Fréttablaðið - 06.10.2022, Side 22
Allt er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og
umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit-
stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Guðmundur
Hilmarsson, gummih@frettabladid.is s. 550 5766 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir,
sandragudrun@frettabladid.is, s. 550 5762 | Starri Freyr Jónsson starri@frettabladid.is,
s. 550 5767 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768
Útgefandi:
Torg ehf.
Ábyrgðarmaður:
Jón Þórisson
Sölumenn:
Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652,
Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654,
Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 694 4103.
„Samfélagsleg ábyrgð hefur frá
fyrstu tíð verið mikilvæg hjá
Timberland og við leggjum áherslu
á að koma á framfæri markmiðum
og aðgerðum sem Timberland
vinnur að, en þar má nefna að
framleiðslan verði kolefnisjöfnuð
árið 2030,“ segir Guðrún Erla
Leifsdóttir, eigandi Timberland á
Íslandi.
Erla segir Timberland ávallt hafa
leitast við að lágmarka áhrif fram-
leiðslunnar á umhverfið og einnig
tekið þátt í ýmsum verkefnum,
bæði í Bandaríkjunum og ekki
síður víðs vegar um heiminn þar
sem vörur fyrirtækisins eru fram-
leiddar.
„Í dag er nánast öll bómull til
framleiðslunnar lífrænt ræktuð og
þar með er notað minna vatn og
minna af eiturefnum við ræktun-
ina. Þá er fóðrið í f lestum skóm
unnið úr plastúrgangi, dúnninn í
vetrarúlpunum er endurunninn
og svona mætti lengi telja,“ greinir
Erla frá.
8.000 kílómetra tréveggur
Timberland hefur um áratuga-
skeið verið leiðandi í umhverfis- og
samfélagsmálum, bæði í gegnum
framleiðsluna, með stuðningi við
bændur og framleiðendur, og í ein-
stökum verkefnum þar sem börn
og fullorðnir fá gefins skó og fleira.
„Um allan heim er fjöldi verk-
efna í gangi hjá Timberland. Þar
sem loftslagsmálin eru í dag afar
brýn er eitt verkefnanna, sem
lögð er mikil áhersla á um þessar
mundir, ræktun trjáa og er mark-
miðið að gróðursetja 50 milljónir
trjáa á næstu fimm árum. Þetta
verkefni er unnið með nokkrum
félögum í ýmsum heimsálfum
og meðal annars á að reisa 8.000
kílómetra langan trévegg yfir
þvera Afríku,“ upplýsir Erla um
verkefnið sem kallast „The Great
Green Wall“.
„Verkefnið felst meðal annars
í því að efla bændur og kenna
þeim nýjar aðferðir við ræktun til
að berjast gegn áhrifum þurrka
og loftslagsbreytinga. Þá hefur
Timber land ávallt lagt ríka áherslu
á aðbúnað verkafólks í verk-
smiðjum framleiðenda, komið
að mörgum verkefnum þar sem
skóm og fatnaði er útdeilt á meðal
þeirra sem minna mega sín, og svo
framvegis. Hér á landi hefur félagið
stutt ýmis mannúðarmál í gegnum
árin en því miður höfum við ekki
enn komið því í verk að rækta land
eða skóga, en það kemur vonandi
að því,“ segir Erla.
Hlúð að heilabiluðum
Ástæða þess að Erla og eiginmaður
hennar, Samúel Guðmundsson,
ákváðu að gefa Alzheimersamtök-
unum eina milljón króna í tilefni
20 ára afmælisins er persónuleg.
„Við búum í Hafnarfirði þar sem
samtökin opnuðu nýlega glæsi-
lega aðstöðu í gamla St. Jósefs-
spítalanum fyrir fólk sem greinst
hefur með heilabilunarsjúkdóm.
Oddfellow-samtökin gáfu Alz-
heimer samtökunum alla vinnu við
endurnýjun húsnæðisins, sem er
einkar glæsilegt. Þar ætti að vera
hægt að hlúa vel að þeim sem leita
til samtakanna,“ segir Erla.
Í húsnæði samtakanna er jafn-
framt rekin ný þjónustueining
sem fengið hefur nafnið Seiglan,
þar sem fólki sem er nýlega greint
með heilabilunarsjúkdóm er veitt
þjónusta.
„Um er að ræða mjög mikil-
vægan hlekk í vegferð fólks sem
greinist með heilabilunarsjúk-
dóma því virkni er mikilvæg frá
fyrsta degi. Í Seiglunni er unnið
eftir hugmyndafræði iðjuþjálfunar
og markvisst hvatt til og unnið
með líkamlega, hugræna og félags-
lega virkni, en allt eru það þættir
Hér má sjá Erlu og Samúel, eigendur Timberland, afhenda Alzheimersamtökunum milljón í tilefni 20 ára afmælis Timberland á Íslandi. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Vetrarlínan í skóm Timberland er æðisleg og fæst nú í hvítu, svörtu og með háum hælum.
Verslanir
Timber land eru
fullar af frábær-
um herrafatnaði
fyrir veturinn;
bómullarbolum,
skyrtum, hlýjum
og góðum
peysum og
úlpum.
FRÉTTABLAÐIÐ/
ANTON BRINK
tækifæri til að taka við þessari
góðu verslun og tryggja að Timber-
land-vörur verði áfram í boði hér
á landi.
„Með því teljum við okkur geta
lagt okkar af mörkum við að fram-
fylgja markmiðum Timberland um
betri nýtingu auðlinda og grænni
heim fyrir alla. Framlag okkar til
Alzheimersamtakanna er bara lítill
hluti af því fé sem þarf til að reka
samtökin og þar eru fjölmargir
sjálfboðaliðar sem gefa vinnu sína
til að gleðja samborgara sína. Það
er virkilega fallegt að slíkt skuli enn
vera við lýði hér á landi.“ n
Timberland er í Kringlunni og
Smáralind, og í vefversluninni
timberland.is
sem læknavísindin hafa sýnt fram
á að skipta verulega miklu máli
þegar kemur að því að hægja á
sjúkdómsferlinu. Það er okkar von
að framlag okkar verði grunnur að
afþreyingarsjóði fyrir skjólstæð-
inga Seiglunnar,“ segir Erla.
Óbilandi trú á Timberland
Timberland á Íslandi rekur þrjár
verslanir; í Kringlunni, Smáralind
og netverslunina timberland.is.
„Verslunin í Smáralind var
opnuð í júní í sumar og hefur
fengið mjög góðar viðtökur.
Verslunin í Kringlunni er nánast
óbreytt frá stofnun árið 2002
og hefur allt annað og hlýlegra
yfirbragð en nýja verslunin í
Smáralind, sem er mjög björt og
falleg. Við grínumst stundum með
það að okkar stærsta framlag til
samfélagslegrar ábyrgðar sé að
hafa ekki endurnýjað verslunina í
Kringlunni,“ segir Erla og hlær.
Nú er vetur konungur á næsta
leiti og allar verslanir Timberland
fullar af vetrarskóm fyrir alla fjöl-
skylduna.
„Við höfum fjölbreytt úrval af
frábærum herrafatnaði, mjúkum
bómullarbolum, skyrtum, hlýjum
og góðum peysum og úlpum. Skór
verða nú væntanlega alltaf aðal-
atriðið hjá Timberland og þá ekki
síst sá guli, The Original Yellow
Boot, sem verður fimmtíu ára á
næsta ári,“ segir Erla.
Í gegnum árin hafa bæst við
nýjar tegundir af skóm hjá Timber-
land og margir eiga sína uppáhalds
Timberland-skó.
„Okkar sérstaða hefur verið frá-
bær þjónusta og persónuleg aðstoð
við viðskiptavini. Við höfum verið
afskaplega heppin með fólkið
okkar og má þar nefna sérstaklega
Margitu Keire, verslunarstjóra í
Kringlunni, sem unnið hefur hjá
Timberland á Íslandi í níu ár, og
Þórgunni Guðgeirsdóttur sem
nýlega hóf störf sem verslunar-
stjóri í Smáralind. Þær hafa báðar
óbilandi trú á Timberland og hafa
afskaplega gaman af því að aðstoða
viðskiptavini við val á skóm eða
fatnaði, enda um gæðavörur að
ræða og því óhikað hægt að mæla
með þeim.“
Erla segir þau hjónin afskap-
lega þakklát fyrir að hafa fengið
Það
er
okkar von
að framlag
okkar
verði
grunnur að
afþrey-
ingarsjóði
fyrir skjól-
stæðinga
Seiglunnar.
2 kynningarblað A L LT 6. október 2022 FIMMTUDAGUR