Fréttablaðið


Fréttablaðið - 12.10.2022, Qupperneq 18

Fréttablaðið - 12.10.2022, Qupperneq 18
Toyota á Íslandi, sem er með starfsemi sína í Kauptúni í Garðabæ, hefur „Vellíðan til árangurs“ sem yfirskrift starfsmannastefnu sinnar.  gummih@frettabladid.is Fyrirtækið leggur mikið upp úr því að skapa vinnuumhverfi þar sem starfsmönnum líður vel. Fyrir- tækinu er umhugað um heilsu starfsmanna sinna, heilsuvernd, vinnuvernd og jafnréttisstefnu. Góður starfsandi er mjög mikil- vægur og sífellt f leiri fyrirtæki eru farin að leggja aukna áherslu á gæði starfsandans og að starfs- fólki líði vel í vinnunni. „Hjá Toyota er góð starfs- mannastefna og henni er fylgt mjög vel eftir með það að mark- miði að skapa sterka þjónustu- menningu. Hjá þessu fyrirtæki velst inn ákveðin gerð af fólki sem hefur yndi af því að veita góða þjónustu. Maður verður var við það bæði út á við og líka inn á við. Ég segi oft þá sögu að þegar ég byrjaði hér þá þurfti ég að vinna oft þvert á deildir og vinna með þeim. Ég þurfti að leita hér og þar eftir upplýsingum og alls staðar var mér sinnt svo vel. Mér fannst allir sinna nýja manninum ótrúlega mikið og vel en svo hætti þetta ekkert. Það er alltaf hægt að leita til sam- starfsmanna og alltaf eru málin leyst. Þetta finnst mér lýsa starfs- andanum svo vel hjá Toyota. Það eru einhvern veginn allir boðnir og búnir til þess að veita góða þjónustu,“ segir Páll Þorsteinsson, upplýsingafulltrúi Toyota, og bætir við að starfsmannaandinn í fyrir- tækinu sé sérlega góður og það sé gaman að vinna hjá fyrirtækinu. Toyota hefur hlotið nafnbótina „Fyrirmyndarfyrirtæki ársins“ hjá VR nokkur undanfarin ár. Páll segir að fyrirtækið gefi af sér til starfsmanna. „Það er haldið vel utan um starfsmannahópinn sem vinnur hér. Það er reynt að sinna honum eins vel og hægt er, bæði með námskeiðum, símenntun og f leiru. Hér er alltaf verið að þjálfa fólk enda sífellt að koma inn tækninýjungar og við erum alltaf að reyna að bæta þessa þjónustu,“ segir Páll. Glaðningur við starfsafmæli Páll segir að starfsmannafélagið hjá Toyota sé mjög öflugt fyrir þá sem vilja nýta sér það. „Það eru að sjálfsögðu haldnar veglegar árshátíðir og við höfum farið til útlanda á nokkurra ára fresti í árshátíðarferðir og fyrir- tækið býður starfsmönnum til fagnaðar eins og á jólahlaðborð eða eitthvað slíkt þegar tækifæri gefst til þess. Starfsfólk okkar fær glaðning frá fyrirtækinu þegar það nær ákveðnum starfsaldri sem er mjög skemmtilegt og það fær líka fínar jólagjafir,“ segir Páll. Hann hrósar mötuneyti Toyota og segir starfsfólk taka því mjög vel. „Það er hollur og góður matur á boðstólum og það er mjög mikil- vægt.“ Starfsmannaveltan hjá Toyota er lítil og margir sem hafa unnið til fjölda ára hjá fyrirtækinu. „Starfs- mannaveltan hefur í gegnum tíðina ekki verið mikil og við erum hér með starfsfólk sem byrjaði að vinna í aukavinnu með skóla sem unglingar og á svo sína starfsævi hér. Það segir manni að fólki líki vel að vinna hér,“ segir Páll. n Góð starfsmannastefna  hjá Toyota Páll Þorsteinsson, upplýsingastjóri Toyota, segir haldið vel utan um starfsmannahópinn sem vinnur hjá fyrirtækinu. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Starfsfólk okkar fær glaðning frá fyrirtækinu þegar það nær ákveðnum starfs- aldri sem er mjög skemmtilegt og það fær líka fínar jólagjafir. Páll Þorsteinsson Gjafakort Hörpu er skemmtileg jólagjöf. Kortið gildir í þrjú ár á alla viðburði í Hörpu. Dagskráin er fjölbreytt og tryggt að öll finna eitthvað við sitt hæfi til að njóta. Kortin koma í fallegri gjafaöskju. Gefandinn velur upphæðina. Gefðu ávísun á góðar stundir harpa.is 6 kynningarblað 12. október 2022 MIÐVIKUDAGURFYRIRTÆKJAGJAFIR

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.