Mosfellingur - 28.04.2022, Blaðsíða 20

Mosfellingur - 28.04.2022, Blaðsíða 20
K y n n i n g Þorbjörg Sólbjartsdóttir útskrifast úr Háskóla Íslands árið 2012 sem íþrótta- og heilsufræðingur og kennir í Helga- fellsskóla, þar vinnur hún sem umsjón- arkennari, sundkennari og er með sérkennslu í sundi og íþróttum. Mosfellingur tók Þorbjörgu tali um sundkennslustarfið með börnunum og gefum henni nú orðið. „Ég byrjaði að kenna sund með náminu mínu árið 2009, datt í raun í afleysingu sem varð lengri en ég átti von á. Ég átti ekki von á því þegar ég fór í námið að ég myndi sér- hæfa mig eitthvað sérstaklega í sundi, enda hef ég engan afburðagrunn í því. Þetta hefur líka kennt mér að það þarf ekki alltaf Íslandsmeistaratitil til að gera eitthvað vel. Ég á auðvelt með að ná til þessa aldurshóps og mér finnst það afskap- lega gaman þar sem ég nýt þess að kenna börnum og þessi aldur 3-6 ára er alveg dásamlegur.“ Mikilvægt að börnin fái jákvæða upplifun í sundi „Ég er með tvo hópa og kenni á fimmtu- dögum, hver hópur fær 30 mínútur í kennslu en ég skipti því þannig að þriggja og fjögurra ára börn eru saman og fimm og sex ára. Yngri hópurinn er með foreldra sína með sér ofan í lauginni en eldri börnin koma ein í laugina með mér. Námskeiðin mín eru yfirleitt í átta vikur í senn en ég byrja á haustin þegar skólarnir byrja og kenni fram í byrjun júní. Það er svo mikilvægt að börn fái jákvæða upplifun í sundi en það getur verið stressvaldur hjá börnum að vera í vatni.“ Fyrstu skrefin í gegnum leik og söng „Ég byrja alltaf námskeiðin mín á því að vinna með vatnsaðlögun en það geri ég í gegnum leiki og söng, svo bæti ég inn sundtökunum en ég styðst við fyrsta stig í sundi hjá eldri hópnum. Þau þjálfast líka í því að fara í gegnum búningsklefann en það getur verið svolítið mikið stökk fyrir þau að hafa ekki foreldra sína til að aðstoða sig þegar þau eru komin í fyrsta bekk. Það er svo mikið öryggisatriði að geta lært að bjarga sér í vatni og því oftar sem börn fara í sund því meiri grunni byggja þau á til að geta bjargað sér ef þau lenda í erfiðum aðstæðum í vatni.“ Gott að hafa foreldrana með „Ég reyni að gera upplifun þeirra eins jákvæða og ég mögulega get og styrki þau ef þau lenda í því að fá vatn ofan í sig eða í nefið sem þeim finnst auðvitað óþægilegt. Ég kenni þeim að fylla lungun af lofti áður en þau kafa og nota orð eins og að fylla blöðruna sína (lungun), einnig nota ég orð eins og að róa með fótunum þegar ég kenni þeim bringusund og að láta hælana kyssast þegar þau eru að kreppa. Ég man sjálf þegar ég byrjaði í sund- kennslu, þá í fyrsta bekk, að ég skildi ekki hvað var að kreppa! Svona næ ég að umorða hlutina og gefa aðra merkingu svo að þau skilja hvað þau eiga að gera. Ég hef virkilega gaman af því að sjá fram- farirnar sem geta verið fljótar að koma, sér- staklega ef foreldrar eru duglegir að fara í sund samhliða námskeiðinu til að byggja á þekkingunni,“ sagði Þorbjörg að lokum. Fjórar vikur eru eftir af námskeiðinu sem nú er í gangi og segist Þorbjörg taka glöð við nýjum börnum næsta haust en hún er með tvö námskeið fyrir áramót og tvö eftir áramótin. Skráningar á námskeiðin fara fram á facebook-síðunni hennar „Sundskóli Tobbu“. Íþrótta- og heilsufræðingurinn Þorbjörg Sólbjartsdóttir kennir börnum fyrstu sundtökin • Dásamlegur aldur sundnámskeið tobbu HEILSUEFLANDI SAMFÉLAG GRAFÍSK HÖNNUN / HREYFIMYNDAGERÐ / MYNDSKREYTINGAR sími 898 4796 / stinamaja@atarna.is HEILSUEFLANDI SAMFÉLAG lógó / texti í einni línu Það er svo mikið öryggis- atriði að geta lært að bjarga sér í vatni og því oftar sem börn fara í sund því meiri grunn byggja þau á. Tobba og nokkrir sund- garpar í lágafellslaug - Kynning á sundnámskeiðum Tobbu20 Þorbjörg Sólbjartsdóttir mæðgur á ferðalagi líf og fjör í lágafellslaug
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Mosfellingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Mosfellingur
https://timarit.is/publication/1311

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.