Fréttablaðið - 12.10.2022, Síða 29
Jólagjafabréfin eru komin
í FlyOver Iceland. Hægt er
að kaupa á staðnum eða fá
rafrænt gjafabréf. Gjafabréf
hjá FlyOver Iceland gildir á
allar sýningar.
Fyrirhugaðar eru tvær gesta
sýningar árið 2023, Wonders of
the American West og Windborne
Call of the Candian Rockies, sem
sýndar verða auk aðalsýningar.
FlyOver Iceland hlaut tvenn stór
verðlaun á árinu, Travelers’
Choice Award 2022 frá Trip Advis
or sem og Best Tech Exhibition,
Best of Reykjavík, frá Reykjavík
Grapevine.
„FlyOver Iceland notar nýjustu
tækni til að veita raunverulega
f lugupplifun. Gestir sitja í festingu
fyrir framan 300 fermetra hnatt
laga sýningartjald með fætur í
lausu lofti og horfa á myndina,
sem fer með þá í æsispennandi
ferðalag um Ísland og aðra ótrú
lega áfangastaði,“ segir Emilía
Sigurðardóttir, markaðsstjóri
FlyOver Iceland.
„Tæknibrellur, þar á meðal
vindur, þoka og lykt, ásamt
hreyfingum búnaðarins gera upp
lifunina ógleymanlega. Til dæmis
áður en aðalsýningin um Ísland
hefst eru sýndar tvær myndir
með ensku tali þar sem skoðað er
hlutverk náttúrunnar, tímans og
mannsins á þessari einstöku eyju .
Eldfjöll og jöklar, víkingar, tröll og
f leira, sem er algjörlega mögnuð
upplifun.“
Á víkingaslóðum
Fyrst koma gestir að fornís
lensku langhúsi víkinga þar sem
er íslenskur sögumaður, en við
ljómann af eldstæðinu flytur hann
sögur sem birtast ljóslifandi í
skuggamyndum.
Í Brunni tímans kynnast gestir
umfangsmikilli sögu Íslands. Þar
birtast náttúruöflin og manns
andinn með aðstoð tónlistar,
myndskeiða, myndefnis og tækni
brellna. Þetta er með leiðsögn
Þeirrar vitru, persónu sem byggð
er á þjóðsögum um tröll og er
hönnuð af hinum ástsæla mynd
skreyti Brian Pilkington. Hún er
ævaforn og táknar bæði íslenska
visku og töfra landsins.
Sú vitra leiðir gesti í gegnum
þrjá mismunandi þætti. Fyrst er
hægt að upplifa orku landsins í
gegnum kraftmikil og gjarnan
ofsafengin náttúruöflin. Því næst
kemur mannfólkið til sögunnar
og tileinkar sér orðatiltækið
„þetta reddast“. Loks sést hvernig
íslenska þjóðin hefur skapað sér
líf á þessum harðbýla stað. Lífið
heldur áfram, sama hvað gerist.
800 ára tröllskessa
Líkt og í góðri sögu þurfti FlyOver
Iceland sýningin sitt eigið tröll. Við
vorum því himinlifandi að fá Brian
til þess að teikna fyrir okkur tröll
FlyOver Iceland.“
„Sú vitra er 800 ára gömul, ein
staklega fróð tröllskessa sem hefur
orðið vitni að stórum hluta af sögu
Íslands,“ segir Rick Rothschild, list
rænn stjórnandi FlyOver Iceland,
og mikill aðdáandi Brians. „Hún
er, eins og nafnið gefur til kynna,
afar vitur … hefur þó efasemdir
um heilindi manna en veit hversu
þrautseigir þeir eru og hvernig þeir
hafa skapað sér líf á þessu harðbýla
skeri.“
„Frá upphafi lá það ljóst fyrir hjá
FlyOver Icelandteyminu að mikil
vægt væri að fá íslenskt hæfileika
fólk til að semja tónlistina við hið
sjónræna listaverk sem sýningar
myndin er. Það er algjörlegt lyk
ilatriði að tengja heildarupplifun
ina viðkomandi stað, að hún verði
raunsönn og skapi tilfinningaleg
hughrif,“ segir Emilía.
Tónlist Sigur Rósar
Bræðurnir Kjartan og Georg Holm
ásamt kollegum sínum, Paul
Corley og Daníel Bjarnasyni, eru
þekktir fyrir vinnu sína með hinni
goðsagnakenndu íslensku hljóm
sveit, Sigur Rós.
Kjartan samdi tónlistina, tók
hana upp og útfærði fyrir FlyOver
Iceland. Saman og í sitt hvoru lagi
eru þeir þekktir fyrir yfirnátt
úrulega tónlist sína, sem ýmist
hefur hljómað á leikvöngum á
hljómleikaferð um heiminn, kvik
myndum eða sjónvarpsþáttum.“
Sýningin er í algjörum sérflokki
og öllum aðgengileg. Okkar ein
staka land birtist á sama hátt og
hjá fuglinum sem svífur yfir með
ilmi, vindi, sól og regnúða. n
Gjafabréfin fást í fallegum gjafa
umbúðum í FlyOver Iceland, Fiski
slóð 43 eða með því að ganga frá
kaupum á heimasíðunni og fá þau
send í tölvupósti.
Gefðu einstaka upplifun í jólapakkann
Það er ógleymanlegt að svífa um loftin blá og skoða Ísland frá allt öðru sjónarhorni en venjulega. MYND/AÐSEND
GJAFABRÉFIN ERU KOMIN
kynningarblað 17MIÐVIKUDAGUR 12. október 2022 FYRIRTÆKJAGJAFIR