Fréttablaðið - 12.10.2022, Page 32
GER heildverslun er fyrir-
tækjaþjónusta sem tengist
Húsgagnahöllinni, Dormu
og Betra baki, en öll eru
vörumerkin hluti af GER
verslunum ehf. Gjafabréf
eru alltaf vinsæl og þar sem
vörunúmer GER verslana eru
um 11.000 ætti að vera auð-
velt að velja gjafir fyrir starfs-
menn úr þeim fjölmörgu
vöruflokkum sem eru í boði.
„GER verslanir reka Húsgagna-
höllina, Dormu, Betra bak og
Hästens ásamt GER heildverslun,
sem er fyrirtækjaþjónusta vöru-
merkjanna og sérhæfir sig í
heildarlausnum fyrir fyrirtæki,
meðal annars hótel og gistiheimili
með nánast ótæmandi úrvali af
vönduðum dýnum, rúmum og
líni ásamt húsgögnum og gjafa-
vörum fyrir hvers kyns rými og
rekstur. Einnig höfum við mikið
úrval af fallegu og vönduðu leirtaui
fyrir veitingastaði. Ásamt þessu
bjóðum við vönduð sérvörumerki
með gjafavöru og húsgögnum
fyrir verslanir til endursölu,“ segir
Hafsteinn Máni Guðmundsson,
sölustjóri GER heildverslunar.
Vinsæl gjafabréf
„Nú eru mjög skemmtilegir tímar
fram undan og komum við til móts
við bæði núverandi og nýja við-
skiptavini með vali á jólagjöfum
fyrir starfsfólk þeirra. Gjafabréfin
eru alltaf langvinsælust en þar sem
við erum með um það bil 11.000
vörunúmer þá ættu allir að geta
valið sér gjöf sem bæði eldist og
endist vel og allir geta notað. Núna
eru gjafabréfin komin í símana
og renna þar af leiðandi aldrei út,“
segir Hafsteinn Máni og bendir á
að fyrirtækið sé með allt frá sófum
og rúmum og niður í inniskó. „Við
ættum að geta útvegað það sem fólk
óskar eftir og þess vegna eru gjafa-
bréfin góð lausn. Fyrirtækin gefa
starfsfólki sínu gjafabréf og síðan
getur hver og einn valið sér eitthvað
sem nýtist honum. Við erum með
tilboðsdaga til 31. október fyrir
fyrirtæki sem versla fyrir 100.000
krónur eða meira, en veittur er
15% afsláttur af heildarkaupum
gjafakorta þar sem ekkert lág-
mark er á upphæð hvers gjafakorts.
Við getum svo sent gjafakortin til
starfsmanna með tölvupósti eða
sms á fyrirfram ákveðnum tíma,
eftir óskum kaupanda. Starfsmenn
geta þá bætt því í Apple Wallet eða
Google Wallet og mætt í einhverja
af okkar verslunum þar sem hægt
er að velja sér gjöf úr þúsundum
vörunúmera.“
Jólagjafabæklingur
Jólagjafabæklingur GER heild-
verslunar verður fljótlega settur á
heimasíðuna gerheildverslun.is. „Í
honum sýnum við brot af því sem
við bjóðum upp á. Við reyndum
að velja góðar jólagjafahugmyndir
sem allir ættu að geta notað og
ættu að koma sér vel.“
Eins og þegar hefur komið fram
er vöruúrvalið gríðarlega mikið
svo það er af nógu að taka fyrir
vinnuveitendur þegar þeir velja
gjafir fyrir starfsfólk sitt.
Hafsteinn Máni nefnir einstaka
inniskó KOSY sem eru hannaðir í
samstarfi við Lárus Gunnsteins-
son skóhönnuð. „Þessir inniskór
eru með níu svæða nuddinnleggi
sem dregur úr spennu og örvar
blóðflæði. Við höfum verið með
týpurnar Storm og Yl í nokkurn
tíma en þær fást bæði í herra- og
dömusniði. Einnig vorum að taka
inn Frost og Mistur en það eru
nýjar útfærslur af inniskónum en
með sama nuddinnleggi. Þetta er
einstaklega góð og vönduð gjöf
sem gleður.“
Gjafabréf sem renna aldrei út í símanum þínum
Hafsteinn Máni
Guðmundsson,
sölustjóri hjá
heildsölu GER
verslana, segir
að með gjafa-
bréfi og vali um
11.000 vöru-
númer ættu allir
að geta valið sér
gjöf sem bæði
eldist og endist
vel og allir geta
notað.
FRÉTTABLAÐIÐ/
ERNIR
Margir fallegir hlutir í boði fyrir þá sem eiga gjafabréf.
Mjúkir og vandaðir inniskór sem hannaðir eru hér á landi.
Inniskórnir eru til bæði fyrir karla og konur en þeir eru hannaðir í samstarfi
við Lárus Gunnsteinsson skóhönnuð.
Gjafabréf eru alltaf
þægileg og vinsæl
gjöf. Hægt er að
fá gjafabréfið
beint í símann.
Alls kyns munir fyrir heimilið eru í boði í verslunum GER.
Þá má einnig nefna nýtt vöru-
merki sem tengist sælkeravörum
sem kallast Lie Gourmet. „Þar eru
alls konar olíur og krydd, matar-
pakkar, súkkulaði, pestó og fleira
sem gefa fólki ákveðna gæðastund.
Við erum líka með mikið úrval af
pressukönnum og bollum, settum
upp pakka með þeim, en það má
bæta við sælkerasúkkulaði þannig
að vinnuveitendur geti gefið starfs-
fólki sínu góða kósístund heima
um jólin og jafnvel fengið með
bókina „Þess vegna sofum við“
eftir Matthew Walker.
Þá er einnig mikið úrval af vönd-
uðum brettum og kjötbrettum
með fallegum hnífum og leður-
svuntum og svo er alltaf vinsælt að
gefa dásamlega mjúka gjöf eins og
sæng og kodda.“
Síðan má nefna
mikið úrval af fal-
legum kertastjökum og
kertum.
Alltaf spennandi
að fá jólagjöf
Hafsteinn Máni segir að
starfsólk GER heildverslun-
ar vilji endilega að fólk hafi
samband ef það er eitthvað
annað sem það óskar eftir eða
vill spyrja um. „Það eru alltaf allir
starfsmenn ótrúlega spenntir fyrir
því að fá gjöfina frá fyrirtækinu
sínu þannig að það getur verið svo-
lítið flókið að velja rétta gjöf sem
hentar öllum. En þá er um að gera
að hafa samband og við hjálpum
við að velja réttu gjöfina.“ n
20 kynningarblað 12. október 2022 MIÐVIKUDAGURFYRIRTÆKJAGJAFIR