Austurglugginn


Austurglugginn - 06.09.2007, Blaðsíða 7

Austurglugginn - 06.09.2007, Blaðsíða 7
Fimmtudagur 6. september AUSTUR • GLUGGINN 7 Spurning vikunnar Spurt í leikskólanum Kærlbær á Fáskrúðsfirði. Hvað finnst þér skemmtileg- ast að gera á Fáskrúðsfirði? Malen Valsdóttir, 4 ára Leika mér í Mömmó. Karítas Embla Óðinsdóttir, B ára Leika mér I sandkassanum og að slá með pabba. Lúðvík Héðinn Gunnarsson, 5 ára Að hjóla. Anya Hrund Shaddoch, 5 ára Þegar er nammidagur og á trampólín. Michael Warin, 4 ára Það er skemmtilegast að fara í Úlfaleik. Umspil um sæti í 2. deild karla: Sigur Leiknismanna breytti engu Úr leik Hugins og BÍ/Bolungarvík á isafirði á laugardag. Mynd: Hálfdán Hálfdánsson. Leiknir F. sigraði Tindastól 3-2 í Fjarðahöllinni á Reyðarfirði á þriðjudagskvöld. Leikurinn var seinni leikur liðanna í umspili um laust sæti í 2. deild karla að ári. Tindastóll hafði unnið fyrri leik liðanna á Sauðárkróki á laugardag- inn. Það var erfitt verkefni sem beið Leiknismanna, því þeir þurftur að sigra leikinn með þremur mörkum til að komast áfram í keppninni. Eins marks sigur Leiknis reynd- ist því miður ekki nóg, og heldur félagið áfram að spila í neðstu deild að ári. Huginn í vondum málum Huginsmenn áttu einnig að spila á sama tíma á þriðjudag, en leiknum var frestað til miðvikudags þar sem ekki gekk að fljúga gestunum frá Isafirði þennan dag. Huginsmenn höfðu lagt upp í langt ferðalag til Isafjarðar á laugardag og ekki haft erindi sem erfiði og töpuðu þeir fyrir sameinuðu liði ísfirðinga og Bolvíkinga 3-1. Mark Hugins á Isafirði gæti reynst dýrmætt og því ekki öll nótt úti enn. EBÞ Vissir þú...? Að árið 1997 voru skráðir 2.161 nemendi í grunnskólana á Austurlandi, árið 2006 hafði þeim fækkað niður 1.882. Að árið 1997 voru skráðir 24.031 nemandi í grunnskólana á Höfuðborgarsvæðinu, árið 2006 hafði þeim fjölgað í 26.228. Að árið 1999 var heildarfjöldi nemenda á framhaldsskólastigi á Austuriandi 889, árið 2006 hafði þeim fjölgað í 1.058. Að árið 1996 brautskráðust 94 austfirskir stúdentar, árið 2005 hafði þeim fjölgað í 105. Aldrei hafa verið brautskráðir eins margir og árið 2003 eða 136 talsins. Að á árunum 1996-2005 brautskráðust 624 kvenstúdentar og einungis 360 karlstúdentar frá Austurlandi. Kvenstúdentar á tímabilinu eru því 73% fleiri en karlstúdentar. Áskriftarseðill Austurglugginn er útbreyddasta fréttablað á Austurlandi sem flytur fréttir úr öllum fjórðungnum. Fylgstu með - pantaðu áskrift! Ég óska eftir áskrift að Austurglugganum Nafn áskrifanda: Heimilisfang: Póstáritun: Símanúmer: Verð í lausasölu kr. 350 / Áskriftarverð kr. 1.140 á mánuði (285 kr. eintakið) ~^\ Vísa/Euro [H Gíró Iffl Hœgt er að gerast áskrifandi með Pantaðu áskrift núna pví að senda tölvupóst á: erla@agl.is í síma: 8916484

x

Austurglugginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Austurglugginn
https://timarit.is/publication/1687

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.