Austurglugginn


Austurglugginn - 04.09.2008, Síða 4

Austurglugginn - 04.09.2008, Síða 4
4 AUSTUR · GLUGGINN Fimmtudagur 4. september Karín Axelsdóttir á Eiðum, starfsmaður Alcoa-Fjarðaáls, gefur uppskrift að hreindýrarétti frá Lapplandi, þar sem hún ólst upp, en hreindýrakjöt er þar mun algengari matur en á Íslandi! Verði ykkur að góðu. Ég skora á Írisi Rut Ingólfsdóttur Takið kjötið úr frysti og látið það þiðna örlítið eða þar til hægt er að skera það (frosið) í þunnar sneiðar, u.þ.b. 2-3 mm að breidd. Brúnið kjötið í smjörinu. Saltið. Hellið rjómanum út á. Látið malla í um 15 mínútur. Piprið e.t.v. örlítið. Sjóðið kartöflurnar og stappið. Hrærið öllu saman við. Títuberjasulta er einnig nauðsyn- leg með hreindýrakjötinu! Egg og sykur þeytt saman. Hveiti og lyftidufti hrært saman við. Sett í eldfast mót. Aðalbláberjunum stráð yfir. Smjörið heflað yfir og perlusykrinum stráð þar yfir. Bakað í 175 °C heitum ofni í um 25 mín- útur. Borið fram heitt með ís. “Renskav” frá Lapplandi Bláberjaeftirréttur 500 g hreindýrakjöt – beinlaust (helst steik eða bógur) 2 msk smjör 1 ½ dl rjómi Salt Pipar (ef vill) Meðlæti: Kartöflustappa 1 kg kartöflur – afhýddar 2 dl mjólk 1 msk smjör Salt Pipar Múskat 2 egg 1 ½ dl sykur 2 dl hveiti Lyftiduft á hnífsoddi 5 dl aðalbláber 50 g smjör Perlusykur (til að strá yf ir) Póstfang: Brekkugata 9, 730 Reyðarfjörður Útgefandi: Útgáfufélag Austurlands ehf. Umbrot & prentun: Héraðsprent Auglýsingast.: Erla S. Einarsdóttir 477 1571 - 891 6484 - erla@austurglugginn.is Ritstjóri & ábyrgðarmaður: Einar Ben Þorsteinsson 477 1750 - 896 5513 - frett@agl.is Blaðamaður: Gunnar Gunnarsson 477 1755 - 848 1981 - gunnar@austurglugginn.is Fréttaritari á Vopnafirði - Bjarki Björgólfsson 854 9482 - kompan@vortex.is Fréttaritari í Neskaupstað: Áslaug Lárusdóttir - 695 8498 - aslaugl@gmail.com Aðalsími: 477 1571 Fréttasímar 477 1750 - 477 1755 www. austurglugginn.is Í annars ágætri umfjöllun um opnun Jarðfræðiseturs George Walkers á Breiðdalsvík í síðasta tölublaði Austurgluggans gætir misskilnings varðandi uppbyggingu sýningar í Gamla kaupfélaginu. Sagt er að undirritaður hafi gert sýninguna um verk Walkers á neðri hæð hússins. Það er misskilningur. Höfundur sýningarinnar í heild er Guðrún Sigríður Haraldsóttir leik- myndahönnuður, búsett í London. Að undirbúningnum kom einnig Elinóra Inga Sigurðardóttir jarð- fræðingur. Að beiðni undirbún- ingsnefndar setursins flutti ég fyrr á þessu ári tvívegis fyrirlestra um rannsóknir Walkers hér eystra, þar eð ég hef mikið um þær fjallað í bókum mínum um Austurland. Í framhaldi af því var falast eftir efni, myndum og texta, úr árbókum mínum til afnota á umræddri sýningu og var mér ljúft að verða við því og styðja þannig við þetta merka frumkvæði. Hjörleifur Guttormsson Leiðrétting vegna Breiðdalsseturs Ný lið í útsvari Fjarðabyggð og Fljótsdalshérað hafa valið ný lið til keppni í spurn- ingakeppninni Útsvari sem haldið verður áfram í Ríkissjónvarpinu í vetur. Kjartan Bragi Valgeirsson verður áfram í liði Fjarðabyggðar en Sigrún Birna Björnsdóttir, grunn- skólakennari á Reyðarfirði og Pétur St. Arason, framhalsskóla- kennari í Neskaupstað koma ný inn í liðið. Stefán Bogi Sveinsson, framkvæmdastjóri á Egilsstöðum, tekur sæti Þorbjarnar Rúnarssonar í liði Fljótsdalshéraðs. Þorsteinn Bergsson og Urður Snædal verða áfram í liðinu. GG Glímumenn styrktir Fjarðabyggð hefur samþykkt að veita glímumönnum úr Val á Reyðarfirði styrk upp á samtals 75.000 krónur vegna flugfars á heimsmeistaramótið í glímu í Hróarskeldu í Danmörku. Glímuráð Vals fær einnig 100.000 krónur úr afreksmannasjóði sem viðurkenningu fyrir heimsmeist- aratitil og frábæran árangur á mótinu. GG Rafstöðin ekki endurgerð Fulltrúar Fjarðabyggðar telja ekki ástæðu til að leggja í kostnað við endurgerð rafveitunnar Ljósalands í Fáskrúðsfirði þannig að hún geti verið til sýnis almenningi. Það er meðal annars vegna þess að vel varðveitt hliðstæð rafstöð er á Reyðarfirði og áformað að rafstöð RARIK á Eskifirði, elsta almenn- ingsrafstöð á landinu, verði opnuð sem sýningarstaður. GG Fimm í frí- stundabúðir Fimm ungmenni úr Fjarðabyggð fara í dag til Noregs í BaseCamp búðir um helgina. Einn kemur úr hverri félagsmiðstöð sveit- arfélagsins, Jón Björgúlfsson S t ö ð v a r f i r ð i , B r y n d í s Hjálmarsdóttir, Fáskrúðsfirði, Bjartur Þór Jóhannsson, Norðfirði og Þorvaldur Guðni Sævarsson, Eskifirði. Verkefnið er hluti af sam- starfi Menningarráðs Austurlands og Vesterålen. GG

x

Austurglugginn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Austurglugginn
https://timarit.is/publication/1687

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.