Fréttablaðið - 12.10.2022, Qupperneq 30
Í aðdraganda jólanna í ár
fagnar vinnandi fólk því
að eiga aðventuna saman
eftir Covid-litaða jólatíð
undanfarin ár. Þá er tilvalið
að þjappa starfsfólkinu enn
betur saman og gera sem
mest úr skemmtilegasta
tíma ársins.
thordisg@frettabladid.is
Það þarf ekki mikið til að gleðja
starfsfólkið og koma því í jólaskap.
Jólapartí á vinnutíma getur því
verið skemmtileg tilbreyting svo
flestir taki þátt en tilgangurinn er
að skemmta fólki og auka enn á
stemningu aðventunnar.
Hér gefast hugmyndir að gefandi
dögum í vinnunni á meðan beðið
er eftir jólunum.
n Jólabingó í hádeginu þjappar
fólki saman og vekur ætíð
spennu þegar eftirsóknarverðir
vinningar eru í boði. Það geta
verið bíómiðar, máltíð á skyndi
bitastað, jólabolli í vinnuna,
jólatré, jólapeysa og hvaðeina.
n Náttfatapartí í anda kósítímans í
svartasta skammdeginu. Ekki er
verra ef náttfötin eru með jóla
legu munstri eða myndum. Verð
laun eru veitt fyrir besta dressið,
útbúið kósíhorn með jólabíó
myndum og vitaskuld er boðið
upp á morgunmat með jólalegu
ívafi, heitu súkkulaði, kanilkaffi,
smákökum og fleira góðgæti.
n Hver skreytir fegursta jólatréð?
Skipt er í lið og gefinn hálftími
til að skreyta lítil jólatré, með
skrauti sem fylgir, eða því sem
komið er með að heiman. Þema
hvers trés er útskýrt og reynt að
ganga í augun á dómurunum.
n Gæludýradagur. Jólin koma hjá
öllum, mönnum og málleys
ingjum. Því ekki að hafa einn
dag þar sem eigendur gæludýra
fá að koma með þau á skrif
stofuna? Það gæti sannarlega
orðið líflegt og ekki síst nota
legt að njóta návista við mjúk
og falleg dýrin. Hægt er að koma
með dýrin í búningum og hafa
búningakeppni.
n Silent Diskó er ávísun á tærar
gleðistundir þegar starfsmenn
dansa um hljóðlaust í vinnu
rýminu en með þráðlaus
heyrnartól sem spila fyrir þá
dillandi danstónlist.
n Að skreyta piparkökuhús kemur
öllum í jólaskap og hleypir
metnaði í mannskapinn. Skaffa
þarf piparkökuhús, glassúr, syk
urpúða og sælgæti til skrauts,
og vitaskuld má koma með
hluti að heiman til að fullkomna
verkið og slá í gegn.
n „Aldrei hef ég …“ er skemmti
legur partíleikur. Þátttak
endur halda uppi tíu fingrum
og skiptast á staðhæfingum
sem byrja á „Aldrei hef ég“.
Þeir sem eru sekir um eitthvað
sem staðhæft er verða að setja
einn fingur niður og leikurinn
heldur áfram uns aðeins einn
er eftir. Dæmi um staðhæfingar
geta verið „Aldrei hef ég kysst
einhvern undir mistilteini“ eða
„Aldrei hef ég gefið öðrum jóla
gjöf sem ég fékk“ eða „Aldrei
hef ég hætt með einhverjum
um jólin“ eða „Aldrei hef ég
gleymt að kaupa jólagjöf handa
ástvini“ eða „Aldrei hef ég hótað
börnunum að jólasveinninn
komi ekki“, en möguleikarnir
eru auðvitað óþrjótandi.
n Heitur súkkulaðibar hittir flesta
í hjartastað og kostar litla fyrir
höfn. Það eina sem til þarf er
ketill til að hita vatn eða brúsar
með heitu súkkulaði, kakómix,
síróp með jólalegu bragði, sæl
gætisstafir til að hræra í, sykur
púðar og þeyttur rjómi, jafnvel
líka chiliduft, hnetusmjör og
hvaðeina sem passar vel.
n „Minute to Win it“ er æsispenn
andi og fjörugur leikur sem er
auðvelt að setja í jólabúning.
Skipt er í lið sem þarf að leysa
þrautir á mettíma til að eiga
möguleika á sigri. Þrautirnar
geta til dæmis verið að setja
litla smáköku á ennið og koma
henni í munninn án þess að
nota hendurnar, líma tissjúbox á
bakið og fylla með borðtennis
kúlum sem þarf að hristast með
sveiflum eins og snjóbolta úr
kassanum, slá eins mörgum
golfkúlum í kaffibolla og hægt
er á mínútu, reyna að hengja
eins marga sælgætisstafi og
hægt er innan tímamarka á einn
liðsmann, og setja blöðrur á
gólfið sem þátttakendur reyna
að sprengja með því að setjast
á þær, en í einhverjum blöðrum
gæti leynst glaðningur, eins og
falleg orð, ávísun á sæta gjöf
eða miði á jólatónleika.
n Skransafnarinn er annar
skemmtilegur leikur þar sem
skipt er í lið og reynt að finna
eða leysa flest sem er á listan
um. Það geta verið gátur að
leysa eða leikræn tilþrif eins og
að setjast á hné jólasveins, að
finna jólateikningu barns, ná
fram uppskrift að smáköku hjá
vinnufélaga, finna úttroðinn
jólasokk, dagatal með hring
utan um aðfangadag, jóla
kort, engil, snjókarl, flösku af
jólaglöggi eða hvað sem fólki
dettur í hug. n
Vinarþel, fjör og huggulegheit í vinnunni
Heitur súkkulaðibar með öllu tilheyrandi hittir í mark. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
Búningakeppni gæludýra starfsfólks
er loforð um fjörlegan vinnudag.
Ný og öflug
fasteignaleit
Finndu réttu eignina fyrir þig á frettabladid.is
Öflugur fasteignaleitarvefur
með einföldu og notendavænu
viðmóti sem býður upp á ítarlegar
upplýsingar um fasteignir,
þróun verðlags og fróðleik um
fasteignamarkaðinn.
18 kynningarblað 12. október 2022 MIÐVIKUDAGURFYRIRTÆKJAGJAFIR