Bræðrabandið - 01.07.1970, Side 13
Bls. 13.- BR/EÐRABANDIÐ - 7. tbl. 1970.
72%. Ástæðan fyrir þessftri miklu lækkun er sú, að suoir þessara
sjóða voru færðir til höfuðstóls 05 uku þannig fjárhagslegan styrk
konferensins en aðrir voru veittir sen fjárveitingar til ofskrifta
á ýmsum skuldun innan starfsins. Kristniboðsgjafirnar hækkuðu un
7% og námu ú sl. tveim árun kr. 1.278.424.97.
Allar þessar tölur eru uppörvandi og bera vott un framfarir,
en verða samt svo þurrar og innihaldslausar ef við komun ekki auga
á þaö, sem að baki þeim býr. Mér eru þær opinberun á trúmennsku,
fórnarlund og kærleika ykkar og allra safnaðarsystkinanna.
Ég þekki til margra, sem ekki hika við að gefa allt til
starfsins, sen þeir telja sig ekki þarfnast til daglegra nauðsynja.
Sunir leggja jafnvel ú sig aukastörf til þess að afla fjár til
að gefa. Guð ætlast til þess, að við sjáum um, að fjárhirzlur
starfsins séu aldrei tómar, en til endurgjalds hefur hann heitið
okkur því, að opna okkur flóðgáttir himinsins. "Eins og við
njótum stöðugt blessana Guðs, ættum við stöðugt að gefa. Þegar
okkar himneski gjafari hættir að gefa okkur, höfun við afsökun, þvl
þá höfun við engu að miðla." (Cons. 17-18.
Guð blessar okkur neð tímanlegum efnum og hefur 1 náð sinni
gefið okkur tækifæri til að miðla af þeim til nálefnis hans. Ekki
vegna þess að hann sé háður eignum okkar, þvl "mitt er gullið, mitt
er silfrið", segir Drottinn. Heldur til þess, að við mættum þroska
með okkur fómfúsa og örláta lyndiseinkunn, sem er okkur nauðsynleg
til að okkur verði treyst fyrir andlegum efnun. Það er ósk nín og
bæn, að Guð megi blessa fjárhag starfsins áfran sen hingað til og
að afstaða okkar allra megi vera sú ss.ma og eins bróður, sem kom
á skrifstofuna til mín fyrir nokkru og lét þa.u orð falla, að hann
sæi ekki eftir því, sem hann gæfi Guöi, því hann hefði aldrei
horft í neitt við sig.
Skýrsla um leikmannastarf.
Það, sem hæst ber í starfi leikmanna, er einkum þrennt: Iíknar-
starf, innsöfnun og Biblíugjafaáform.
Líknarstarfið hvílir einkum á herðum systranna. iær vinna
merkilegt starf við að hjálpa bágstöddum. Þær deila út fatnaði,
mat og peningum til fátækra og þurfandi manna. Þær leggja af
mörkum mikla vinnu við móttöku fatnaðar, við lagfæringar é notuðum
fatnaði, við að gera nýtt og einnig að pakka og senda frá sér til
þeirra, sem á þurfa að halda. Á umræddu tímabili hafa um 4.600
manns hér innanlands notið aðstoðar systrafélaga Aðventista og yfir
20.000 flíkum hefur verið deild út. Verðgildi matar og peningar, sem
þær hafa gefið, eru um 1100.000 kr. Við starf þetta hafa þær látið 1
té rúmlega 30.000 vinnustundir. Reikna ég með, að tölur þessar séu
sízt of háar og é það einkum við um vinnustundirnar.
Starf systrafélaga Aðventista er orðið vel þekkt meðal lands-
manna. Hið fórnfúsa starf þeirra er unnið í kyrrþey, en engu að
síður hefur það vakið athygli. Landsmenn vita, að þetta eru félög,