Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.2016, Blaðsíða 34
34 – Sjómannablaðið Víkingur
Í
fyrra voru veður válynd á þessum tíma. Í ár er
útlit fyrir að hitamet falli og landið að heita má
snjólaust. Það var því með glöðu geði og stað-
föstum vilja að dómnefnd Ljósmyndakeppni sjó-
manna settist að sínu erfiða verkefni: að skera úr
um hvaða fimmtán myndir senda skal fyrir Íslands
hönd í Ljósmyndakeppni sjómanna á Norðurlönd-
um sem fram fer í hinni finnsku borg, Turku,
snemma á næsta ári.
Síðast en ekki síst varð dómnefndin að velja þær
þrjár myndir sem henni þóttu bestar. Sem var ekki
auðvelt verk.
Alls bárust 140 ljósmyndir í keppnina frá þrettán
ljósmyndurum.
Skemmst er frá því að segja að Hlynur Ágústs-
son, háseti á Brynjólfi VE, hreppti 1. og 2. sætið en í
því þriðja er Haraldur H. Hjálmarsson, háseti á
Áskeli EA.
Við brimsorfna kletta, bárurnar skvetta, nefnir Hlynur Ágústsson þessa mynd sína sem hreppti fyrsta sætið.
Ljósmyndakeppni
sjómanna 2016
Dómnefndin; Pálmi Guðmundsson, Árni Bjarnason, Jón Hjaltason, Jón Svavarsson – og Hilmar
Snorrason, starfsmaður nefndarinnar og prímus mótor keppninnar.
Myndina tók Sigrún Arna Aradóttir.
❶