Austurglugginn - 06.09.2007, Qupperneq 11
Fimmtudagur 6. september
AUSTUR • GLUGGINN 11
Níundi merarseðill
að norðan
Fyrir skemmstu las ég í dagblaði
grein eftir virtan dálkaritara, sem
einnig er þekktur pólitíkus og hér
að auki nýlega endurreistur alþing-
ismaður fari ég ekki því meiri villur
vega. Þetta er allra góðra gjalda
verð hugleiðing um náttúruvemd
og tjáir höfundur sig mjög andvígan
fyrirhugaðri virkjun Urriðafoss.
Ekki hægt að
reisa lón
1 pistli þessum hnaut ég um eina
málsgrein, er svo hljóðar: “Eftir
því sem ég fæ best skilið er gert ráð
fyrir að reisa lón fyrir ofan fossana,
sem veldur því að þeir hverfa og
koma aldrei aftur”. Ekki skal því
leynt hér, að ég mun vera einhver
mesti afglapi sem um getur varð-
andi verktækni hvers kyns, enda er
mér fyrirmunað að skilja hvernig
reisa megi lón. Eg þykist geta séð
fyrir mér veggi rísa, hallir og meira
að segja turna; en lón! Skyldi
ekki vilja hripa ögn úr svoleiðis
risvirki?
Kjöt af sláturfénaði
kryddast á fæti
Einhvem tíma í góða veðrinu í
júlímánuði voru okkur sögð þau
tíðindi í útvarpinu að kjöt af slát-
urfénaði, sem beitt væri á hvönn,
yrði miklu bragðmeira en ditto af
gripum er nærst hefðu á venjulegu
grasi. Þetta þóttu ntér miklar
fregnir og góðar, enda sá ég þegar
mér fyrir hugskotssjónum fjölda
fagnandi bænda planta þessari jurt
víðs vegar um beitilönd sin og bíða
síðan sláturtíðarinnar með pen-
ingablik í augum.
Sópurinn skrifar:
Bændurnir klappa af kæti
og kunna sér ekki læti.
Meðan sumarsól
signir norðurpól
kjöt þeirra kryddast á fæti.
Langtíburtistan
Þetta voru dagar mikilla tíðinda og
í Spegli útvarpsins, muni ég rétt,
var okkur greint frá mannlífi og
viðburðum í landi er sagt var heita
Langtíburtistan. Ekki festist sá
ffóðleikur í mínum hripleka haus.
A hinn bóginn tóku furðulegir
landafræðiþankar að grautast þar
og létu mig ekki í friði. Varð ég að
síðustu að kveða þennan ófögnuð
niður með einhverjum ráðum. Ur
þessu varð: Fáorð trúlofunarsaga
óþekktrar konu:
Hann bað mín og skrapp
svo til Burtistan
ég beið hans árlangt í Kjurtistan.
Þá bréf loks ég fékk,
en brjóst mitt tók skrekk
því að bréfið var stimplað
í Hvurtistan.
S.Ó.P
Prófanir á
vélbúnaði í Fljótsdalsstöð
Á heimasíðu Kárahnjúkavirkjunar
kemur fram að á föstudag lauk
rafmagnsprófunum á vél 3 í Fljóts-
dalstöð. Vélin var í fyrsta sinn
tengd raforkukerfinu og látin ganga
á rúmlega 22 MW í um 45 mínútur.
Þar með telst vél 3 “útskrifuð” þar
sem ekkert óeðlilegt kom fram.
Fyrr í síðustu viku var vél 2 tengd
við kerfið prufunum lokið á sama
hátt. I framhaldinu hefjast prufanir
á vélum 4,5 og 6 á sama hátt. Búist
er við að prófanir vari út septem-
bermánuð. EBÞ
Austurlandið.is
fékk nýjan eiganda
í síðustu viku var útgáfufélagið
íslensk fréttablöð ehf. sem rekur
vefina austurlandið.is og norð-
urlandið.is selt til nýs eiganda. Nýr
framkvæmdastjóri er Kristján Örn
Elíasson í Reykjavík og á rekst-
urinn að haldast óbreyttur að mestu.
Davíð Sigurðarson fráfarandi fram-
kvæmdastjóri hefur ráðið sig til
starfa hjá Skessuhorni. EBÞ
Anna Valgerður Hjaltadóttir
Matgæðingur vikunnar að þessu sinni er
Anna Valgerður Hjaltadóttir frá Egilsstöðum.
Forréttur
Gæsalifra pate
500 gr lifur og hjörtu
200 gr svína spik
300 gr svínahakk
2 stk egg
1 'A dl rjómi
3 sneiðar fransbrauð án skorpu skomar í teninga
3 stk hvítlauksgeirar
'/2 tsk timian
'A tsk rósmarín
'/2 tsk basilikum
5 msk sherry eða púrtvín
salt og svartur pipar
rósapipar
Hakkið lifur, hjörtu, spik og hvítlauk, hrærið saman ásamt kjöthakki,
eggjum, rjóma, brauðteningum, kryddi og sherrýi. Setjið í form. Rósapip-
arinn er mulinn og stráð yfir - lokið forminu með álpappír, sett í ofnskúffu
og bakað í vatnsbaði 1 /2 klst við 165° álpappírinn tekinn af og bakað áfram
í 15-20 mín. Borið fram með góðri berjasultu.
Aðalréttur
Grillaðar hreindýralundir
2 stk hreindýralundir
Lundimar eru kryddaðar með salti, pipar og vill ijurtakryddi
Grillað 3-5 mín á hvorri hlið.
Meðlæti kartöflur rósakál og rifsberjasulta
Gráðostasósa
125 gr gráðostur
250 gr rjómaostur
2 msk rifsberja sulta
2 msk rjómi
2 tsk villijurtakrydd
Osturinn er bræddur við vægan hita, hrærður saman
og síðan sultu, kryddi og rjóma bætt í.
Desert
Bláberjaís
4 eggjarauður
4 eggjahvítur ( stíf þeyttar )
/21 rjómi ( þeyttur)
100 gr sykur
300 gr bláber og 100 gr bláberjasulta ( hrært saman )
Þeytið eggjarauður og sykur saman uns það er orðið ljóst og létt. Bætið
þá berjahrærunni út í og síðan þeytta rjómanum. Að lokum er eggjahvít-
unum hrært mjög varlega saman. Sett í frost, gott er að hræra í ísnum
fyrsta klukkutímann. Tekið úr frosti 'A klst. fyrir notkun og borið fram með
ferskum berjum.
Anna Valgerður skorar á sælkerann Svanhildi Hlöðversdóttur
rekstrarstjóra Söluskála KHB að vera nœsti Matgœðingur vikunnar.