Austurglugginn - 04.09.2008, Blaðsíða 12
Verslið þar sem
úrvalið er…
…allt í einni ferð
Opið
mánud. - föstud. 9-19
laugardaga 10-18
sunnudaga 12-18 EGILSSTÖÐUM
EGILSSTÖÐUM
Tóti segir
Ég ætla að
heimsækja
verkalýðsleiðtoga
Þann 28. ágúst síðastliðinn voru sextíu
ár liðin frá því að Skógræktarfélag
Neskaupstaðar var stofnað. Af því
tilefni var efnt til afmælishátíðar í
Hjallaskógi.
Mikill fjöldi vina og velunnara skóg-
ræktarfélagsins mættu til að gleðjast
saman á þessum góðviðrisdegi og
taka þátt í hátíðinni.
Anna Bergljót Sigurðardóttir, for-
maður Skógræktarfélagsins og
Marías B. Kristjánsson, skólastjóri
Nesskóla, undirrituðu samning sem
felur í sér að skólanum er úthlutaður
lundur í skóginum sem hann má
nota og útfæra eftir því sem best
hentar til hvers konar útikennslu.
Tólf stofnfélagar voru heiðraðir í
tilefni dagsins og mættu níu þeirra
í skóginn og tóku við heiðursskjali,
Stefán Þorleifsson mælti fyrir hönd
stofnfélaga og lýsti ánægju sinni með
skóginn og sagði að bjartsýnustu
menn hefðu ekki séð fyrir þennan
mikla árangur sem starf félagsins
hefur borið. Mikið og gott starf hefur
verið unnið í skóginum í sumar sem
og undanfarin ár og er aðstaða til
útivistar og gönguferða um skógin
orðin hin besta.
Á heimasíðu Skógræktarfélagsins,
www.123.is/hjallaskogur, má sjá fleiri
myndir frá afmælishátíðinni. ÁL
Sextugt Skógræktarfélag
Afmælishátíð
í Hjallaskógi
Heiðursfélagar. Frá vinstri: Stefán Þorleifsson, Haukur Ólafsson, Jón S. Einarsson, Kristín
Lundberg, Ásdís Ólsen, Lilja Bjarnadóttir, Unnur Jóhannsdóttir og Unnur Bjarnadóttir.
www.toyota.is
Toyota Austurlandi Miðási 2 S: 470-5070
HILUX - Láttu reyna á ánn
Tæplega þrjátíu konur mættu í kvennareið Hestamannafélagsins Blæs
sem riðin var um seinustu helgi. Riði var frá réttum og út eftir, komið við
í Skálateigi og stoppað í Miðbæ þar sem veitingar biðu.
Að því loknu var konunum skipt í tvö lið og keppt í Actinonary. Næst var
aftur stigið á bak, riðið út eftir, niður fram hjá flug- og golfvöllunum og
þaðan inn Grænanesveginn inn að keppnisvelli Blæs. Þar kepptu liðin í
bjórreið og dekkjarallý. Ferðinni lauk inni í Teig þar sem meiri matur beið
og þegar hrossunum hafði verið komið heim grilluðu herrarnir fyrir kon-
urnar. Fleiri myndir frá ferðinni má sjá á www.123.is/blaer.
Kvennareið Blæs
Kampakátar hestakonur. Mynd: Blær
Sungið af hjartans list. Skólakór Nesskóla söng við athöfnina. Mynd: ÁL
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
T
M
I
32
03
6
0
3/
20
06
TRYGGINGAMIÐSTÖÐIN / Sími 515 2000 / tm@tryggingamidstodin.is
Umboðsmenn í Fjarðabyggð
// TM Neskaupstað
Hafnarbraut 6
740 Neskaupstaður
sími 477 1735
// Sparisjóður Norðfjarðar
Búðareyri 2
730 Reyðarfjörður
sími 470 1100