Fréttablaðið - 06.10.2022, Page 40
Vorblótið á tónleik-
unum nú var í stuttu
máli sagt guðdómlegt.
Túlkunin einkenndist
af gríðarlegri snerpu og
hnitmiðaðri stígandi.
TÓNLIST
Sinfóníutónleikar
Verk eftir Önnu Þorvaldsdóttur,
Veronique Vöku, Daníel
Bjarnason og Igor Stravinskí
Einleikari: Sæunn Þorsteinsdóttir
Stjórnandi: Eva Ollikainen
Eldborg í Hörpu
fimmtudaginn 29. september
Jónas Sen
Tónleikar Sinfóníuhljómsveitar
Íslands á f immtudagsk völdið
byrjuðu skuggalega. Flutt var Cata-
morphosis eftir Önnu Þorvalds-
dóttur undir stjórn Evu Ollika-
inen. Nafn verksins er myndað úr
tveimur orðum, catastrophe eða
katastrófu og metamorphosis, það
er umbreytingu. Innblásturinn mun
vera gjöreyðing mannkyns ef ekkert
verður gert í umhverfismálum.
Tónlistin var heillandi. Hún
byrjaði á hálfgerðri ringulreið,
á sársaukafullum hljómum sem
líkt og misstu fókusinn í hvívetna.
Smám saman birti þó til og var það
ákaflega áhrifamikið. Hljómarnir
voru ekki af þessum heimi, stef-
brot og hendingar voru grípandi.
Magnþrungin undiralda skapaðist
sem var alveg einstök. Útkoman var
vímukenndur tónaseiður sem hitti
beint í mark.
Langloka sem komst ekki á flug
Næsta tónsmíð var ekki eins spenn-
andi. Þetta var sellókonsert eftir
Veronique Vöku og var Sæunn Þor-
steinsdóttir í einleikshlutverkinu.
Hugmyndin að tónlistinni mun
hafa vaknað þegar tónskáldið sá
gamalt kort af Síðujökli og bar það
saman við ástand hans í dag. Tón-
listin fjallaði því um svipað og fyrr-
nefnda verkið, en var bara ekki eins
kjarnyrt. Í staðinn var hálfgerð lang-
loka gruggugra hljóma sem virtust
aldrei hafa neinn sérstakan tilgang.
Það var eins og tónskáldinu lægi
ekki neitt á hjarta.
Einleikurinn var góður sem
slíkur, Sæunn spilaði yfirleitt af
nákvæmni, en það hafði lítið að
segja. Hvergi voru laglínur, hvergi
var nein markverð hrynjandi,
hvergi var skáldskapur. Í staðinn var
bara marklaus, óspennandi áferð,
hvorki fugl né fiskur.
Dálítið útþynnt
Síðasta verk fyrir hlé var Bow to
String eftir Daníel Bjarnason. Það
er til í ýmsum útgáfum, allt frá fyrir
selló eingöngu og fyrir fullskipaða
sinfóníuhljómsveit eins og heyra
mátti núna. Upprunalega útgáfan
er mun einbeittari en sú sem hér
var boðið upp á. Fyrsti kaf linn,
með röddum mjög ólíkra hljóðfæra,
var dálítið útþynntur, það vantaði
ákveðnari heildarhljóm.
Í plokkkenndum öðrum kaf l-
anum var hljómsveitin ekki nægi-
lega samtaka til að skapa viðeigandi
áhrif, en hugleiðslukenndur loka-
kaflinn var f lottastur. Himneskar
laglínur sellósins við ofurveika
hljómsveitarhljóma voru einkar fal-
legar og hástemmdar. Sellóeinleik-
urinn var sömuleiðis hjartnæmur.
Slagsmál á frumflutningi
Eftir hlé var Vorblót eftir Stravinskí
á efnisskránni. Frumf lutningur
blótsins í París árið 1913 var afar
dramatískur og markar tímamót
í tónlistarsögunni. Þetta er ball-
ett og hann vakti hörð viðbrögð
vegna framúrstefnulegs tónmáls
og óvanalegra danshreyfinga. Menn
höfðu aldrei séð og heyrt annað eins
og margir urðu mjög reiðir. Eftir því
sem á leið flutninginn mögnuðust
upp lætin í áhorfendunum, og að
því kom að varla var hægt að heyra
tónlistina. Á endanum brutust út
blóðug slagsmál.
Vorblótið á tónleikunum nú var í
stuttu máli sagt guðdómlegt. Túlk-
unin einkenndist af gríðarlegri
snerpu og hnitmiðaðri stígandi.
Margbrotið tónmálið var útfært
snilldarlega af hljóðfæraleikur-
unum; hver tónn var á sínum stað.
Samspilið var hárnákvæmt og
heildarhljómurinn prýðilega mót-
aður. Lokahnykkurinn var svo
glæsilegur að maður fékk gæsa-
húð. n
NIÐURSTAÐA: Tónleikarnir voru
misjafnir fyrir hlé en svo rættist
úr.
Brjálæðislegt Vorblót
og gjöreyðing mannkyns
Staðarlista-
maður Sinfóníu-
hljómsveitar
Íslands, Sæunn
Þorsteinsdóttir,
frumflutti
nýjan selló-
konsert eftir
Veronique Vöku
undir stjórn Evu
Ollikainen.
MYND/HARI
n Listin sem
breytti lífi mínu
Tyrfingur
Tyrfingsson
leikskáld
segir lesendum
Fréttablaðsins
frá listinni sem
breytti lífi hans,
annars vegar
skáldsögu og
hins vegar leik-
sýningu.
„Mamma skipaði mér að lesa
Músina sem læðist eftir Guðberg
Bergsson þegar ég var tólf ára,
annars væri ekkert hægt að tala
við mig um bókmenntir. Ég man
að mér leið við lesturinn eins og
einhver hefði prílað ofan í sálina
á mér og lýst því hvernig hún
virkaði. Ótrúlegur texti.
Rambó 7 eftir Jón Atla í Þjóð-
leikhúsinu í leikstjórn Egils
Heiðars Antons Pálssonar hlýtur
að teljast gæjalegasta leiksýning
allra tíma. Egill Heiðar rúllaði
þessu flotta verki Jóns Atla upp
og Vesturport sprakk út, sýndi
eitthvað alveg nýtt í leik á ís-
lensku sviði, grunar mig. Auðvitað
dáðist fólk að þeim, fannst þau
ung og fögur en þau voru ekki síst
tæknitröll, flott fagfólk, allt hand-
verk upp á tíu, þau gáfu sér engan
afslátt.
Þegar ég sá Rambó 7 sat Björk
Guðmundsdóttir í salnum. Undir
lok verksins þrammar Ólafur Darri
um sviðið og það rymur í honum
þar til hann byrjar orga: „Björk,
Bjöörk, Bjööörk,“ og síðan garga:
„Björk motherfucker! Bjöööööörk
motherfucker!“ Salurinn nötraði
allur af skelfingu og sko, hópurinn
örvaðist, það var bara þannig.
Dásamlegt leikhús. Það fylgdi
sýningunni svo mikill nútími og
harka og frelsi og hún bjó til leyfi
sem við hin höfum geta tekið
okkur síðan. Mögnuð sýning.“ n
tsh@frettabladid.is
A! Gjörningahátíð hefst á Akureyri í
dag og stendur yfir til sunnudags. Er
þetta er í áttunda sinn sem hátíðin
er haldin. Tuttugu og þrír alþjóð-
legir listamenn taka þátt í hátíðinni
sem er sú eina á Íslandi þar sem
fókusinn er alfarið á gjörningalist.
„Við erum í raun eina hátíðin sem
sérhæfir sig einungis í gjörningalist
á Íslandi og þessi sena er ótrúlega
lítil í heiminum. Að gera þetta hér
á Akureyri er nánast fullkomið því
að listamennirnir sem koma héðan,
síðan Rauða húsið var á 8. ára-
tugnum, eru búnir að mennta fólk
í gjörningalist,“ segir Guðrún Þórs-
dóttir, einn skipuleggjenda.
Rauða húsið var frægt gallerí á
Akureyri í kringum 1980 þar sem
haldnir voru gjörningar, tónleikar,
myndlistarsýningar og annað.
„Að hafa svona hátíð skiptir svo
miklu máli til að gefa vítamín inn
í samfélagið. Þannig að það sem
stendur upp úr á þessari hátíð er í
rauninni bara að við séum að halda
þetta, það er bara frábært,“
segir Guðrún.
Á A! Gjörningahátíð
kennir ýmissa grasa
o g e n d u r s p e g l a
gjörningarnir nán-
ast allar listgreinar,
allt frá myndlist og
sviðslistum til tón-
listar og ritlistar.
„Það sem gjörninga-
listin hefur er að hún
getur í rauninni sam-
einað öll listformin í
einn performans. Það
er auðv itað ek ker t
markmið en við höfum
reynt þessi síðustu ár að
hafa listafólk úr öllum listgreinum.
Sviðslist, myndlist, ritlist og í ár
erum við með sirkuslistamenn sem
koma frá Króatíu,“ segir Guðrún.
Hún nefnir sérstaklega rússnesku
listakonuna Olyu Kroyter sem er
búsett í Skagafirði.
„Olya er kanóna og er
með útigjörning þar
sem hún mun labba í
gegnum bæinn og í
gegnum Akureyrar-
kirkju. Það er engin
helgislepja í því samt
en kannski pínu heil-
agt að fá að ganga þar
í gegn,“ segir Guðrún.
Aðr ir l ist amenn á
hátíðinni eru Áki Sebasti-
an Frostason, Dýrfinna
Benita Basalan, Kaktus,
Pastel ritröð, Rösk, Tri-
cycle Trauma, Örn Alex-
ander Ámundason ofl.
Dagskráin fer fram víða um Akur-
eyri og frítt er inn á alla viðburði. n
Vítamínsprauta inn í samfélagið
Guðrún Þórsdóttir,
einn skipuleggjenda A!
Gjörningahátíðar.
MYND/AÐSEND
30 Menning 6. október 2022 FIMMTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐMENNING FRÉTTABLAÐIÐ 6. október 2022 FIMMTUDAGUR