Austurglugginn - 06.09.2007, Page 6
6 AUSTUR • GLUGGINN
Fimmtudagur 6. september
Ekkert getur stuðlað
jafnvel að hag-
vexti til lengri tíma
og samgöngur og
menntun. Fyrir seinustu kosn-
ingar velti stór hluti kjósenda
á Austurlandi fyrir sér hvað
flokkarnir væru tilbúnir til að
gera í samgöngumálum. Það er
athyglisvert að enginn flokk-
anna, eða frambjóðendur, komu
fram með aðdáunarverðar
hugmyndir um uppbyggingu
samgangna þar sem þær eru
verstar og erfíðastar. Komið
var fram með varfærnislegar
tillögur í samgöngumálum sem
einkenndust af skammsýni
og ótta við það að takast á við
raunveruleikann. Enginn fram-
bjóðandi í Norðausturkjördæmi
þorði að takast á við hugmyndir
margra framsýnna sveitarstjórn-
armanna um Samgöng, sem
er jarðgangnaröð á Austijörð-
um. Hins vegar var stuðst við
varfæmishugmyndir þar sem
frambjóðendurnir reyndu að
taka undir stefnulausa uppbygg-
ingu á víð og dreif, m.a. af ótta
við hrepparíg og togstreitu milli
byggðarlaga. Það sem eftir situr
nú er sundurlaus samgönguáætl-
un fyrir kjördæmið. Enginn
þingmaður kjördæmisins virð-
ist hafa þá skoðun að stórstígar
og hraðar framkvæmdir í sam-
göngumálum hafi stórfenglega
þýðingu varðandi búsetu- og
atvinnuskilyrði í íjórðungnum.
Hafi einhver þingmaður fjórð-
ungsins þá skoðun, þá þorir
hann einhverra hluta vegna alls
ekki að koma fram með hana og
berjast fyrir henni með kjafti og
klóm. Kannski taka þingmenn
kjördæmisins frama í þingflokk-
um og nefndum fram yfir alvöru
V_______________________
hugsjónir sem geta stuðlað að
uppbyggingu Austurlands.
Þegar Síminn var seldur var
núkilvægasta tækifæri lands-
byggðarinnar kastað á glæ. I
stað þess að nýta fjármunina
til að klára samgöngukerfí Is-
lands var ákveðið að ráðast í
tugmilljarða byggingu hátækni-
sjúkrahúss. Enginn veit einu
sinni hvað hátæknisjúkrahús er.
Almenningur veit ekki betur en
svo að Landspítalinn sé ágætis
sjúkrahús með fínan tækjakost,
en vanti reglulega fjármuni til
að geta þjónustað sjúklinga sína
ágætlega. Hví þarf þá að bæta
við báknið og framleiða fleiri
ijárvana stofnanir? Þingmenn
landsbyggðarinnar sátu og
brostu í kampinn þegar stjórn-
málamenn sem nú eru flúnir af
hólmi tóku þessar ákvarðanir án
nokkurrar skynsemi. Meira að
segja var Alfreð Þorsteinsson
valinn til að sjá um byggingu
hátæknisjúkrahúss, sennilega
vegna þess hversu vel honum
hafði tekist að fara langt fram úr
kostnaðaráætlunum við bygg-
ingu glæsihallar Orkuveitunnar
í Reykjavík.
Nú hafa landsbyggðarþingmenn
Samfylkingarinnar og Sjálf-
stæðisflokksins tækifæri til að
gera breytingar á áformum fyrri
ríkisstjórna og fara fram á að
fjármunir sem urðu til við sölu
Símans verði einnig notaðir í
mikilfenglega uppbyggingu á
samgöngukerfí landsbyggð-
arinnar. Sjái þeir ekki þörf fyrir
það, hafa þeir í það minnsta
tækifæri til að setja fram kröfu
um að fagaðilar stjómi bygg-
ingu hátæknisjúkrahús, en ekki
sérvaldir flokksgæðingar.
Austur*gluggmti
Póstfang: Brekkugata 9, 730 Reyðarfjörður
Útgefandi: Útgáfufélag Austurlands ehf.
Umbrot & prentun: Héraðsprent
Auglýsingastjóri: Erla Sigrún Einarsdóttir 477 1571 - 891 6484 - eria@agl.is
Ritstjóri & ábyrgðarmaður: Einar Ben Þorsteinsson 896 5513 - frett@agl.is
Blaðamaður: Gunnar Gunnarsson 477 1755 - 848 1981 - frett@agl.is
Fréttaritari á Vopnafirði - Bjarki Björgólfsson 85 49482 - kompan@vortex.is
Einar Már Sigurðarson um ályktun SUF:
„Margur heldur
mig sig!”
í síðustu viku sendi Samband ungra
Framsóknarmanna frá sér ályktun
þar sem kallað var eftir fram-
kvæmd Samfylkingarinnar á lof-
orðum til námsmanna í framhalds-
skólum fyrir seinustu kosningar. I
loforðunum fólst að Samfylkingin
vildi fella niður innritunar- og efn-
isgjöld í framhaldsskólana. í álykt-
uninni segir að ábyrgðarlaust sé að
fara fram með loforð af af þessu
tagi sem hafi bein áhrif á fjárútlát
ungs fólks, og skorar stjórn SUF
á þingmenn Samfylkingarinnar að
standa við gefin loforð.
Ekki framkvæmt
daginn eftir
kosningar
Þegar Austurglugginn tók púlsinn á
Einar Már Sigurðarsyni þingmanni
Samfylkingarinnar fyrir Norðaust-
urkjördæmi fannst honum álykt-
unin einkennileg. “Margur heldur
mig sig! Framsóknarflokkurinn
hefur í áraraðir gengið á bak kosn-
ingaloforða sinna, og sett sig í skjól
Sjálfstæðiflokksins þegar spurt
Jakob Hrafnsson
hefur verið um efndir. Það er ekki
hægt að fara fram á það að hægt
sé að koma hlutum sem þessum
í framkvæmd daginn eftir kosn-
ingar. Það er skýrt hvað við ætlum
að gera í þessum málum, og það
kemur fram í stjómarsáttmálanum
að stefnt er að því að nemendur í
framhaldsskólum fái stuðning til
kaupa á námsgögnum.”
EBÞ
Guðmundur Bjarnason
ráðinn verkefnisstjóri
Guðmundur Bjarnason, fyrrver-
andi bœjarstjóri Fjarðabyggðar,
hefur verið ráðinn verkefnisstjóri í
stjórnunar- og stefnumótunarteymi
Alcoa Fjarðaáls í Reyðarfirði.
Guðmundur hefur viðamikla
reynslu af sveitastjórnarmálum og
stjómsýslu og mun hann meðal
annars hafa yfímmsjón með verk-
efnum sem snúa að samskiptum
við ríkið og sveitarfélög.
Guðmundur var bæjarstjóri í Nes-
kaupstað frá árinu 1991 til ársins
1998. Hann gegndi lykilhlutverki
við sameiningu sveitarfélaga á
Austfjörðum sem varð að veruleika
árið 1998 og tók við starfi bæj-
arstjóra Fjarðabyggðar eftir sam-
eininguna. Hann gegndi því starfi
til haustsins 2006. Guðmundur
var varabæjarfulltrúi og síðar bæj-
arfulltrúi fyrir Alþýðubandalagið í
Neskaupstað á ámnum 1974-1998.
Guðmundur hefur setið í fjölmörg-
um stjórnum og ráðum í gegnum
tíðina á vegum hins opinbera,
fyrirtækja og knattspymuhreyf-
ingarinnar. Hann sat m.a. í stjóm
Guðmundur Bjarnason.
Sambands sveitarfélaga í Aust-
urlandskjördæmi 1991-1994, í
stjóm Sambands íslenskra sveit-
arfélaga 1994-2002 og var varafor-
maður þess 1998-2002. Hann var
starfsmannastjóri Síldarvinnslunar
í Neskaupsstað 1977-1991 og
kennari við Gagnfræðaskólann í
Neskaupsstað 1973-1977.
Guðmundur útskrifaðist með BA
próf í þjóðfélagsfræði frá Háskóla
íslands árið 1975. Fréttatilkynning