Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.2016, Blaðsíða 28

Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.2016, Blaðsíða 28
28 – Sjómannablaðið Víkingur Ekki gefa heila máltíð Eitt af því sem ég gerði mjög oft var að gefa bragðprufur á matarsýningum sem hinir ýmsu dreifiaðilar stóðu fyrir. Á þessum sýningum var hinum ýmsu fram- leiðendum boðið að borga fyrir eða kaupa sér sýningarbás. Þá kom brókerinn á svæðinu með öll áhöld sem þurfti að nota, svo sem eldunarhellur, ofn, djúp- steikingapott, hitalampa, skurðarbretti, bæklinga, plaköt, sem sagt allt sem þurfti svo gefa mætti bragðprufur á básnum. Oftast kom sölumaður okkar á svæðinu, ásamt sölumanni frá Brókernum, og stilltu öllu upp. Brókerinn kom með fiskinn sem hann vildi að við sýndum. Ég eldaði og síðan lögðumst við á eitt um að fá gestina til að smakka vöruna og útskýrðum jafnframt hver hún var um leið og við dreifðum bæklingum og verðlistum. Ótrúlega oft gretti fólk sig þegar það gekk framhjá básnum okkar og þegar ég bauð því að smakka fitjaði það enn frekar upp á trýnið og sagðist ekki borða fisk ótilneytt, hann væri vondur. Auðvitað reyndi ég þá hefta för þess og sagði að mig langaði bara til að uppfræða það smávegis. Sennilega af því að ég var í kokkajakka, sem leit út eins og jólatré, og talaði enskuna með óvenjulegum hreim, stoppaði bókstaflega hver einasti. Þá tók ég bita af fiski og bað fólk að lykta, ekki smakka, aðeins lykta. Menn ráku nefið að bitanum og lyktuðu einu sinni, og svo aftur, og svo kannski í þriðja sinn. Litu svo á mig og sögðu undrandi: Hvað, það er engin lykt? Þá varaði ég: Það er stóra málið, gæða fiskur lyktar ekki, þessi fiskur sem þér finnst vondur er slæmt hráefni, við selj- um ekki slæmt hráefni. Þá spurði ég hvort menn þyrðu að smakka og flestir voru til í það. Enn og aftur litu menn á mig stórum augum og sögðu: Mér finnst fiskur ekki góður, en þetta er gott. Á sumar þessar sýningar komu þús- undir viðskiptavina dreifiaðilans. Á sum- um svona sýningum voru teknar pantanir á básnum en öðrum ekki. Á seinni árum voru pantanir gerðar á tölvuskjá á básn- um þar sem kúnninn renndi spjaldi í gegnum lesara og þá komu allar vörur okkar á skjáinn og menn lögðu inn pöntun. Í enda dags gátum við svo séð hversu mikið við seldum þann daginn. Þar sem ég eldaði var ég mjög harður á því að bragðprufur væru bara einn munnbiti. Ég sagði alltaf að við ættum ekki að gefa stóra skammta. Það fór alveg svakalega í taugarnar á mér ef ég sá menn gefa heila pylsu í brauði með öllu tilheyr- andi. Svo komu menn á básinn hjá mér og sögðust vera pakksaddir. Á svona sýn- ingum á að gefa bragðprufur en ekki máltíðir. Normal að fiskur lykti illa! Stundum vildi ég að ég hefði haft falda vídeovél fyrir aftan mig þegar ég var að halda námskeið. Eitt það fyrsta sem ég sagði hópnum var: Ef fiskurinn sem þú hefur fyrir framan þig er illa lyktandi þá hefur það ekkert heiti fisksins að gera og skiptir engu hvort hann kemur úr sjó, keri, vatni eða fossandi árvatni, ekki heldur hvort hann er ferskur eða frosinn. Ef hann er illa lyktandi er fiskurinn ein- faldlega úldinn. Þegar ég sagði þetta misstu margir andlitið eins og kallað er, jafnvel þótt all- ir fyrir framan mig væru í kokkajökkum. Fólk einfaldlega hélt að það væri normalt Hilmar B. Jónsson matreiðslumeistari Árin mín í Ameríku – III. hluti – Hilmar í einu af mörgum eldhúsum vestan hafs þar sem hann hefur tekið til hendinni.

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.