Fréttablaðið - 12.10.2022, Side 6
Ef stjórnvöld hefðu
alveg frjálsar hendur
um það hvort og
hvenær þau tækju
ákvarðanir til endur-
skoðunar myndi rísa
óviðunandi réttar-
óvissa.
Lilja Alfreðsdóttir, menningar-
málaráðherra
bth@frettabladid.is
RAUFARHÖFN Helgi Ólafsson, 93
ára rafvirki á Raufarhöfn, fékk fyrir
nokkrum árum hugmynd um að
smíða dreka úr járni og setja upp á
hafnarsvæðinu.
Framan af segir Helgi að lítið
hafi gengið að koma hugmyndinni
í framkvæmd, svo hafi komist
skriður á málið. Sonur hans er í hópi
þeirra sem hafa komið að smíði
drekans.
Fyrsta október síðastliðinn var
drekinn svo vígður á hafnarsvæð-
inu. Helgi segir að sér hafi verið
í mun að minnast síldaráranna,
umsvifanna í bænum og sögu
áræðis. Drekinn er landvættur
fjórðungsins.
Helgi hefur afhent sveitarfélaginu
drekann til eignar og umsjónar og
stendur hann fyrir framan Hótel
Norðurljós. Eldurinn er knúinn
með olíu.
Kaffiveisla fór fram í Breiðabliki,
félagsheimili aldraðra á Raufarhöfn
að vígslu lokinni.
„Ég vona að drekinn verði þekkt
kennileiti í bænum, þótt ég viti
að Heimskautsgerðið verði alltaf
í fyrsta sæti hér,“ segir Helgi, sem
vonast til að drekinn auki enn
aðsókn ferðamanna, sem þó hefur
verið með mesta móti í sumar.
Aldurshöfðinginn kveðst glaður
að hafa náð þessu markmiði sínu
áður en hann heldur til friðsælli
veiðilenda. Hann er kvæntur Stellu
Þorláksdóttur frá Siglufirði og eiga
þau sex börn, hann er handhafi
fálkaorðu og var útnefndur iðnaðar-
maður ársins fyrir tveimur árum.
Helgi starfar enn við tilfallandi
rafvirkjun og hefur alla tíð verið
sinn eigin atvinnurekandi. n
Rafvirki lét smíða eldspúandi dreka
Helgi Ólafsson stendur fyrir framan drekann sinn. MYND/ HELGI JÓNSSON
Menningarmálaráðherra segir
að afturköllun skipanar Þjóð-
minjavarðar sé háð ströngum
skilyrðum. Frumvarp er
komið fram sem þrengir heim-
ildir til flutnings embættis-
manna án auglýsingar.
bth@frettabladid.is
STJÓRNSÝSLA Tillaga að f lutningi
Hörpu Þórsdóttur, safnstjóra Lista-
safns Íslands, yfir í stöðu Þjóðminja-
varðar, barst ráðherra frá emb-
ættismönnum ráðuneytisins. Þetta
kemur fram í svörum Lilju Alfreðs-
dóttur menningarmálaráðherra við
fyrirspurn Fréttablaðsins.
Áður hefur Lilja sagt í fjölmiðlum
að tillagan hafi komið fram hjá
Skúla Eggerti Þórðarsyni ráðu-
neytisstjóra.
„Ákvörðun um að f lytja Hörpu
Þórsdóttur var eingöngu byggð á
málefnalegum sjónarmiðum og á
grundvelli þess að efla frekar Þjóð-
minjasafnið og færa safnið inn í
nýja tíma með því að skipa hæfan
og reyndan safnstjóra til starfans,“
segir í svari Lilju.
Lilja hefur sagt að hún geti ekki
afturkallað eigin skipan þrátt fyrir
hávær mótmæli og kröfu þar um
hjá hluta safnafólks, fornleifafræð-
ingum og fleirum. Segir í svari ráð-
herra að heimildir stjórnvalds til að
breyta og/eða afturkalla ákvörðun
séu „mjög takmarkaðar og háðar
þröngum skilyrðum“. Vísað er til
rits um Stjórnsýslulögin eftir Pál
Hreinsson frá 1994 þar sem segir:
„Ef stjórnvöld hefðu alveg frjálsar
hendur um það hvort og hvenær þau
tækju ákvarðanir til endurskoðunar,
myndi rísa óviðunandi réttar óvissa.
Af þeim sökum eru reistar skorður
við því, bæði í skráðum og óskráð-
um reglum, hvenær hægt er að taka
ákvörðun til endurskoðunar.“
„Ákvörðun um f lutning safn-
stjóra Listasafns Íslands var tekin
á faglegum forsendum og heimild-
irnar byggja á sterkum lagagrunni,“
segir einnig. „Í ljósi þess eru ekki
málefnalegar forsendur fyrir því að
afturkalla flutninginn,“ segir í svari
ráðherra, enda myndi slík ákvörðun
ekki byggja á málefnalegum rökum
og yrði ekki talin standast grund-
vallarreglur stjórnsýsluréttar.
Viðamiklar tilfærslur embættis-
manna síðari ár eru mjög umdeild-
ar. Jóhann Páll Jóhannsson, þing-
maður Samfylkingarinnar, hefur
ásamt þingflokki sínum lagt fram
frumvarp um breytingar á lögum
um skyldur og réttindi opinberra
starfsmanna.
Í frumvarpinu er lagt til að
ákvæði greinar um flutning emb-
ættismanna gildi ekki um skipan
í embætti ráðuneytisstjóra og taki
ekki til allra embættismanna.
Reglur um auglýsingar starfa verði
þrengdar. Hnykkt er á að flutningur
embættismanna sé undantekning
frá almennri meginreglu um aug-
lýsingaskyldu.
Í frumvarpinu er mælt fyrir um
að dómarar, embættismenn við
dómstóla og dómstólasýsluna og
embættismenn sem starfa á vegum
Alþingis og eftirlitsstofnana þess,
það er skrifstofustjóri Alþingis,
umboðsmaður Alþingis og ríkis-
endurskoðandi, verði með öllu und-
anskildir ákvæðinu. Þannig verði
tekinn af allur vafi um að ákvæðið
heimilar ekki f lutning milli hinna
þriggja valdþátta ríkisins og tekur
aðeins til flutnings embættismanna
á vegum framkvæmdavaldsins.
„Með þessu er brugðist við því
hættulega fordæmi sem var sett
hinn 27. janúar 2022 þegar þáver-
andi ríkisendurskoðandi var flutt-
ur yfir til nýs menningar- og við-
skiptaráðuneytis og skipaður þar
ráðuneytisstjóri með vísan til 36.
gr. laga nr. 70/1996, en slík beiting
ákvæðisins er ógn við sjálfstæði
þeirra eftirlitsstofnana sem starfa
á vegum Alþingis sem liður í eftir-
litshlutverki þess gagnvart fram-
kvæmdavaldinu,“ segir í greinargerð
með frumvarpinu. n
Lilja segir að afturköllun
myndi skapa réttaróvissu
Lilja Alfreðsdóttir segir að hún geti ekki afturkallað skipan Hörpu Þórsdóttur í embætti Þjóðminjavarðar. Nokkrir
þingmenn vilja að heimildir til flutnings embættismanna án auglýsingar verði þrengdar. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Lilja
Alfreðsdóttir
kristinnhaukur@frettabladid.is
ÚKRAÍNA Árásir Rússa á almenna
borgara og borgaralega innviði í
Úkraínu hélt áfram í gær. Meðal
annars var sprengt í borgunum
Lviv í vesturhluta landsins og Zapo-
rízjzja. Í Lvív eru íbúar beðnir um
að takmarka rafmagnsnotkun.
Leiðtogar G7-ríkjanna hittust á
fjarfundi í gærdag og hétu áfram-
haldandi stuðningi við Úkraínu-
menn „eins lengi og þarf.“ Volody-
myr Zelensk y j Úkraínuforseti
ræddi við leiðtogana á fundinum. Í
G7 eru Bandaríkin, Kanada, Þýska-
land, Frakkland, Bretland, Ítalía,
Japan og Evrópusambandið.
„Ólögleg innlimun og falsaðar
kosningar sem Rússland notar
til að réttlæta hana verður aldrei
samþykkt,“ var bókað á fundinum.
Ríki G7 munu halda áfram að veita
Úkraínumönnum hergögn, fjár-
magn, mannúðaraðstoð og annan
stuðning sem þeir þurfa. Þá voru
loftskeytaárásir Rússa á almenna
borgara harðlega fordæmdar, enda
séu þær stríðsglæpur.
Þá var ítrekuð sú afstaða að notk-
un kjarnorkuvopna eða efnavopna
myndi hafa alvarlegar af leiðingar
fyrir Rússland.
Ekki var greint frá því hverjar
af leiðingarnar yrðu en fyrrver-
andi herforingjar Bandaríkjahers
hafa lýst því yfir hvað þeir teldu
líklegast. Það er að Atlantshafs-
bandalagið myndi taka beinan þátt
í stríðinu, meðal annars með loftá-
rásum á allar bækistöðvar Rússa
í Úkraínu og tortímingar Svarta-
hafsf lotans og Kerch-brúarinnar.
Talið er að þessum skilaboðum hafi
verið komið til stjórnvalda í Kreml
í einkasamtölum. n
G7 hétu stuðningi við Úkraínumenn
Olaf Scholz Þýskalandskanslari
hlýðir á Zelenskyj Úkraínuforseta á
fundinum. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
bth@frettabladid.is
SAMFÉLAG „Hvenær sem þessi mikli
atburður kemur upp í huga minn
fyllist ég þakklæti fyrir alla þá sem
gerðu þetta að veruleika,“ segir
Björn Eysteinsson, fyrirliði Íslend-
inga í bridds, þegar þeir urðu heims-
meistarar í Yokohama árið 1991.
Í gær var 31 ár liðið síðan lands-
liðið vann þetta mikla afrek.
„Þolinmæði og dugnaður liðs-
manna við æfingar og ævintýraleg
frammistaða gleymist seint,“ segir
Björn.
Undirbúningur Björns sem fyrir-
liða byggðist á uppbyggingu bæði
andlegs og líkamlegs atgervis, sem
þá þótti nýlunda.
„Þessir sex snillingar hófu æfing-
ar, bæði brids og líkamsrækt með
fjallgöngum og hlaupum, af mikilli
samviskusemi snemma vors 1991 og
enduðu sem heimsmeistarar,“ segir
Björn.
„Það gleymist aldrei að hlusta á
þjóðsönginn okkar góða á efsta palli
– og koma með Bermúdaskálina
heim til Íslands.“
Hvorki fyrr né síðar hefur Ísland
eignast heimsmeistara í liðsíþrótt.
Hálf þjóðin fylgdist með frétta-
f lutningi sem endaði með beinni
sjónvarpsútsendingu um miðja
nótt.
„Þjóðin var stolt á þessum tíma,
heimsmeistararnir kjörnir menn
ársins og briddsáhugi blómstraði í
mörg ár á eftir,“ segir Björn.
Afreksins verður minnst með
ítarlegu viðtali við Guðmund Pál
Arnarson heimsmeistara í glænýrri
þáttaröð um bridds sem hleypt
verður af stokkunum á Hringbraut
næsta mánudag.
Auk Guðmundar og Björns spil-
uðu Jón Baldursson, Aðalsteinn
Jörgensen, Þorlákur Jónsson, Örn
Arnarson og Guðlaugur R. Jóhann-
esson í liðinu sem fagnaði heims-
meistaratitlinum sem margir muna
vel eftir. n
Briddsspilarar minnast mesta afreks hugaríþróttanna
Þolinmæði og dugn-
aður liðsmanna við
æfingar og ævintýraleg
frammistaða gleymist
seint.
Björn Eysteinsson, fyrirliði
6 Fréttir 12. október 2022 MIÐVIKUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ