Austurglugginn


Austurglugginn - 04.09.2008, Side 10

Austurglugginn - 04.09.2008, Side 10
10 AUSTUR · GLUGGINN Fimmtudagur 4. september Sumarhátíð UÍA fór fram á Fljótsdalshéraði um seinustu helgi. Ríflega þrjú hundruð þátttakendur á ýmsum aldri voru skráðir til leiks í sundi, golf i, fótbolta og frjálsum íþróttum. „Hátíðin gekk mjög vel. Okkur var hótað rigningu alla helgina en það var þurrt meginpartinn og hið besta keppnisveður,“ segir Stefán Bogi Sveinsson, framkvæmdastjóri UÍA. Á milli 300-350 þátttakendur mættu til leiks. „Það var gaman að sjá hve margir foreldrar voru tilbúnir að leggja á sig ferðalög til að fylgja börnunum sínum í keppni og hve margir sjálfboðaliðar voru reiðubúnir að hlaupa undir bagga við fram- kvæmd mótsins.“ Í frjálsum íþróttum fékk Daði Fannar Sverrisson, Hetti, viðurkenningu sem stigahæsti einstaklingurinn í flokki 14 ára og yngri. Hann varpaði kúl- unni 11,07 metra. Í eldri flokki var það Sveinbjörg Zophoníasdóttir, USÚ, sem fékk stigabikarinn fyrir að stökkva 1,60 metra í hástökki. Höttur vann stigakeppni félaga í yngri flokki en UMF Þristur í eldri flokki. Öll frjálsíþróttaúrslit Sumarhátíðarinnar má sjá á ww.fri.is Í sundi vann Leiknir stigakeppni félaga en úrslit sundsins verða aðgengileg á www.uia.is. Úrslit í golfi og knattspyrnu verða það einnig en metþátttaka var í golfkeppninni, 19 þátttakendur. Keppt var í henni á sumarhátíð í þriðja sinn. Myndir og texti: GG Sumarhátíð UÍA Ríflega þrjú hundruð keppendur Yngstu þátttakendur Neista stoltir með verðlaunapeninga sína. Sundsveit Leiknis fagnar stigabikarnum. Gaman á hliðarlínunni. Hattarmenn fagna stigabikarnum í yngri flokki. Kassasmíði í starfshlaupi

x

Austurglugginn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Austurglugginn
https://timarit.is/publication/1687

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.