Austurglugginn


Austurglugginn - 06.09.2007, Qupperneq 10

Austurglugginn - 06.09.2007, Qupperneq 10
10 AUSTUR • GLUGGINN Fimmtudagur 6. september Foreldrasamstarf í skólum hefur áhrif Þegar barn hefur skólagöngu sína verða foreldrarnir sjálfkrafa með- limir íforeldrafélagi. A þess vegum eða á vettvangi foreldra í grunn- skólum er einnig kosið i þriggja manna foreldraráð sem starfar með skólastjóra. Foreldraráð eru skipuð samkvæmt grunnskólalög- um og eiga að tryggja foreldrum leið til að hafa áhrif á skólastarfið. Foreldrafélög eru hins vegar frjáls félagasamtök og starfa eftir eigin lögum. á stefnumótun eykst ábyrgð þeirra hvað þetta varðar. Það er ljóst að góð foreldrasamvinna og samstarf heimila og skóla hefur því mikil forvamaráhrif. Samstarfið hefur verið í mótun hér á landi í rúm 30 ár og gengur ekki alltaf snuðrulaust fyrir sig. Með samvinnu og aukinni reynslu hefur myndast ákveðið verklag sem flestir skólastjórar hafa tileiknað sér með tilkomu for- eldraráða í grunnskólum. Ráðin em yfirleitt skipuð 3 foreldmm sem eiga böm í skólanum og em ekki “Það er Ijóst að góð foreldrasamvinna og samstarf heimila og skóla hefur pví mikil forvarnaráhrif. Samstarfið hefur verið í mó- tun hér á landi í rúm 30 ár og gengur ekki alltaf snuðrulaust fyrir sig. Með samvinnu og aukinni reynslu hefur myndast ákveðið verk- lag sem flestir skólastjórar hafa tileiknað sér með tilkomu foreldraráða ígrunnskólum.” segir Helga Margrét Guðmundsdóttir V_________________________________________J F oreldr asamvinna leiðir til betri líðan Rannsóknir sýna að ávinningur af foreldrasamvinnu og góðu sam- starfi heimila og skóla leiðir til betri líðan bama, betri námsárang- urs og minna brottfalls úr skóla þegar á líður skólagöngu bamsins. Það er því mikið í húfi að jákvæð viðhorf ríki milli aðila, menn taki höndum saman og foreldrar séu virkir í skólastarfmu. Kennarar benda á að mikilvægt sé að foreldrar fylgist vel með námi bama sinna og margir umsjóna- kennarar hafi átt góða samvinnu við foreldra um að bæta bekkj- arbrag þar sem þessir aðilar hafa haft samstarf um nám, leik og starf innan sem utan skólans. Forvarnaráhrif foreldrasamvinnu Samstarf foreldra er grasrótarstarf og eflir ekki bara og styrkir sjálfs- mynd bama og unglinga heldur getur haft víðtæk áhrif á mannlíf og hverfisvitund fólks. Með tímanum gárast áhrif þess ekki bara út í nán- asta samfélag skólans heldur þjóð- lífið allt. Með aukinni vitundar- vakninu meðal foreldra um þau áhrif sem samstarfið getur hafl t.d. starfsmenn skólans. Foreldrum ber skylda til að kjósa fulltrúa í ráðið á sínum vettvangi og þannig er for- eldrum sköpuð formleg leið til að hafa áhrif á starf og stefnumörkun skólans. Nokkur blæbrigðamunur er á bekkjarstarfi og foreldrasam- starfi eftir skólum, hverfum og landshlutum. í 16. grein grunnskólalaga nr 66/1995 segir: “Foreldraráð fjallar um oggefur umsögn til skól- ans og skólanefndar um skólanám- skrá og aðrar áœtlanir sem varða skólahaldið ogfylgist með að áætl- anir séu kynntar foreldrum svo og með framkvœmd þeirra. ” Skólastjóri starfi með foreldraráðum Skólastjórum ber að starfa með foreldraráðum og veita þeim upp- lýsingar um starfið í skólanum. Foreldrar geta yfirleitt séð á heim- síðum skóla hverjir eru í foreldra ráði viðkomandi skóla og þar er oft hægt að nálgast þar fund- argerðir foreldraráðsins. Foreldrar eru hvattir til að kynna sér vel skólastarfið og koma hugmyndum sínum og ábendingum um það sem betur má fara til ráðsins eða í gegnum bekkjafúlltrúa og for- eldrafélög. Skólastarf og fjölskyldulíf eru ekki aðskildir þættir Nokkur sveitafélög greiða fyrir setu í foreldraráðum eins og önnur nefndarstörf og er það til fyrirmyndar. Foreldraráðin eða svæðaráð, þar sem eru fleiri en einn skóli, kjósa sér yfirleitt einn fulltrúa sem situr í skólanefnd og hefur þar málfrelsi og tillögurétt. Þannig hafa foreldrar aðkomu að stjómsýslu skóla með beinum og óbeinum hætti. Við heyrum stundum vangaveltur um það hvort foreldrar séu hæfir til að koma með þessum hætti að skólastarfinu og hvort rétt sé að foreldrar hafi “eftirlif ’ með skóla- haldinu eins og sumir vilja kalla það. Einhverjir spyrja líka hvort raunveruleg þörf sé á foreldraráð- um í grunnskólum og hvort sveit- arstjóm, skólanefnd, skólastjórar og starfsfólk skóla geti ekki verið umsagnaraðilar um eigin áætl- anir. Það er þó hverfandi skoðun að skólamir séu einfærir um það. Skólastarf og heimilislíf eru ekki tveir aðskildir pólar. Við sem störf- um í foreldrasamfélaginu og að forvömum höfum marg oft orðið vitni að því hvemig samstarf heim- ila og skóla og einmitt samvinna skólastjóra og foreldraráða hefur skilað góðum árangri, bætt skóla- starf og um fram allt bætt líðan bama í skólum sem hefur áhrif á Helga Margrét Guðmundsdóttir verkefnastjóri hjá Heimili og skóla - landssamtökum foreldra. allt fjölskyldulíf. Einnig hefúr ávinningur af samvinnu heimila og skóla margvísleg önnur áhrif bæði á aðbúnað skólanna og innra starf. Það þykir eðlilegt í nútímasam- félagi að þeim sem hagsmuna eiga að gæta sé gert kleift og skylt að taka afstöðu til mála sem þá varða og næst á eftir nemendum em for- eldrar stærsti hópurinn sem skólinn þjónar. Þannig verður lýðræðið virkara og þess vegna hvetjum við foreldra og aðstandendur bama til að. taka þátt í störfum foreldrafé- laga og kynna sér starfsemi þeirra núna í skólabyrjun. Virkir foreldrar - betri skóli. Vígsla reiðgerðis á Vopnafirði Hestamannafélagið Glófaxi var endurvakið snemma á árinu. Áhugamenn í félaginu hafa svo sannarlega ekki setið auðum höndum síðan. Grillað við reiðgerði Glófaxa á Vopnafirði Mynd: Bjarki Björgólfsson Glófaxi hefur nú nýlokið við fram- kvæmdir á nýju reiðgerði félagsins og vona menn að framkvæmdimar verði til þess að auka áhuga ungs fólks á hestamennsku. Við vígslu gerðisins var boðið til grillveislu þar sem séra Stefán Gunnlaugsson sagði nokkur orð og bað guð um að blessa reiðgerðið. BB

x

Austurglugginn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Austurglugginn
https://timarit.is/publication/1687

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.