Fréttablaðið - 06.10.2022, Síða 10
Armenía og Aserbaísjan eru
ríki sem hafa eldað grátt
silfur um árabil. Armenskur
háskólakennari ræddi við
Fréttablaðið um nýleg átök
ríkjanna, viðbrögð umheims-
ins og hvað stríðið í Úkraínu
merkir fyrir Armeníu.
thorgrimur@frettabladid.is
ALÞJÓÐAMÁL „Það er tiltölulega
rólegt þarna núna. Við segjum allt-
af tiltölulega, því átökin hafa staðið
yfir í f leiri áratugi,“ segir Erik Dav-
tyan, aðstoðarprófessor í alþjóða-
samskiptum og erindrekstri við
Ríkisháskólann í Jerevan, um átök
við landamæri Armeníu sem bloss-
uðu upp í síðasta mánuði.
Átökin, þar sem um 300 manns
féllu í valinn, voru þau blóðugustu
síðan 2020, þegar ríkin tvö háðu
stutt stríð um Nagornó-Karabak
sem endaði með sigri Asera.
Erik kom til Íslands á dögunum til
að kenna áfanga um utanríkisstefnu
smáríkja ásamt Baldri Þórhallssyni
við stjórnmálafræðideild Háskóla
Íslands. Þetta er annað skiptið sem
hann kemur til landsins.
Erik var staddur í armensku höf-
uðborginni Jerevan þegar átökin
stóðu yfir við landamæri Armeníu
og Aserbaísjan um miðjan síðasta
mánuð og segir andrúmsloftið hafa
verið afar spennuþrungið.
„Ástandið var mjög óhugnan-
legt, út af áfallinu sem þjóðin var
í eftir stríðið 2020. Við töpuðum
því, misstum mikið landsvæði og
þúsundir flóttafólks misstu heimili
sín,“ segir hann.
„Það leit út fyrir að fólk væri að
reyna að snúa aftur til venjulegs
lífs. Og svo gerðist þetta og rúmlega
hundrað manns létust.“
Erik segir að styrjöldin í Úkraínu
hafi gert stöðuna í Armeníu enn
viðkvæmari því það eru Rússar sem
eru helsti öryggisventill Armena
gegn árásum Asera.
Armenar eru aðili að Samein-
uðu öryggissáttmálastofnuninni
(CSTO), varnarbandalagi Rússa og
nokkurra fyrrum sovétlýðvelda,
en Aserar eiga í nánu sambandi við
Tyrki, sem eru aðilar að Atlants-
hafsbandalaginu.
Síðan samið var um vopnahlé
árið 2020 hafa Rússar haft landa-
mæraverði til að sinna friðargæslu
við landamæri Armeníu og Aserba-
ísjan. Armenar óttast nú margir að
ef Rússar sýni of mikinn veikleika í
viðureigninni gegn Úkraínu muni
það gera Asera enn bíræfnari.
„Armenía hefur alltaf reynt að
vera bandamaður Rússa en vera
um leið náin Evrópusambandinu.
En nú sér fólk engin viðbrögð frá
ESB, sérstaklega ekki síðan stríðið
í Úkraínu hófst,“ segir Erik.
„Fólkið er vonsvikið því til-
finningin er sú að ESB vilji hjálpa
Armeníu, en þegar syrtir í álinn og
Armenar virkilega þarfnast hjálpar,
þá lætur hún ekki á sér kræla.“
Óvissan um áframhaldandi
flutninga á jarðgasi Rússa til Evrópu
hefur aftur á móti gert ESB háðara
Aserbaísjan.
Ursula von der Leyen, forseti
framkvæmdastjórnar ESB, fundaði
með Ilham Aliyev, forseta Aserba-
ísjan, í júlí til að ganga frá samningi
um aukinn f lutning á jarðgasi og
olíu til Evrópu frá Aserbaísjan. Við
tilefnið kallaði hún Aliyev „áreið-
anlegan samstarfsmann“.
Erik segir að Armenar hafi orðið
bæði reiðir og vonsviknir yfir yfir-
lýsingum embættismanna ESB um
átökin. „Þeir gefa út yfirlýsingar
um að þeir hafi þungar áhyggjur en
benda ekki fingri á árásaraðilann,
sem er Aserbaísjan. Fólk er von-
svikið vegna viðbragðanna og yfir
gildunum sem ESB segist meta svo
mikils.“
Núverandi forsætisráðherra
Armeníu, Níkol Pasjínjan, komst til
valda í svokallaðri f lauelsbyltingu
árið 2018, meðal annars með það
að markmiði að stofna til nánara
samstarfs við Evrópusambandið
og Vesturlönd. Erik segir vonbrigði
Armena með viðbrögð ESB við
átökunum enn sárari í því ljósi.
„Þeir héldu að ESB myndi taka upp
virkari stefnu gagnvart Armeníu, en
ekkert hefur breyst.“
Að sögn Eriks snúast átök Armen-
íu við Aserbaísjan um meira en bara
Nagornó-Karabak. Þau snúist um
tilvistarrétt armensku þjóðarinnar,
sem Aserar hafi ítrekað dregið í efa.
„Þeir vilja ekki friðarsamkomulag
sem myndi leysa deiluna í eitt skipti
fyrir öll. Ef þeir geta það vilja þeir
útrýma armensku þjóðinni. Þetta
kann að virðast ýkjukennd túlkun,
en miðað við ummæli þeirra er
þetta það sem þeir vilja.“ n
Tilfinningin er sú að
ESB vilji hjálpa Armen-
íu, en þegar syrtir í
álinn og Armenar
virkilega þarfnast
hjálpar, þá lætur hún
ekki á sér kræla.
Erik Davtyan, að-
stoðarprófessor
við Ríkisháskól-
ann í Jerevan
benediktboas@frettabladid.is
SAMFÉLAG Vestmannaeyjabær hefur
tekið á móti sjö f lóttamönnum og
aðstoðað þá við að koma sér fyrir
og aðlagast samfélaginu. Bærinn
hefur ekki skrifað formlega undir
þjónustusamning við ríkið um sam-
ræmda móttöku flóttafólks.
Á fundi Fjölskyldu- og tóm-
stundaráðs Vestmannaeyja í vik-
unni kom fram að bærinn væri
reiðubúinn að taka á móti f leira
f lóttafólki. Ráðið bendir þó á að
tryggja þurfi gott upplýsingaflæði
milli ríkisins og sveitarfélaga um
móttöku f lóttafólks. „Upp á það
hefur vantað töluvert af hálfu ríkis-
ins,“ segir í bókun ráðsins. n
Sjö flóttamenn í
Vestmannaeyjum
Ríkið hefur lítið samband við
sveitarfélögin vegna flóttamanna.
Armenía á milli steins og sleggju
Samstöðumótmæli með Armeníu fóru fram á Schuman-hringtorginu í Brussel, skammt frá höfuðstöðvum Evrópusambandsins, þann 21. september síðast-
liðinn. Mótmælendurnir gagnrýna Evrópusambandið fyrir gassamninga þess við Aserbaísjan. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
birnadrofn@frettabladid.is
SAMFÉLAG 90 prósent félagsmanna
Hugaraf ls eru ánægð með starf
félagsins samkvæmt nýrri könnun
á vegum Háskóla Íslands.
Auður Axelsdóttir, framkvæmda-
stjóri Hugarafls, segir niðurstöður
könnunarinnar mjög jákvæðar.
Mikill meirihluta svarenda, eða 84
prósent, telji Hugarafl hafa aðstoð-
að sig mjög eða frekar mikið í að ná
árangri í bataferli sínu.
„Tekið er meðal annars fram
mikilvægi þess að tilheyra hópi,
jafningjastuðningur og að það sé
mikil fjölbreytni í leiðum innan
samtakanna,“ segir Auður.
„Í opnum svörum var algengt að
fólk greindi frá mikilvægi þess að
tilheyra samfélagi félagsmanna
Hugarafls, og að fá stuðning frá og
vera samþykkt af öðrum notendum
hefði reynst því vel,“ bætir hún við.
Hlutfallslega leituðu f lestir til
Hugaraf ls með það að markmiði
að auka virkni sína, eða 52 pró-
sent. Því næst leituðu flestir þangað
vegna afleiðinga áfalla eða áfalls og
margir vegna félagslegrar einangr-
unar.
„Tæplega fimmtungur leitaði til
Hugarafls vegna sjálfsvígshugsana
eða sjálfsvígstilraunar. 16 prósent
þátttakenda leituðu fyrst til Hugar-
af ls sem aðstandendur, til að fá
stuðning, upplýsingar eða aðstoð
vegna annars aðila,“ segir Auður og
bætir við að þau sem leiti til Hugar-
af ls sem aðstandendur óski aðal-
lega eftir ráðgjöf og að taka þátt í
hópa starfi. n
Mikil ánægja meðal notenda með starfsemi Hugarafls
Hugarafl tók við
nýjum húsa-
kynnum í Síðu-
múla 6 í síðustu
viku.
MYND/AÐSEND
benediktboas@frettabladid.is
SAMFÉLAG Katrín Jakobsdóttir for-
sætisráðherra heimsótti Fjarða-
byggð á þriðjudag og skoðaði
skemmdir á Stríðsárasafninu og á
slökkvistöðinni við Mjóeyrarhöfn
eftir óveður sem gekk yfir á dög-
unum.
Á slökkvistöðinni tók á móti
henni Sigurjón Valmundarson
slökkviliðsstjóri og Sigurfinnur
Líndal varaslökkviliðsstjóri ásamt
vaktinni sem var við störf þegar
óveðrið gekk yfir. Katrín skoðaði
skemmdirnar sem urðu á slökkvi-
stöðinni ásamt því að ræða við
starfsmennina sem voru á vakt
þegar óveðrið geisaði.
Katrín ræddi að lokum við bæj-
arstjórnarfólk um hverjar væru
helstu áherslur í bæjarmálunum í
Fjarðabyggð, fjármál sveitarfélaga
og sameiningarmál. n
Katrín heimsótti
Fjarðabyggð
Katrín á slökkvistöðinni fyrir framan
skemmdan sjúkrabíl.
MYND/FJARÐABYGGÐ
8 Fréttir 6. október 2022 FIMMTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ