Fréttablaðið - 12.10.2022, Page 9
Sköpunargleði er ein
mikilvægasta auðlind
nútímans og fyrirtæki
verða að nýta hana og
efla.
Birna Dröfn Birgisdóttir,
framkvæmdastjóri Bulby
Margrét Kristín Pétursdóttir er for-
stöðumaður gæðamála hjá Vísi hf.
í Grindavík og formaður Kvenna í
sjávarútvegi. Hún hefur gaman af
golfi og jóga og væri til í að verða
jógakennari ef hún þyrfti að velja
sér annan starfsframa.
Hver eru þín helstu áhugamál?
Ég á alltof mörg áhugamál miðað
við frítíma. Golfið er alltaf að verða
skemmtilegra og skemmtilegra eftir
því sem manni fer fram, þó svo að
forgjöfin sé ennþá leiðinlega há.
Jóga er stórt áhugamál og í raun eitt-
hvað sem maður tileinkar sér í verk-
efnum lífsins. Ég hef verið að kenna
í Orkustöðinni í Keflavík, sem er
frábær leið til að jarðtengja sig eftir
annasaman dag. Ég elska útivist
og utanvegahlaup eru þar í miklu
uppáhaldi. Sameiginlegt áhugamál
fjölskyldunnar er fótbolti og hafa
allir æft fótbolta af miklu kappi, þó
svo að ég og elsti sonurinn séum þau
einu sem hafa verið Íslandsmeist-
arar. Stangveiði er síðan að koma
sterk inn.
Hvaða bók hefur haft mest áhrif
á þig?
Salka Valka og svo sat Nóttin sem
öllu breytti: Snjóflóðið á Flateyri
lengi í mér.
Hver hafa verið mest krefjandi
verkefnin á undanförnum miss-
erum?
Það koma upp alls konar krefj-
andi verkefni en það sem stendur
kannski mest upp úr er að halda
sönsum í Covid-faraldrinum. Sam-
komutakmarkanir voru ekki fyrir
mig og gerðu allt aðeins erfiðara.
Hvaða áskoranir eru fram undan?
Mér hlotnaðist sá heiður að vera
kosin formaður Kvenna í sjávarút-
vegi. Félagið þykir mér vænt um og
það hefur unnið gott verk í að auka
sýnileika kvenna í greininni. Þó svo
að strákarnir í greininni séu flottir
er nauðsynlegt að fá f leiri konur í
sjávarútveginn. Það er nóg af verk-
efnum fram undan hjá félaginu og
mun ég leggja mig alla fram við að
efla félagið enn frekar.
Hvar sérðu þig eftir tíu ár?
Ætli ég verði ekki komin undir
15 í forgjöf og búin að klífa einhver
svakaleg fjöll í toppformi. Ég ætla
að vera sátt við þau verkefni sem ég
hef tekið að mér og hafa ástríðu fyrir
þeim verkefnum sem á mínu borði
verða.
Ef þú þyrftir að velja annan starfs-
frama, hvað yrði fyrir valinu?
Jógakennari á Balí.
Hver er uppáhaldsborgin þín?
New York. n
Mér hlotnaðist sá
heiður að vera kosin
formaður Kvenna í
sjávarútvegi. Félagið
þykir mér vænt um og
það hefur unnið gott
verk í að auka sýni-
leika kvenna í grein-
inni.
Á alltof mörg áhugamál miðað við frítíma
n Svipmynd
Margrét Kristín Pétursdóttir
Nám: Bsc. í líftækni frá Háskól-
anum á Akureyri.
Störf: Forstöðumaður gæðamála
hjá Vísi hf. í Grindavík og for-
maður Kvenna í sjávarútvegi.
Fjölskylduhagir: Gift Jóhanni
Helgasyni og saman eiga þau þrjú
dásamleg börn, Helga Hafstein,
14 ára, Kamillu Kristínu, 10 ára, og
Árna Hafberg, 5 ára.
Margrét Kristín Pétursdóttir segir að hennar uppáhaldsborg sé New York.
MYND/AÐSEND
Framkvæmdastjóri nýsköp-
unarfyrirtækisins Bulby segir
að mikil tækifæri liggi í því að
efla sköpunargleði einstakl-
inga og fyrirtækja því þannig
megi ná meiri árangri. Mark-
mið fyrirtækisins er að efla
sköpunargleði í heiminum
með því að gera sköpunar-
gleðiþjálfun aðgengilega.
Nýsköpu nar f y r ir t æk ið Bu lby
vinnur að því að þróa sköpunar-
gleði-hugbúnað sem byggir á
rannsökuðum aðferðum sem leiða
notandann í gegnum sköpunar-
gleðiæfingar, sem gera honum kleift
að sjá nýjar og nytsamlegar lausnir.
Birna Dröfn Birgisdóttir, fram-
kvæmdastjóri Bulby, segir að hug-
myndin hafi kviknað út frá doktors-
námi hennar.
„Þar var ég að rannsaka sköp-
unargleði og því meira sem ég rann-
sakaði og skoðaði, því meira komst
ég að því hversu frábær eiginleiki
þetta er,“ segir Birna.
„Þegar ég lenti í bílslysi lærði ég
ótrúlega mikið um hvernig heilinn
virkar og hvernig við getum endur-
forritað hann og slíkt. Sá lærdómur
hefur nýst mér við þróun hugbún-
aðarins.“
Birna segir að rannsóknir bendi
til þess að við séum öll skapandi og
getum orðið meira skapandi.
„Sköpunargleði er ein mikilvæg-
asta auðlind nútímans og fyrirtæki
verða að nýta hana og ef la. Þess
vegna er sorglegt að sjá að rann-
sóknir benda til þess að sköpunar-
gleði fólks hafi minnkað frá 1950.
Ástæða þess er talin vera sú að mik-
ill hraði sé í samfélaginu. Adobe og
IBM hafa rannsakað fyrirtæki úti
um allan heim og komist að því að
sköpunargleði er eftirsóttasti eigin-
leikinn á vinnumarkaði og sá sem
erfiðast er að finna.“
Birna bætir við að sá hópur sem
þau vilji byrja á að þjónusta sé fólk
sem býr til efni fyrir samfélags-
miðla.
„Sá hópur þarf að búa til efni
virkilega ört svo það er mikilvægt
að þau séu skapandi. Við getum
hjálpað þeim að ýta undir skap-
andi hugsun til að sjá nýja vinkla
til að miðla efni á sínum samfélags-
Þróa hugbúnað sem eflir sköpunargleði
Magdalena Anna
Torfadóttir
magdalena
@frettabladid.is
miðlum. Við getum bæði hjálpað
fyrirtækjum og einstaklingum að fá
nýjar og skemmtilegar hugmyndir
að efni fyrir samfélagsmiðla sína.“
Birna tekur dæmi sem sýnir
hvernig einstaklingurinn er leiddur
í gegnum sköpunarferlið.
„Segjum til að mynda að ég ætli
að búa til efni um sköpunargleði. Þá
er ég leidd í gegnum æfingar eins og
til dæmis að tengja tilviljanakennd
orð við viðfangsefni mitt, sem gæti
verið að tengja sköpunargleði og
lauf blað saman. Lauf blað minnir
mig á haustið og haustið minnir á
skólann. Út frá þessu fæ ég þá hug-
mynd að skrifa um hvað nemendur
geta gert í skólanum til þess að efla
sköpunargleðina, sem er svo mikil-
vægt þar sem hún er helsta auðlind
framtíðarinnar.“
Á bak við Bulby ásamt Birnu er
Hannes Agnarsson Johnson, sem
sér um vöruþróun og markaðsmál.
Birna segir að markmið Bulby sé
að efla sköpunargleði í heiminum
og þau stefni mjög langt með þessa
hugmynd.
„Við erum að leita að fjármagni
núna og höfum fengið virkilega
góð viðbrögð frá öllum. Við erum í
rauninni bara alveg hissa og áttum
ekki von á þessu. Fjárfestar hafa haft
samband við okkur að fyrra bragði
og fyrirtæki lýst yfir vilja til að kaupa
hugbúnaðinn fyrir alla starfsmenn.
Við erum virkilega þakklát fyrir
hversu vel hefur verið tekið í þetta.“
Birna bendir á að ávinningurinn
af því að ef la sköpunargleðina sé
margvíslegur fyrir einstaklinga,
fyrirtæki og samfélagið í heild.
„Rannsakendur hafa skoðað fyrir-
tæki sem leggja áherslu á sköpunar-
gleðina og séð að þau vaxa margfalt
hraðar en þau sem gera það ekki.
Rannsóknir sýna einnig að það að
efla sköpun getur aukið hamingju
og dregið úr kvíða og þunglyndi
fólks. Það getur ýtt undir starfs-
ánægju, minnkað líkur á kulnun og
verið mikill ofurkraftur. Mín ósk
er sú að sem flestir átti sig á að við
erum öll skapandi og getum orðið
meira skapandi og gert lífið bara svo
miklu skemmtilegra.“ n
Birna Dröfn
Birgisdóttir,
framkvæmda-
stjóri og Hannes
Agnarsson Jo-
hnson, sem sér
um vöruþróun
og markaðsmál
hjá Bulby.
MYND/AÐSEND
MIÐVIKUDAGUR 12. október 2022 Fréttir 9FRÉTTABLAÐIÐ MARKAÐURINNFRÉTTABLAÐIÐMIÐVIKUDAGUR 12. október 2022