Fréttablaðið - 06.10.2022, Síða 3
2 2 2 . T Ö L U B L A Ð 2 2 . Á R G A N G U R f rettab lad id . i s F I M M T U D A G U R 6 . O K T Ó B E R 2 0 2 2
Svartur á
þríleik
Lífið ➤ 34
Elskum
raðmorðingja
Lífið ➤ 32
Ein helstu rökin fyrir einka-
sölu ríkisins á áfengi eru að
hún takmarki aðgengi. Á síð-
ustu 30 árum hefur þó fjöldi
verslana ÁTVR fjórfaldast.
bth@frettabladid.is
LÝÐHEILSA Sala á áfengi, mæld í
vínanda, á tímabilinu 1980 til 2020,
fór úr þremur lítrum á mann upp í
sex lítra á hvern Íslending, 15 ára og
eldri. Þetta kemur fram ef rýnt er í
tölur Hagstofunnar.
Svanhildur Hólm Valsdóttir
hjá Viðskiptaráði Íslands segir ein
helstu rökin fyrir einkasölu ríkisins
vera að með henni sé verið að tak-
marka aðgengi. Á síðustu 30 árum
hafi þó fjöldi áfengisverslana ÁTVR
fjórfaldast, verslanir séu orðnar um
50 talsins og afgreiðslutími lengdur.
Veitingastöðum sem selja áfengi
hefur einnig fjölgað mikið, brugg-
staðir hafa fengið heimild til að
selja „beint frá býli“ og áfengiskaup
í gegnum internetið hafa stóraukið
aðgengi að áfengi á sama tíma og fé
til forvarna hefur verið skorið niður.
Nokkrir Framsóknarþingmenn,
undir forystu Hafdísar Hrannar
Hafsteinsdóttur sem situr í velferðar-
nefnd Alþingis, standa nú að frum-
varpi um að ÁTVR fái rýmri heim-
ildir til sölu á áfengi alla daga ársins.
Hafdís segir einn megintilgang frum-
varpsins vera að halda sölu á áfengi
inni í sérbúðum ÁTVR með því að
auka þjónustu en missa ekki söluna
í almennar matvörubúðir.
Ársæll Arnarson, prófessor og
faglegur stjórnandi Íslensku æsku-
lýðsrannsóknarinnar, segir drykkju
ungmenna virðast vera að aukast í
seinni tíð. „Við sitjum eftir með
ákveðinn hluta af börnum sem
drekka áfengi, upp undir 30 prósent
af tíundubekkingum hafa drukkið
áfengi samkvæmt nýjustu rann-
sóknum,“ segir Ársæll.
„Unglingar eru endalaus skot-
mörk áfengisframleiðenda. Það
er dapurlegt ef við ætlum að fórna
þeim mikla árangri sem náðst
hefur,“ segir Ársæll.
Árni Einarsson forvarnafulltrúi
segir að það vanti samfélagssátta-
mála um stefnu í málaflokknum.
SJÁ SÍÐU 10
Áfengisdrykkja hefur tvöfaldast og
fjöldi áfengisverslana fjórfaldast
Árni Einarsson,
forvarnafulltrúi
BúÚH!
Graskerin
eru komin!
Komdu ef þú
þorir!
Stoltur söluaðili
Bleiku slaufunnar
Framlag þitt rennur óskipt
til Krabbameinsfélagsins
EFNAHAGSMÁL Í gær hækkaði Seðla-
bankinn stýrivexti sína í níunda
sinn frá því í maí í fyrra og í fimmta
sinn á þessu ári.
Áhrif hækkunarinnar eru mest á
þau sem eru með lán á breytilegum
vöxtum, eins og áður.
Jóhann Páll Jóhannsson, þing-
maður Samfylkingarinnar, segir að
um enn eitt höggið sé að ræða fyrir
þann hóp.
Sigríður Hrefna Hrafnkelsdóttir,
framkvæmdastjóri Einstaklings-
sviðs hjá Íslandsbanka, segir að
hækkanirnar og örar breytingar á
vaxtamarkaði muni hafa þau áhrif
að enn erfiðara verði fyrir fyrstu
kaupendur fasteigna að komast inn
á húsnæðismarkaðinn á Íslandi.
SJÁ SÍÐU 4
Hærri stýrivextir
enn eitt höggið
SÁÁ hélt í gær tónleika í tilefni af 45 ára afmæli samtakanna. Viðburðurinn fór fram í Háskólabíó en þar steig á svið einvalalið íslensks tónlistarfólks, nánar tiltekið þau Emmsjé Gauti, Katrín Halldóra
Sigurðardóttir, Bubbi Morthens, Eyþór Ingi Gunnlaugsson og Karlakórinn Fóstbræður. Fjöldi gesta mætti og fagnaði afmælinu og var gleðin við völd. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR