eftirlit með ferðum skipsins þann 18
október sl. en fundu að lokum allan
farminn í sjó um 17 sjómílur undan
Gioia Tauro. Voru eiturlyfin pökkuð í 17
poka sem höfðu verið bundnir við bauj-
ur sem varpað hafði verið fyrir borð.
Glæpagengi veiddu síðan farminn upp
sem reyndist í eigu hinnar illræmdu
mafíu Ndrangheta. Samtals fundust 385
kíló í pokunum. Þegar skipið kom til
hafnar í Gioia Tauro var leitað á öllum
skipverjunum 24 ásamt klefum þeirra.
Í kjölfarið voru 9 skipverjar, ættaðir frá
Kiribati, handteknir og í kjölfarið fundist
sönnunargögn sem sönnuðu sekt þeirra í
þessu máli.
Yngst allra
Staða í rekstri gámaskipa er ekki sú
glæsilegasta um þessar mundir. Stöðugt
fleiri skip fara í brotajárn og enn er verið
að smíða risagámaskip. Nýtt met var þó
nýlega slegið þegar Diana Containerships
Inc staðfestu að þeir hefðu selt skip sitt
Angeles til niðurrifs. Það þætti líklegast
ekki fréttnæmt nema fyrir það eitt að
þetta er yngsta gámaskip sem nokkru
sinni hefur verið selt til niðurrifs aðeins
tíu ára gamalt. Brotajárnsverð skipsins
hljóðaði upp á tæpar 6,7 milljónir
dollara eða um 750 milljónir króna.
Þetta 5.500 TEU‘s gámaskip hafði verið
afhent í desember 2006 en það var eitt
13 skipa útgerðarinnar. Ákvörðun um að
selja svo ungt gámaskip til niðurrifs sýn-
ir svo um munar að stöðugt yngri gáma-
skip hafa verið seld til niðurrifs í þeim
tilgangi að draga úr offramboði á þessari
skipagerð í þeim tilgangi að fá verðin
upp á nýjan leik.
Nýjar hugmyndir
Á sama tíma og sífellt yngri gámaskip
lenda í pottinum eru enn uppi áform um
að smíða stærri gámaskip en nokkru
sinni fyrr. Maritime Executive í Fort
Lauderdale hefur bent á að smíði gáma-
skipa sem taka allt að 26.000 TEU‘s sé
möguleg enda myndu slík skip henta til
siglinga milli heimsálfa. Það flutnings-
magn sem er að fara milli heimsálfa er í
því magni að það hagræði væri af að hafa
risaskip milli lykilhafna og síðan sjái
minni skip um að fara með farma á aðrar
hafnir. Það muni aðeins verða fáar hafnir
sem munu hafa getu og aðstöðu til að
taka á móti slíkum risum sem og að nýi
Panamaskurður geti ekki tekið svo stór
skip í gegn. Það verður fróðlegt að sjá
hvaða útgerð verði fyrst til að ná sér í
samning um smíði á slíku risaskipi.
Stórslys
Í byrjun nóvember varð sprenging um
borð í FPSO birgðatankskipinu Aces,
sem er tæplega 90 þúsund tonn að
stærð, þar sem verið var að rífa skipið í
niðurrifsstöð á Gadani ströndinni í
Pakistan. Þetta er alvarlegasta slys sem
orðið hefur í heiminum við niðurrif á
skipi en tæplega 30 fórust í sprenging-
-unni en allt að 50 manns slösuðust. Þá
er yfir 50 manns saknað. Í kjölfarið
bönnuðu yfirvöld alla starfsemi hjá nið-
-urrifsstöðinni. Slys í niðurrifsstöðum í
Pakistan hafa verið tíð og þar lætur fjöldi
manna lífið árlega eða slasast alvarlega.
Þessi staðreynd hefur valdið stjórnvöld-
um miklum áhyggjum og má telja víst að
í kjölfar þessa atviks muni reglur við
skipaniðurrif verða hertar verulega. Talið
er að ástæðuna megi rekja til að í skip-
inu hafi verið leyfar af farmi eða gasi.
Ríkisstyrkir
Stjórnvöld í Suður-Kóreu hafa áætlanir
um að eyða sem nemur þúsund milljörð-
um króna (11 trilljón KRW) til fjármögn-
unar á smíði 250 skipa fram til ársins
2020 til að halda skipasmíðastöðvum þar
í landi gangandi en nýsmíðasamningar
drógust saman um 87% fyrstu níu mán-
uði þessa árs. Þá ætla stjórnvöld að
styrkja þarlendar útgerðir um 700 millj-
arða til að gera þeim kleift að kaupa
þessi skip. Helmingur þessara skipa
verða minni skip og fiskiskip en hinn
helmingurinn verða skip smíðuð fyrir
ríkið s.s. varð- og herskip. Mörgum þyk-
ir björgunaráætlun stjórnvalda gangi allt
Utan úr heimi
Hilmar Snorrason skipstjóri
46 – Sjómannablaðið Víkingur
Yngsta gámaskip sem rifið hefur verið til þessa.