Bræðrabandið - 01.07.1970, Side 11
Bls. 11 - BRÆÐRABANDIÐ - 7. tbl. 1970
Skólamál.
Þegar vlð hugsum um skólamál okkar, þá kernur oldcur Hlíðar-
dalsskólinn fyrst til hugar. Um 120 nemendur hafa sótt skólaim
sl. tvö ár, u.þ.b. 60 hvort ér. 15 af þessum nemendum hafa sam-
einazt söfnuðinum 1 skírn. Safnaðarskó'lar hafa starfað í
Vestmannaeyjum og að Hlíðardalsskóla. Á sl. hausti tók nýr skóli
til starfa. Það var smábarnaskóli í nýja safnaðarheimilinu f
Keflavík. MIlli 50 og 60 börn á aldrinum 5-6 ára hafa sótt
skÓlann deiglega. Það hefur verið ánægjulegt að sjá foreldrana
koma með börnin sín í þennan skóla, en einnig og ekki sizt, að
sjá þau koma með börnin á hvíldardögum, svo þau geti sótt hvlldar-
dagsskólann. Við trúum, e.ð þetta geti verið býrjun é góðri starf-
semi á Suðurnes.jum. Smábarnaskólinn í Keflavík hefur astaðið
algjörlega undir sér, fjíárhagslega. Það er meira en hægt er að
segja um hina skólana, sem nefndir voru. Við því er heldur ekki að
búa.st, Við verðum að halda áfram að fórna fyrir menntun barnn
okkar. Á þessu tímabili veitti alþingi í fyrsta sinn styrk til
skólans og var hann að upphæð kr. 200.000.oo.
Deildarstörf.
Tvær nýjar bækur komu út, 1. hefti af Sögur Bibllunnar og
Andaheimurinn. En þrátt fyrir það hefur bóksölustarfið dregizt
saman árin 1968/69. Astæðan fyrir þvl er, að við fengum ekki
hingað eins marga útlendinga til bóksölustarfs og undanfarin ár.
Einhvern veginn virðist sem auðveldara sé fyrir útlendinga að
selja en fyrir Islendinga. En á þessu sumri munu nokkuö margir
erlendir námsmenn, ásamt heimafólki, selja bækurnar og standa
vonir til, að bækurnar muni streyma út með boðslcap sinn. 2. hefti
af Sögur Biblíunnar er komið og er nú einnig til sölu.
Auk þessa er verið að gefa út smáritaflokk til stuðnings
útbreiðslustarfinu og til dreifingar meðal almennings.
Innsöfnunarblaðinu hefur verið dreift um land allt að venju,
og þrátt fyrir erfið ár, hefur árangur þeirrar starfseni eklci
minnkað.
Sg skal ekki segja meira um deildarstarfsemina, þvf aðrir munu
gefa ýtarlegar skýrslur um það.
Horft um öxl.
Þær framfarir, sem ég hef hér nefnt, eru mest að þakka fyrir-
rennurum minum, sem lögðu góðan grundvöll til að byggja á, og sem
byrjuðu margar þær framkvæmdir, sem við höfum fullgert. En mestu
þakkir okkar eru að sjálfsögðu til okkar himneska föður, sem gefur
okkur krafta til að starfa og góðan á.vöxt af því, er við reynum að
gera fyrir hann.
Við þökkum Guði einnig fyrir þann eldmóð, er við finnum hjá
systkinunum. Hann kemur í ljós í gjafmildi ykkar og fórn, hvenær
sem beiðni kemur. Hann sézt f fúsleik ykkar að taka þátt í út-
breiðslustarfinu, í líknarstarfi systrafélaganna, sem er unnið af