Fréttablaðið


Fréttablaðið - 06.10.2022, Qupperneq 14

Fréttablaðið - 06.10.2022, Qupperneq 14
Þetta ríka samfélag verður að fara að ákveða hvar við ætlum að forgangs- raða fjár- munum. Við eigum að leysa þessa hluti. magdalena@frettabladid.is Una Jónsdóttir, forstöðumaður hagfræðideildar Landsbankans, segir að vænta megi nokkuð mynd­ arlegs hagvaxtar á þessu ári. Þetta sagði hún í sjónvarpsþættinum Markaðinum sem sýndur var á sjónvarpsstöðinni Hringbraut í gærkvöldi. „Við höfum fengið tölur um landsframleiðslu á fyrri hluta árs sem eru mjög sterkar. Einkaneyslan á fyrri helmingi ársins var einnig mikil,“ segir Una og bætir við að heimilin hafi verið að vinna upp neyslu sem færðist til vegna farald­ ursins. „Vísbendingar eru um mikinn hagvöxt á fyrri helmingi ársins en ég held að það fari aðeins að hægja á því eftir þetta ár.“ Í þættinum var einnig rætt um stýrivaxtahækkun Seðlabankans sem tilkynnt var um í morgun og verðbólguhorfur. Peningastefnu­ nefnd Seðlabankans tilkynnti í morgun að stýrivextir yrðu hækk­ aðir um 0,25 prósentustig og standa þeir því nú í 5,75 prósentum. Una segir að á fundi peninga­ stefnunefndar í gærmorgun hafi mátt greina annan tón en verið hefur. „Það var hægt að lesa það út úr þessum fundi og sérstaklega umræðunni sem fór fram í kjöl­ farið að það er kominn annar tónn í Seðlabankann. Seðlabankastjóri gaf það í skyn að toppnum væri náð í vaxtahækkunarferlinu. En það byggir á stöðunni eins og hún er núna. Það getur svo sem margt breyst fram að næsta fundi.“ n Hagvöxtur á þessu ári verði þó nokkur Una Jónsdóttir, forstöðumaður hagfræðideildar Landsbankans Formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga segist ekki trúa öðru en að ríkið taki við sér og fjármagni að fullu lögbundna þjónustu sveitar­ félaga. Ellegar séu loforð stjórnmálamanna um aukna þjónustu í viðkvæmum mála­ flokkum orðin tóm. ggunnars@frettabladid.is Sveitarfélögin sendu frá sér harð­ orða yfirlýsingu í síðustu viku um bága fjárhagsstöðu sveitarfélaga um allt land. Vandinn er rakinn til skorts á fjármagni frá ríkinu. Þar muni langmest um málaflokk fatl­ aðs fólks, sem sveitarfélögin segja fjársveltan. Heiða Björg Hilmisdóttir, nýkjör­ inn formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga og borgarfulltrúi Sam­ fylkingar, segir eðlilegt að fólk upp­ lifi almennt að lítið gerist í umræðu um mikilvæga opinbera þjónustu. „Nú hef ég verið á þessum vett­ vangi í átta ár og mér finnst óþarf­ lega margt enn á umræðustigi eftir allan þennan tíma. Og það er ekki gefandi eða uppbyggilegt. En mér finnst þetta standa upp á okkur stjórnmálamennina. Hvort sem við störfum á vettvangi sveitarfélaga eða á Alþingi. Við eigum að leysa þessa hluti.“ Heiða neitar að trúa því að ekki verði hægt að leysa þennan vanda sem hefur verið að magnast upp varðandi fjármögnun málaflokks fatlaðs fólks. „Það eru allir sammála um stöð­ una. Það vita allir að fjármagnið frá ríkinu dugar ekki til að veita þessa lögbundnu þjónustu. Þess vegna trúi ég ekki öðru en að það verði hægt að leysa þetta fyrir lok árs.“ Í framhaldinu telur Heiða ekki síður mikilvægt að ræða hvernig við ætlum að haga málum þegar ríkið ákveður að setja ný lög, auka þjónustu en sneiði svo hjá því að láta fjármagn fylgja með. „Því annars erum við bara að tala um innantóm loforð stjórn­ málamanna um bætta þjónustu sem engin leið er að standa við. Það bitnar á endanum á þeim sem sannarlega eiga rétt á þjónustunni og hafa bundið vonir við fyrirheit stjórnmálamanna,“ segir Heiða. Greining starfshóps félagsmála­ ráðherra um rekstur málaf lokks fatlaðs fólks sýnir að hallinn á mála­ flokknum árið 2020 nam 8,9 millj­ örðum króna. Samband sveitar­ félaga áætlar að hallinn nemi nú um 12 til 13 milljörðum króna. Innantóm loforð ef fjármagn vantar Heiða Björg Hilmisdóttir, formaður Sam- bands íslenskra sveitarfélaga, vill að ríkið bregðist hratt við í fjársveltum málaflokki fatlaðs fólks. FRÉTTABLAÐIÐ/ VALLI En þótt málaf lokkur fatlaðs fólks hvíli þungt á sveitarstjórnar­ fólki um þessar mundir þá segir Heiða fleira koma til sem valdi því að reksturinn sé í járnum. Stærsti einstaki liðurinn sé málaf lokkur fatlaðs fólks en það sé víðar í rekstri sveitarfélaga sem verkefni hafi vaxið og það hafi í för með sér auk­ inn kostnað. „Börn með fjölþættan vanda eru eitt dæmið. Það eru mjög dýr úrræði sem ekki var gert ráð fyrir í áætlun­ um sveitarfélaga því þau voru áður á höndum ríkisins. Svo eru í gildi samningar um rekstur hjúkrunar­ heimila víða um land. Þar vantar líka heilmikið upp á svo tekjur dugi fyrir útgjöldum og þar hafa sveitar­ félögin brúað bilið. Þegar allt leggist á eitt, tekjur dragast saman í gegnum heimsfar­ aldur og kröfur um aukna þjónustu aukast á sama tíma segir Heiða að sigið hafi á hratt á ógæfuhliðina í rekstrinum. „Við erum að taka á móti f lótta­ fólki frá Úkraínu. Göfugt verkefni sem við erum öll hlynnt. En sú þjónusta er veitt að stærstum hluta í sveitarfélögunum. Þar hefur heldur ekki fylgt fjármagn. Til dæmis til að hjálpa börnum á grunnskólaaldri sem þurfa að komast inn í nýtt tungumál og nýja menningu.“ Staðan sé því orðin þannig að mati Heiðu að sveitarfélög neyðist til að draga úr fjárfestingum, fresta viðhaldi og rifa seglin í þjónustunni. „Við getum ekki haldið svona áfram. Þetta ríka samfélag verður að fara að ákveða hvar við ætlum að forgangsraða fjármunum. Það er auðvelt að tala um að skera niður en hverju ætlum við að fórna? Það er eilífðarverkefni sveitarfélaganna að finna út úr því hvernig best er að standa að þjónustu og rekstri. Ein leiðin er til dæmis að fækka starfs­ fólki en þá má ekki gleyma því að f lestallt starfsfólk sveitarfélaga veitir nærþjónustu. Ef það hverfur á braut þá finna íbúarnir óhjákvæmi­ lega fyrir því. En það er bara staðan sem er uppi ef ekkert verður að gert,“ segir Heiða Björg að lokum. n olafur@frettabladid.is Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri segist vona að ekki muni þurfa frekari vaxtahækkanir til að hemja verðbólgu hér á landi. Ásgeir og Rannveig Sigurðar­ dóttir, varaseðlabankastjóri pen­ ingastefnu, kynntu í gærmorgun ákvörðun peningastefnunefndar um að hækka stýrivexti um 0,25 prósent. Aðspurður sagði Ásgeir á fund­ inum að hann sæi jákvæð merki í fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnar­ innar, sem gerir ráð fyrir hátt í 200 milljarða halla á næsta ári. Hann segir mikið undir því komið að ríkisfjármálastefnan, atvinnulífið og Seðlabankinn rói öll í sömu átt og segir Seðlabankann ekki munu hika við að hækka vexti enn frekar ef tilefni verði til þess. Ásgeir og Rannveig segja verð­ bólgu spá bankans frá því í ágúst hafa verið of svartsýna, verðbólga hjaðni nú hraðar en þá var búist við. Ásgeir segir horfur í því að hér á landi dragi úr hagvexti á komandi mánuðum og misserum vegna vandræða í efnahagslífi helstu við­ skiptaríkja okkar sem muni óhjá­ kvæmilega hafa áhrif hér á landi, efnahagshremmingar erlendis hafi neikvæð áhrif á útflutningsgreinar okkar og ferðaþjónustuna. Ásgeir segir athyglisverða þá hug­ mynd að beita séreignarsparnaði sem tæki gegn þenslu en efast um að sátt yrði um slíkt. Hann segir Seðla­ bankann beita mörgum tækjum gegn verðbólgu, sú barátta sé til að vernda kaupmátt í þágu heimila og fyrirtækja. n Frekari hækkanir vonandi óþarfar Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri vonast til að vaxtahækkunin nú sé sú síðasta. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK 12 Fréttir 6. október 2022 FIMMTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐMARKAÐURINN FRÉTTABLAÐIÐ 6. október 2022 FIMMTUDAGUR

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.