Fréttablaðið - 06.10.2022, Blaðsíða 21
KYNN INGARBLAÐ
ALLT
FIMMTUDAGUR 6. október 2022
Marilyn Monroe með manni sínum
Arthur Miller. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
thordisg@frettabladid.is
Augu heimsins beinast enn og
aftur að kynbombunni Marilyn
Monroe, 60 árum eftir dauða
hennar. Ástæðan er kvikmyndin
Blonde sem Netflix frumsýndi í
síðustu viku um ævi kvikmynda-
stjörnunnar. Myndin er byggð á
samnefndri sögu Joyce Carol Oates
og með hlutverk Marilyn fer kúb-
verska leikkonan Ana de Armas.
Í myndinni er kafað ofan í erfiða
tíma í lífi stjörnunnar, þar á meðal
æskuárin og baráttu hennar við
læknadóp sem kostaði hana lífið.
Hjónaböndin með hafnabolta-
hetjunni Joe DiMaggio og leik-
skáldinu Arthur Miller eru einnig í
sviðsljósinu.
Eftir að hafa séð myndina velta
margir fyrir sér hvort Marilyn
hafi í raun orðið barna auðið, en í
raun og veru eignaðist hún engin
börn þó að hún hafi þráð móður-
hlutverkið, þrátt fyrir erfiða æsku
vegna vanhæfni eigin foreldra.
Hún var sett í fóstur og kynntist þá
ævintýraljóma kvikmyndanna.
„Mér líkaði ekki vægðarlaus
veröldin í kringum mig,“ sagði
Marilyn í viðtali við tímaritið Life
árið sem hún dó. „Sumar fóstur-
fjölskyldurnar sendu mig í bíó
til að losna við mig úr húsinu og
þar sat ég dagana langa og fram á
kvöld. Ég elskaði að sitja á fremsta
bekk, lítil stúlka frammi fyrir risa-
stóru hvíta tjaldinu.“
Marilyn Monroe missti þrisvar
fóstur á meðan hún var gift Arthur
Miller. n
Vægðarlaus
veröld ljósku
G. Erla Leifsdóttir, eigandi Timberland, með The Original Yellow Boot, frægasta skó Timberland sem verður 50 ára á næsta ári. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Grænn og betri heimur fyrir alla
Í tilefni tuttugu ára afmælis Timberland á Íslandi var Alzheimersamtökunum afhent höfð-
ingleg gjöf að upphæð ein milljón króna við hátíðlega athöfn í Timberland í Kringlunni. 2
QUICK CALM
Vellíðan - skerpa
Fæst í Fjarðarkaup, www.celsus.is
FLJÓTVIRKT
FRÁBÆR
MEÐMÆLI