Fréttablaðið - 06.10.2022, Page 10

Fréttablaðið - 06.10.2022, Page 10
Armenía og Aserbaísjan eru ríki sem hafa eldað grátt silfur um árabil. Armenskur háskólakennari ræddi við Fréttablaðið um nýleg átök ríkjanna, viðbrögð umheims- ins og hvað stríðið í Úkraínu merkir fyrir Armeníu. thorgrimur@frettabladid.is ALÞJÓÐAMÁL „Það er tiltölulega rólegt þarna núna. Við segjum allt- af tiltölulega, því átökin hafa staðið yfir í f leiri áratugi,“ segir Erik Dav- tyan, aðstoðarprófessor í alþjóða- samskiptum og erindrekstri við Ríkisháskólann í Jerevan, um átök við landamæri Armeníu sem bloss- uðu upp í síðasta mánuði. Átökin, þar sem um 300 manns féllu í valinn, voru þau blóðugustu síðan 2020, þegar ríkin tvö háðu stutt stríð um Nagornó-Karabak sem endaði með sigri Asera. Erik kom til Íslands á dögunum til að kenna áfanga um utanríkisstefnu smáríkja ásamt Baldri Þórhallssyni við stjórnmálafræðideild Háskóla Íslands. Þetta er annað skiptið sem hann kemur til landsins. Erik var staddur í armensku höf- uðborginni Jerevan þegar átökin stóðu yfir við landamæri Armeníu og Aserbaísjan um miðjan síðasta mánuð og segir andrúmsloftið hafa verið afar spennuþrungið. „Ástandið var mjög óhugnan- legt, út af áfallinu sem þjóðin var í eftir stríðið 2020. Við töpuðum því, misstum mikið landsvæði og þúsundir flóttafólks misstu heimili sín,“ segir hann. „Það leit út fyrir að fólk væri að reyna að snúa aftur til venjulegs lífs. Og svo gerðist þetta og rúmlega hundrað manns létust.“ Erik segir að styrjöldin í Úkraínu hafi gert stöðuna í Armeníu enn viðkvæmari því það eru Rússar sem eru helsti öryggisventill Armena gegn árásum Asera. Armenar eru aðili að Samein- uðu öryggissáttmálastofnuninni (CSTO), varnarbandalagi Rússa og nokkurra fyrrum sovétlýðvelda, en Aserar eiga í nánu sambandi við Tyrki, sem eru aðilar að Atlants- hafsbandalaginu. Síðan samið var um vopnahlé árið 2020 hafa Rússar haft landa- mæraverði til að sinna friðargæslu við landamæri Armeníu og Aserba- ísjan. Armenar óttast nú margir að ef Rússar sýni of mikinn veikleika í viðureigninni gegn Úkraínu muni það gera Asera enn bíræfnari. „Armenía hefur alltaf reynt að vera bandamaður Rússa en vera um leið náin Evrópusambandinu. En nú sér fólk engin viðbrögð frá ESB, sérstaklega ekki síðan stríðið í Úkraínu hófst,“ segir Erik. „Fólkið er vonsvikið því til- finningin er sú að ESB vilji hjálpa Armeníu, en þegar syrtir í álinn og Armenar virkilega þarfnast hjálpar, þá lætur hún ekki á sér kræla.“ Óvissan um áframhaldandi flutninga á jarðgasi Rússa til Evrópu hefur aftur á móti gert ESB háðara Aserbaísjan. Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar ESB, fundaði með Ilham Aliyev, forseta Aserba- ísjan, í júlí til að ganga frá samningi um aukinn f lutning á jarðgasi og olíu til Evrópu frá Aserbaísjan. Við tilefnið kallaði hún Aliyev „áreið- anlegan samstarfsmann“. Erik segir að Armenar hafi orðið bæði reiðir og vonsviknir yfir yfir- lýsingum embættismanna ESB um átökin. „Þeir gefa út yfirlýsingar um að þeir hafi þungar áhyggjur en benda ekki fingri á árásaraðilann, sem er Aserbaísjan. Fólk er von- svikið vegna viðbragðanna og yfir gildunum sem ESB segist meta svo mikils.“ Núverandi forsætisráðherra Armeníu, Níkol Pasjínjan, komst til valda í svokallaðri f lauelsbyltingu árið 2018, meðal annars með það að markmiði að stofna til nánara samstarfs við Evrópusambandið og Vesturlönd. Erik segir vonbrigði Armena með viðbrögð ESB við átökunum enn sárari í því ljósi. „Þeir héldu að ESB myndi taka upp virkari stefnu gagnvart Armeníu, en ekkert hefur breyst.“ Að sögn Eriks snúast átök Armen- íu við Aserbaísjan um meira en bara Nagornó-Karabak. Þau snúist um tilvistarrétt armensku þjóðarinnar, sem Aserar hafi ítrekað dregið í efa. „Þeir vilja ekki friðarsamkomulag sem myndi leysa deiluna í eitt skipti fyrir öll. Ef þeir geta það vilja þeir útrýma armensku þjóðinni. Þetta kann að virðast ýkjukennd túlkun, en miðað við ummæli þeirra er þetta það sem þeir vilja.“ n Tilfinningin er sú að ESB vilji hjálpa Armen- íu, en þegar syrtir í álinn og Armenar virkilega þarfnast hjálpar, þá lætur hún ekki á sér kræla. Erik Davtyan, að- stoðarprófessor við Ríkisháskól- ann í Jerevan benediktboas@frettabladid.is SAMFÉLAG Vestmannaeyjabær hefur tekið á móti sjö f lóttamönnum og aðstoðað þá við að koma sér fyrir og aðlagast samfélaginu. Bærinn hefur ekki skrifað formlega undir þjónustusamning við ríkið um sam- ræmda móttöku flóttafólks. Á fundi Fjölskyldu- og tóm- stundaráðs Vestmannaeyja í vik- unni kom fram að bærinn væri reiðubúinn að taka á móti f leira f lóttafólki. Ráðið bendir þó á að tryggja þurfi gott upplýsingaflæði milli ríkisins og sveitarfélaga um móttöku f lóttafólks. „Upp á það hefur vantað töluvert af hálfu ríkis- ins,“ segir í bókun ráðsins. n Sjö flóttamenn í Vestmannaeyjum Ríkið hefur lítið samband við sveitarfélögin vegna flóttamanna. Armenía á milli steins og sleggju Samstöðumótmæli með Armeníu fóru fram á Schuman-hringtorginu í Brussel, skammt frá höfuðstöðvum Evrópusambandsins, þann 21. september síðast- liðinn. Mótmælendurnir gagnrýna Evrópusambandið fyrir gassamninga þess við Aserbaísjan. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY birnadrofn@frettabladid.is SAMFÉLAG 90 prósent félagsmanna Hugaraf ls eru ánægð með starf félagsins samkvæmt nýrri könnun á vegum Háskóla Íslands. Auður Axelsdóttir, framkvæmda- stjóri Hugarafls, segir niðurstöður könnunarinnar mjög jákvæðar. Mikill meirihluta svarenda, eða 84 prósent, telji Hugarafl hafa aðstoð- að sig mjög eða frekar mikið í að ná árangri í bataferli sínu. „Tekið er meðal annars fram mikilvægi þess að tilheyra hópi, jafningjastuðningur og að það sé mikil fjölbreytni í leiðum innan samtakanna,“ segir Auður. „Í opnum svörum var algengt að fólk greindi frá mikilvægi þess að tilheyra samfélagi félagsmanna Hugarafls, og að fá stuðning frá og vera samþykkt af öðrum notendum hefði reynst því vel,“ bætir hún við. Hlutfallslega leituðu f lestir til Hugaraf ls með það að markmiði að auka virkni sína, eða 52 pró- sent. Því næst leituðu flestir þangað vegna afleiðinga áfalla eða áfalls og margir vegna félagslegrar einangr- unar. „Tæplega fimmtungur leitaði til Hugarafls vegna sjálfsvígshugsana eða sjálfsvígstilraunar. 16 prósent þátttakenda leituðu fyrst til Hugar- af ls sem aðstandendur, til að fá stuðning, upplýsingar eða aðstoð vegna annars aðila,“ segir Auður og bætir við að þau sem leiti til Hugar- af ls sem aðstandendur óski aðal- lega eftir ráðgjöf og að taka þátt í hópa starfi. n Mikil ánægja meðal notenda með starfsemi Hugarafls Hugarafl tók við nýjum húsa- kynnum í Síðu- múla 6 í síðustu viku. MYND/AÐSEND benediktboas@frettabladid.is SAMFÉLAG Katrín Jakobsdóttir for- sætisráðherra heimsótti Fjarða- byggð á þriðjudag og skoðaði skemmdir á Stríðsárasafninu og á slökkvistöðinni við Mjóeyrarhöfn eftir óveður sem gekk yfir á dög- unum. Á slökkvistöðinni tók á móti henni Sigurjón Valmundarson slökkviliðsstjóri og Sigurfinnur Líndal varaslökkviliðsstjóri ásamt vaktinni sem var við störf þegar óveðrið gekk yfir. Katrín skoðaði skemmdirnar sem urðu á slökkvi- stöðinni ásamt því að ræða við starfsmennina sem voru á vakt þegar óveðrið geisaði. Katrín ræddi að lokum við bæj- arstjórnarfólk um hverjar væru helstu áherslur í bæjarmálunum í Fjarðabyggð, fjármál sveitarfélaga og sameiningarmál. n Katrín heimsótti Fjarðabyggð Katrín á slökkvistöðinni fyrir framan skemmdan sjúkrabíl. MYND/FJARÐABYGGÐ 8 Fréttir 6. október 2022 FIMMTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.