Fréttablaðið - 12.10.2022, Síða 20
Það var svo gaman
að sjá tilhlökkun-
ina og eftirvæntinguna
fara stigvaxandi með
hverjum mánuðinum
sem leið.
Elías Ingi Árnason
Síðasta árshátíð Öryggis-
miðstöðvarinnar var haldin
á Alicante á Spáni í vor. Eftir
takmarkað skemmtanahald
sökum heimsfaraldursins
átti starfsfólkið afar ánægju-
lega daga í sólinni.
starri@frettabladid.is
Starfsfólk Öryggismiðstöðvarinn-
ar var orðið ansi þreytt í heims-
faraldrinum með tilheyrandi
samkomubönnum og fjölda-
takmörkunum. Því var ákveðið
sumarið 2021, þegar ástandið var
farið að líta betur út, að stefna á að
halda árshátíðina erlendis ári síðar
við mikinn fögnuð starfsfólksins,
segir Elías Ingi Árnason, sem sat
í stjórn starfsmannafélagsins á
þeim tíma sem ferðin var skipu-
lögð og situr nú í árshátíðarnefnd
Öryggismiðstöðvarinnar.
„Við fyrsta tækifæri settum við
okkur í samband við nokkrar
ferðaskrifstofur og völdum að
lokum ferð til Alicante á Spáni
með Visitor úr fjölmörgum góðum
tilboðum.“
Mikill undirbúningur
Rúmlega 200 manns, starfsfólk og
makar, fóru í ferðina sem var í apríl
í fyrra. Elías segir að til að tryggja
að allt skipulag myndi ganga sem
best hefði verið lykilatriði að heim-
sækja staðinn áður og fara yfir eins
mörg smáatriði og hægt var.
„Því settum við okkur í sam-
band við þá staði sem við vildum
að myndu spila stórt hlutverk í
ferðinni. Auk þess vildum við hitta
þau sem myndu sjá um veislusal-
inn og gefa þeim hugmyndir okkar
um hvernig við sæjum árshátíðina
fyrir okkur, til dæmis hvernig við
vildum hafa uppsetninguna á
salnum. Einnig var mjög mikilvægt
að fá að smakka matinn sem boðið
er upp á þegar árshátíð er haldin
erlendis og hafa þá úr nokkrum
réttum að velja.“
Mjög fjölbreytt dagskrá
Óhætt er að segja að boðið
hafi verið upp á fjölbreytta og
skemmtilega dagskrá á Alicante.
„Það var alveg heljarinnar dagskrá
í boði fyrir hópinn. Við skipu-
lögðum til dæmis tvær siglingar á
tvíbytnu. Það komust 50 manns í
hvora ferð og siglt var með hópana
eftir strandlengjunni í nokkra
klukkutíma. Annar hópur naut sín
í botn í heimsókn á vínekru og enn
annar hópurinn fór í skemmtilega
hjólaferð um borgina.“
Golffélag Öryggismið-
stöðvarinnar hélt fyrsta golfmót
Eins og krakkar að bíða eftir jólunum
Elías Ingi Árnason.
Stór hluti hópsins skellti sér í siglingu meðfram ströndinni. MYND/AÐSEND
Það var kærkom-
in tilbreyting
fyrir starfsfólk
Öryggismið-
stöðvarinnar og
maka að eyða
nokkrum dögum
á Alicante.
FRÉTTABLAÐIÐ/
GETTY
sumarsins í ferðinni. „Margir
golfarar meðal starfsfólks okkar
voru orðnir ansi golfþyrstir eftir
íslenska veturinn. Hópurinn
spilaði á glæsilegum velli sem
heitir Font del Llop og er staðsettur
rétt fyrir utan borgina. Einnig var
skemmtilegur karaókíbar rétt fyrir
utan hótelið sem við lögðum undir
okkur eitt kvöldið. Það er óhætt
að segja að mögnuð stemning hafi
myndast það kvöld.“
Stefna á Berlín 2023
Elías segir svona ferð bæta mikið
starfsandann og auka samheldn-
ina meðal starfsfólks fyrirtækisins.
„Það var svo gaman að sjá til-
hlökkunina og eftirvæntinguna
fara stigvaxandi með hverjum
mánuðinum sem leið og síðustu
dagana var talað um lítið annað
en ferðina fram undan. Þetta var
svolítið eins og þegar maður var
krakki að bíða eftir jólunum og
sá pakkana hrannast upp við
tréð jafnt og þétt, spenningurinn
var nánast óbærilegur. Gleðin og
minningarnar eru svo reglulega
rifjaðar upp meðal starfsfólksins.“
Þessar vikurnar er stjórn starfs-
mannafélagsins og árshátíðar-
nefndin að skipuleggja næstu
árshátíðarferð sem verður haldin á
vormánuðum 2023 í Berlín.
„Undirbúningurinn er kominn
á fullt og við erum að velta fyrir
okkur ýmsum skemmtilegum hug-
myndum. Á sama tíma reynum við
að segja sem minnst svo hægt sé að
gera þessa næstu ferð eftirminni-
lega fyrir árshátíðargestina.“ n
8 kynningarblað 12. október 2022 MIÐVIKUDAGURFYRIRTÆKJAGJAFIR