Vasakver : með almanaki fyrir árin 1939-1943 - 01.01.1941, Page 105
105
UM HÆNSNARÆKT.
Eftir Stefán Þorsteinsson.
Stofninn. Hænsnaræktin hér á landi byggist fyrst og
fremst á eggjaframleiðslu. Því ber að leggja áherzlu á að
hver hæna verpi sem flestum og beztum eggjum. Varp-
getan hjá hænum er arfgeng. Þess vegna ættu menn að
gæta þess vel, að velja ávallt unga til lífs undan beztu
hænsnunum og einkum er þetta áríðandi hvað val han-
anna snertir. Því er öruggast að hafa sérstaka varpkassa,
sem séu þannig útbúnir, að þeir lokist þegar hæna fer
inn í hreiðrið að verpa. Allar hænur þurfa að vera merkt-
ar, t. d. með tölusettum látúnshring á annarri löppinni.
Þá þarf að líta eftir varpinu 3—4 sinnum á dag og halda
töflu yfir hænurnar og eggin sem þær verpa.
„Hvíti ítalinn“ er það hænsnakynið, sem er talið geta
orpið flestum eggjum. En valinn stofn, góð hirða og aðbúð
er undirstaðan undir góða afkomu.
Það er ekki talið borga sig að láta hænsnin verða eldri
en 2—3 ára (3% árs, sé um afburða fugla að ræða).
Til þess að eggin frjóvgist, er talið nauðsyniegt að hafa
einn hana með hverjum 15—20 hænum.
Útungunin. Útungunareggin eiga að vera meðalstór, ca.
55—60 gr. Bezt er að þau séu ekki eldri en 3—4 daga
gömul. Er eggin fara að verða eldri en 10—12 daga gömul,
er vafasamt að útungun takist. Eggjaskurnið á að vera.
þykkt, slétt og ógallað. Á geymslustaðnum þarf að snúa
eggjunum minnst einu sinni á sólarhring, helzt oftar.
Skrifið . varpdaginn á eggin. Hitinn á geymslustaðnum
þarf helzt að vera 10—15° C.
Bezt er að nota eldri hænur til að unga út, er þá bezt
að hænan liggi fyrst á gerfieggi í nokkra daga, áður en
útungunareggin eru látin undir hana.
Hreiðrið er hægt að útbúa í dálitlum kassa, sé þá lok
haft yfir en annar gaflinn tekinn úr. Neðst í kassann er
látin rök mold eða túnþaka á hvolf. Helzt þá rakinn í
hreiðrinu, en hann er eggjunum nauðsynlegur. Þar á
ofan er lögð ull, hey, hálmur eða eitthvað þess háttar.
Meðalhæna ungar út 10—12 eggjum. Fyrstu tvo dagana
eiga hænurnar að fá að liggja í friði, næstu 16 dagana
þarf að taka þær úr hreiðrinu og sjá um að þær nærist.
Útungun hænueggjanna tekur 21 dag. Að kvöldi 21.