Austurglugginn


Austurglugginn - 06.09.2007, Side 9

Austurglugginn - 06.09.2007, Side 9
Fimmtudagur 6. september AUSTUR • GLUGGINN 9 Bragðlaust á Vilhjálmsvelli Frekar tilprifálítill leikur sem fór fram milli Hattar og Magna frá Grenivík í 2. deild karla á laugardag fyrir framan um 60 áhorfendur pegar Höttur landaði sigri 1-0. Magni berst hatrammlega fyrir veru sinni í deildinni. Það voru Hattarmenn sem voru mun betri aðilinn í leiknum og náðu að skapa sér nokkur ágætis skot- tækifæri í fyrri hálfleik. Allra besta marktækifæri leiksins fékk Denis Curic, sem var bestur Hattarmanna í leiknum, þegar hann komst einn inn fyrir vöm Magna en lét verja frá sér. Eina mark leiksins kom á 41. mínútu, þegar að Stefán Eyjólfsson skaut góðu langskoti neðst í vinstra markhornið á blautu grasinu. Leikurinn var heldur bragðdaufur það sem eftir lifði og náðu Hatt- armenn ekki að skora fleiri mörk þrátt fyrir að vera sterkari aðilinn í leiknum. Það hefði allt eins getað komið þeim í koll því í lok leiks- ins gerðu leikmenn Magna hríð að marki Hattarmanna sem þess vegna gat endað með marki. Með sigrinum treysti Höttur sig í sessi í deildinni og berst um sjötta sætið við Völsung, en eftir situr lið Magna í vandræðum á botni deild- arinnar. EBÞ Staðan í 2. deild karla 1 Haukar 16 11 5 2 Selfoss 16 10 3 3 ÍR 16 8 6 4 KS/Leiftur 16 8 6 5 Afturelding 16 8 1 6 Völsungur 16 6 2 7 Höttur 16 6 2 8 ÍH 16 2 4 9 Sindri 16 3 1 10 Magni 16 2 2 0 41 - 13 28 38 3 35 - 14 21 33 2 35 - 14 21 30 2 30- 17 13 30 7 24- 19 5 25 8 21 -23 -2 20 8 22-26 -4 20 10 21 -35 -14 10 12 17-58 -41 10 12 11-38 -27 8 \ Slúttmót Freyfaxa Lokamót ársins í hestamennskunni á Austurlandi Hestamannafélagið Freyfaxi heldur lokamót sumarsins í Stekk- hólma á laugardaginn. Mótið er jafhframt lokamót Töltmótaraðar Freyfaxa sem hófst í vor og verða sigurvegarar krýndir í öllum flokk- um. Fyrr í sumar var ráðgert að halda Opið Austurlandsmót en það mót féll niður vegna dræmrar þátt- töku. Nú verður hins vegar reynt á nýjan leik. A heimasíðu félagsins, www.freyfaxi.net, kemur fram að ætlunin sé að halda frjálslegt og skemmtilegt eins dags mót, þar sem menn gera upp sumarið í félagshúsinu í lok dagsins. EBÞ Blær frá Torfunesi tekin til kostanna á Fjórð- ungsmóti í sumur. Mynd: Jens Einarsson 1. deild karla Engin úrvalsdeild? Draumur Fjarðabyggðar um úrvalsdeildarsœti virðist úr sögunni eftir að íiðið tapaði gegn Leikni á Eskifjarðarvelli í seinustu viku. Fátt var um opin færi í fyrri hálf- leik en eftir því sem á hann leið virtust heimamenn ná betri tökum á leiknum. Það var því gegn gangi leiksins sem Leiknismenn komust yfir á lokamínútu hálfleiksins þegar Helgi Pétur Jóhannsson náði boltanum eftir að Hauki Ing- vari Sigurbergssyni skrikaði fótur. Helgi lagði boltann fyrir sig og skaut honum í fótlegg Andra Hjör- vars Albertssonar þaðan sem hann sveif í boga yfír Srdjan Rajkovic í markinu. Seinni hálfleikur fór að langmest- um hluta fram á vallarhelmingi Leiknismanna sem héngu eins og hundar á roði á forystunni. Vörn þeirra opnaðist nokkrum sinnum en leikmönnum Fjarðabyggðar tókst ekki að nýta þær glufur. Hættulegustu færin fengu Jón Gunnar Eysteinsson, sem skall- aði í þverslá eftir hornspymu og Jóhann Benediktsson, sem brenndi af dauðafæri eftir að Andri Hjörv- ar hafði rennt boltanum til hans frá markverðinum. Til að strá salti í sár Fjarðabyggðar virtist dómari leiksins lítinn áhuga hafa á að benda á vítapunktinn eftir að bolt- inn virtist í tvígang fara í hendur Leiknismanna innan teigs. Þegar fjórar umferðir em eftir er Fjarðabyggð í fimmta sæti, níu stigum á eftir Fjölni sem er í þriðja sætinu en það veitir úrvalsdeild- arsæti. Þorvaldur Örlygsson, þjálfari Fjarðabyggðar, var sáttur við frammistöðu sins liðs í síðari hálf- leik. „Við spiluðum vel en gáfum mark. Við héldum boltanum á jörðinni og létum hann rúlla og sendingarnar voru góðar. Liðið sem við spiluðum á móti átti ekki skot á markið í seinni hálfleik, ekki horn, ekki innkast á okkar vall- arhelmingi en fór samt heim með þrjú stig. Svona er fótboltinn." Einn gegn mörgum. Jón Gunnar Eysteinsson leitar að leið i gegnum vörn Leiknis. Mynd: GG Staðan í 1. deild karla 1 Þróttur R. 18 14 1 3 39 - 17 22 43 2 Grindavík 18 13 2 3 35 - 16 19 41 3 Fjölnir 18 12 3 3 51 - 19 32 39 4 ÍBV 18 9 5 4 31 - 17 14 32 5 Fjarðabyggð 18 9 3 6 20 - 13 7 30 6 Þór 18 5 4 9 28-34 -6 19 7 Leiknir R. 18 4 6 8 18-24 -6 18 8 Stjaman 18 4 4 10 34-39 -5 16 9 Njarðvík 18 3 7 8 17-26 -9 16 10 Víkingur Ó. 18 4 4 10 20-31 -11 16 11 Reynir S. 18 3 6 9 21 -49 -28 15 12 KA 18 4 3 11 11-40 -29 15

x

Austurglugginn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Austurglugginn
https://timarit.is/publication/1687

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.