Fréttablaðið - 12.10.2022, Side 12

Fréttablaðið - 12.10.2022, Side 12
Allt er kynningarblað sem býður auglýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit- stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Guðmundur Hilmarsson, gummih@frettabladid.is s. 550 5766 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir, sandragudrun@frettabladid.is, s. 550 5762 | Starri Freyr Jónsson starri@frettabladid.is, s. 550 5767 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768 Útgefandi: Torg ehf Ábyrgðarmaður: Jón Þórisson Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654, Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 694 4103. „Þetta var erfið ákvörðun sem ég var búinn að hugsa lengi um en ég er feginn að vera búinn að taka hana. Ég fór að huga að þessu eftir Ólympíuleikana í mars og nú ligg- ur þetta ljóst fyrir. Ástæðan fyrir því að ég lagið keppnisskíðin á hilluna er margþætt, margir hlutir sem spila inn í þessa ákvörðun hjá mér, en helsta ástæðan er að hugurinn leitaði annað,“ segir Hilmar Snær en hann er á þriðja ári í rafmagnsverkfræði við Háskóla Íslands. Hann klárar það nám eftir eitt ár og síðar stefnir hann á mastersnám. Hilmar Snær er einfættur en þegar hann var átta ára gamall greindist hann með krabbamein í vinstri fæti. Taka þurfti stóran hluta af öðrum fæti hans en það hefur ekki aftrað honum frá því að stunda íþróttir. Skíðin hafa verið í fyrsta sætinu en Hilmar er einnig snjall kylfingur og stund- aði aðrar íþróttir áður en hann greindist með krabbameinið. Hilmar er með gervifót sem hann gengur um á alla daga. „Ég er búinn að æfa og keppa á skíðum í tólf ár og frá árinu 2016 hef ég tekið þátt í mörgum mótum erlendis,“ segir Hilmar en hann keppti á sínum öðrum Ólympíu- leikum í Peking í marsmánuði þar sem hann náði frábærum árangri. Hilmar varð í fimmta sæti í svigi á leikunum sem er besti árangur íslensks skíðamanna í alpagreinum á Ólympíuleikum fatlaðra. Áður hafði hann fyrstur Íslendinga fagnað sigri í heildar- stigakeppni í Evrópumótaröðinni í alpagreinum þegar hann vann þrenn gullverðlaun í svigi og silfurverðlaun í stórsvigi á loka- mótinu sem fram fór í Zagreb í Króatíu á síðasta ári. Þá varð hann fimmti í svigi á heimsmeistara- mótinu í Lille hammer nú í janúar. Hilmar var kjörinn íþróttamaður ársins hjá Íþróttasambandi fatlaðra og Garðabæjar fyrir árið 2020. Skemmtilegur tími „Þegar ég lít til baka þá hefur þetta verið virkilega skemmtilegur tími. Aðstæðurnar hér heima á Íslandi eru ekki þær bestu fyrir skíðafólk og ég hef því mikið verið að æfa og keppa erlendis síðustu árin. Ef ég hefði tekið ákvörðun um að halda áfram á keppnisskíðum þá hefði ég þurft að vera meira og minna erlendis og það kallaði ekki til mín,“ segir Hilmar Snær. Spurður hvað standi upp úr á ferli hans segir Hilmar: „Síðustu Ólympíuleikar í Peking standa klárlega upp úr. Þá nefni ég heims- meistaramótin tvö þar sem ég var nálægt því að komast á verð- launapall, sigur á heims- bikarmóti og að vinna Evrópumótaröðina. Það hefur tekið mikinn tíma að komast svona langt og mikil vinna að baki. Ég á mörgum mjög mikið að þakka og þar get ég nefnt Íþróttasamband fatlaðra sem hefur staðið rosalega vel við bakið á mér, alla þjálfarana sem hafa unnið með mér og styrktaraðilana,“ segir Hilmar. Sjaldgæf aðgerð Hilmar lagði stund á fleiri íþróttir en þegar hann var átta ára gamall urðu miklar breytingar þegar hann greindist með krabbameinið. „Ég fór í aðgerð í Svíþjóð snemma árs 2009. Þetta er sjaldgæf aðgerð. Fóturinn var ekki allur tekinn af og er ökklinn nýttur sem hné sem virkar bara mjög vel. Áður en þetta gerðist var ég í fótbolta, handbolta og körfubolta en það kom aldrei til greina að hætta að hreyfa mig þótt ég hefði lent í þessu. Ég tók skíðin föstum tökum og hef spilað mikið golf. Þá er ég búinn að æfa CrossFit í fimm ár,“ segir Hilmar Snær, sem er með tæplega einn í forgjöf í golfinu. Hilmar segist búinn að vera duglegur að spila golf í sumar. „Ég spilaði heilmikið golf með vinum en tók einungis þátt á einu móti í sumar.“ Þótt Hilmar hafi ákveðið að leggja skíðin á hilluna ætlar hann ekki alveg að slíta sig frá skíða- brekkunum. „Planið hjá mér er að þjálfa hjá Víkingi og ÍR í vetur. Ég verð að þjálfa átta og níu ára börn og það verður bara gaman.“ Spurður út í námið og rafmagns- verkfræðina segir Hilmar: „Upp- haflega skráði ég mig læknisfræði- lega verkfræði í Háskóla Íslands en ég skipti svo yfir í rafmagnsverk- fræðina. Með því fannst mér það opna fleiri dyr fyrir mig í fram- tíðinni fyrir áframhaldandi nám og fleira. Þetta er mjög þungt og krefjandi nám en í leiðinni mikil áskorun.“ n Hilmar hefur gert það gott á mótum erlendis á undanförnum árum. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK Hilmar Snær var útnefndur íþróttamaður ársins af Íþrótta- sambandi fatlaðra fyrir tveimur árum. FRÉTTABLAÐIÐ/ STEFÁN Guðmundur Hilmarsson gummih @frettabladid.is Þetta var erfið ákvörðun sem ég var búinn að hugsa lengi um en ég er feginn að vera búinn að taka hana. Hilmar Snær Örvarsson 2 kynningarblað A L LT 12. október 2022 MIÐVIKUDAGUR

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.