Austurglugginn


Austurglugginn - 06.09.2007, Page 12

Austurglugginn - 06.09.2007, Page 12
12 AUSTUR • GLUGGINN Fimmtudagur 6. september Á fleygiferð um eilífðina með Guttormi Sigurðssyni „Best seller“ á svæðinu Guttormur Sigurðsson, frá Hall- ormsstað, sendi nýverið frá sér sína fyrstu bók, „A fleygiferð um eilífðina. “ Þar segir Guttormur frá tveimur árum í lífi sínu, fyrir um þrjátíu árum og spinnur sögur af samtíðamönnum saman við heimspekilegar vangaveltur. Aust- urglugginn tók hús á Guttormi og rœddi við hann um bókina, hið daglega streð og heimspekina. „Eg lýsi því sem gerðist í kringum mig og persónum sem ég kynnt- ist. Ég skrifa um skoðanir mínar og annað á þessu tímabili eins og ég upplifði það íyrir þrjátíu árum. Það segir þó kannski ekki mikið um skoðanir mínar í dag. Mig lang- aði að koma ýmsu á framfæri sem ég hef upplifað því mér finnst það sérstakt. Ég er líka að opinbera sjálfan mig því þetta er innri saga mín. I sögunni upplifi ég ýmislegt sem breytir skoðunum mínum og viðhorfum. Ég vildi koma því þannig á framfæri að mönnum þætti það skemmtilegt aflestrar og flétta því inn í sögur um atburði og persónur. Ég tel að ég fari almennt mjúkum höndum um nánast allar persónur sem fram koma í bókinni. I minningunni þykir mér vænt um þessar persónur þó ég geri pínulít- ið grín að þeim til að gera söguna skemmtilegri. Ég óttast því ekki slæm viðbrögð og þau sem ég hef fengið hafa ekki verið þannig. Ég er ekki að gera upp neinar sakir. Ég skrifa bókina sem sanna sögu þó hún sé með skáldlegu ívafi,“ segir Guttormur. Guttormur segist hafa reynt að skrifa bók fyrir ijörtíu árum, vís- indaskáldsögu byggða á frásögnum um týndu eyjuna Atlantis. Onæðið í Reykjavík var of mikið til að honum yrði nokkuð úr verki en eftir að hann fluttist vestur á Snæfells- nes dró hann fram pennan. Hann segist hafa skrifað bókina á stuttum tíma og hún hafi verið fullgerð fyrir tveimur árum. Tíminn frá því hann flutti austur fyrir um ári hafi verið nýttur í að fínpússa hana og finna útgefanda. „Ég sýndi Sig- urjóni Bjarnasyni handritið og hann hringdi í mig daginn eftir og sagðist vilja gefa bókina út. Ég er búinn að selja sjálfur hátt í hundrað eintök. Um daginn fór ég í Söluskálann til að hengja upp auglýsingu. Þar hitti ég mann og kunningja hans. Þeir keyptu allir bókina. Þar með hafði ég selt fjögur eintök við þetta eina borð. Ég ætla að reyna að selja bókina eitthvað sjálfur og vona að mönnum verði ekki hverft við þó ég banki upp á. Það yrði bara efni í aðra sögu ef mér yrði hent út. Ég fór eitt kvöld á Seyðisijörð og seldi Eg tel að ég fari almennt mjúkum höndum um nánast allar persónur sem fram koma í bókinni. í minni unni pykir mér vænt pessar persónur pó pínulítið grín að lera söguna ske md: GG sjö eintök á tveimur tímum. Ég fór bara í örfáar götur og ætla að fara aftur. Ég hélt þetta væri ekki bók fyrir unglinga en ég var beðinn um að lesa upp úr henni fyrir tíunda bekk Hallormsstaðaskóla og fékk mjög góðar viðtökur. Þau sögðu að hún væri „best seller á svæðinu" enda engin önnur bók í gangi.“ Kynslóðin sem sofnaði Guttormur tileinkar bókina ’68 kynslóðinni, sem hann segir á bók- arkápu hafa risið upp en sofnað svo aftur. „Kynslóðin sem vaknaði til vitundar um þjóðfélagsmál í kring- um 1968 hefur fengið á sig visst vörumerki. Hún reis upp í marg- víslegri mynd, ekki bara í pólitík, heldur sýndi almennt andóf gegn víðteknum viðhorfum og braut ýmsar hefðir og venjur víða um heim, þó hún hafi kannski ekki náð til íslands sem öflug bylgja. Ég ber vissa virðingu fýrir henni en finnst hún hafa sofnað aftur. Mér fínnst að það hafi ekki orðið eins mikið úr upphlaupinu og það hefði getað orðið hefði hún byggt á sterkari hugmyndafræði í andófi sínu.“ Guttormur segir meðlimi kynslóð- arinnar hafa upplifað tímann hver á sinn hátt. Hann tilheyrði þeim sem voru róttækir í stjómmálum. „Ég var aldrei félagi í pólitískum samtökum. Þegar Víetnamstríðið var í algleymingi hélt ég að ég væri framsóknarmaður en þegar ég fór að segja skoðanir mínar á framferði Bandaríkjamanna í stríðinu var ég stimplaður kommúnisti. Umræðan þá var meiri meðal ungs fólks og markvissari. Hún er meira á víð og dreif í dag. Það er kannski ágætt því þá festast menn síður í ákveðnum kennisetningum og pólitískum trúarbrögðum. Núna eru menn kannski að losna úr ijötrum sem þeir bundu sig í allt sitt líf án þess að hugsa málin nokkum tíman djúpt. Það tíðkaðist líka á þessum tíma að vera með beitta gagnrýni, enda er nokkuð af henni í bókinni." Hver keimingin upp á móti annarri Meðal þeirra sem Guttormur gagn- rýnir eru vestrænir heimspekingar, einkum Þjóðverjinn Friedrich Nietzsche. Það gerir hann út frá kenningum hins fom-gríska Plat- óns og austrænna heimspekinga, sem hann kynnist undir lok bók- arinnar. „Sjálfsæivsaga Yogananda er það fyrsta sem ég les og tengist austrænni heimspeki. Það gerði ég af tilvilujun. Bókin var falin í neðstu hillunni í Kaupfélaginu og ég er ekki viss um að margir fyrir austan hafi lesið hana. Ég hef í gegnum tíðina rekist á fullt af fólki sem hefur lesið hana og hún haft mikil áhrif á. Út frá henni fór ég að hafa áhuga á austrænni heimspeki. Mér hefur alltaf fundist margt heillandi í skrifum Platóns og þegar ég gagnrýni Nietzsche geri ég það út ffá Platón. Nietzsche er með mun eínishyggjulegra sjónarmið. Mér fínnst hann spila á þjóðem- iskennd Þjóðverja til að ná í gegn. Mér fannst miklar mótsagnir í vestrænni heimspeki varðandi hug- myndir og lögmál tilverunnar og hver kenningin upp á móti annarri og mér finnst það vera þannig enn þann dag í dag. Ég vildi vita hver væru hin raunverulegu sannindi á bakvið þetta og fannst svarið koma úr óvæntri átt. Til að geta fótað sig í andlegri heimspeki verður maður að kafa djúpt í sjálfan sig. Svörin er frekar að fmna innra með hverjum manni en í hinum ytri veraleika.“ Horft heildrænt á málin Guttormur tekur þó fram að hann sé enginn heimspekingur, spekin sé hreint áhugamál hjá honum. „Ég er með beitta og yfirborðslega gagnrýni í bókinni til að kalla fram umræðu. Ég tel heimspekina þýð- ingarmikla til að hjálpa okkur við að þróa samfélagið í rétta átt og koma á betra jafnvægi milli hins efnislega og andlega. Ég er ekki viss um að margir indverskir heimspekingar myndu skrifa upp á þetta því þeir myndu vilja gefa hinu andlega allt sviðið. Mþr fínnst efnishyggjan hafa of mikil áhrif í dag en eins og Platón segir þá er mannveran þrískipt, hún er á efnislegu, huglegu og andlegu sviði. Aðalatriðið er að þama á milli ríki jafnvægi. Þeir sem vilja að eitt sviðið sé ráð- andi líta ekki heildrænt á málin. Heildræn heimspeki er ekki bara andleg heldur tekur mið af raun- verulegum lögmálum sem gilda í tilveranni eins og hver önnur vís- indi. Ég tel Nietchzsche fara villur vegar þar sem hann fótar sig ekki í raunveruleikanum. Ég held að margir hafi gaman af að pæla í þessu: eftir hverju fer þróun í heiminum? Hver eru tengsl manns- ins við annað í tilveranni. Það væri gaman ef þeir sem hafa áhuga

x

Austurglugginn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Austurglugginn
https://timarit.is/publication/1687

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.