Fréttablaðið - 12.10.2022, Síða 42

Fréttablaðið - 12.10.2022, Síða 42
Lestirnir nálgast brjálsemi á köflum og örlög einstakl- inganna eru oft ansi tragísk ef maður setur sprellið til hliðar. Guðrún Kristinsdóttir, nýdoktor í frönskum bókmenntum Til að birta andláts-, útfarar- eða þakkartilkynningar í Fréttablaðinu þarf að senda tölvupóst á timamot@frettabladid.is eða hringja í síma 550 5055 . Okkar ástkæri faðir, tengdafaðir, sonur, bróðir, mágur og frændi, Jón G. Þórðarson Nonni Stórakrika 25, Mosfellsbæ, lést á hjúkrunarheimilinu Hömrum, föstudaginn 7. október. Útförin fer fram í Digraneskirkju, mánudaginn 17. október kl. 13. Steinunn Elva Jónsdóttir Alex Freyr O’Dell Íris Embla Jónsdóttir Þórður Pétur Jónsson Þórður G. Jónsson Guðrún Elísa Högnadóttir Júlíana G. Þórðardóttir Aðalsteinn Jónsson Jón Þór, Emil Elí og Bjartur Búi Elskuleg eiginkona mín, mágkona, systir og móðursystir, Kristín Þorfinnsdóttir lést á Heilbrigðisstofnun Suðurlands á Selfossi þann 8. október. Útför hennar fer fram frá Selfosskirkju föstudaginn 21. október kl. 14. Blóm og kransar afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hennar er bent á Heiðurssjóð Guðrúnar Bjartar: www.lions.is/is/minningarkort. Kristinn Pálsson Ragnar Pálsson Herborg Anna Magnúsdóttir Skúli Valtýsson Þorfinnur Skúlason Kristrún Halla Helgadóttir Halldóra Skúladóttir Erlendur Stefánsson Hjördís Þorfinnsdóttir Agnar Pétursson og fjölskyldur Ástkær sambýliskona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma, Hrafnhildur Haraldsdóttir lést miðvikudaginn 5. október. Ágúst Magnússon Harpa Diego Hrafnhildardóttir Elva Johnson Mark Johnson og barnabörn Ástkær móðir mín, tengdamóðir, amma og langamma, Þórleif Sturlaugsdóttir frá Hlíð í Hörðudal, áður til heimilis að Litlagerði 3, Rvk., lést á Droplaugarstöðum miðvikudaginn 5. október. Útförin fer fram frá Kálfatjarnarkirkju föstudaginn 14. október kl. 13.00. Birgir Ólafsson Áslaug Brynja Sigurðardóttir barnabörn og barnabarnabörn Elskulegur bróðir okkar, mágur og frændi, Elís Þröstur Elísson frá Sælingsdal, síðast til heimilis að Borgarbraut 65a, lést á Heilbrigðisstofnun Vesturlands Akranesi þann 6. október. Útför hans fer fram frá Hvammskirkju í Dölum laugardaginn 15. október kl. 13.00. Fjölskyldan þakkar góða umönnun frá heimahjúkrun Borgarnesi, svo og starfsfólki á Tröð í Brákarhlíð. Systkini hins látna og fjölskyldur þeirra Í tilefni af fjögur hundruð ára afmæli Molières verður boðið upp á fjölþætta menningar- veislu á næstu vikum sem hefst í dag með málþingi tileinkuðu skáldinu. arnartomas@frettabladid.is Í ár eru liðin fjögur hundruð ár frá fæð- ingu franska leikskáldsins Jean-Baptiste Poquelin, eða Molière, eins og hann kallaðist. Leikhúsmenning og fræða- heimurinn víða um heim hefur litast af þessum tímamótum og hafa meðal annars verið tvær risastórar ráðstefnur, önnur í París og hin í Bandaríkjunum, auk fjölda minni ráðstefna víða um heim, auk þess sem verk Molières eru sett á svið í stórum stíl. Í tilefni af afmæli skáldsins verður blásið til þríþættrar menningardagskrár á haustdögum sem hefst með málþingi í Veröld – húsi Vigdísar í dag. Þann 26. október efnir Þjóðleikhúsið svo til leik- lesturs á nýrri þýðingu Sveins Einars- sonar á Ímyndunarveikinni, einu þekkt- asta verki Molières, auk þess sem fjórir útvarpsþættir um skáldið og verk hans verða fluttir á jóladagskrá RÚV Rásar 1. „Okkur hér í frönskunni er ljúft og skylt að standa fyrir þessum viðburði í samstarfi við Þjóðleikhúsið og franska sendiráðið,“ segir Guðrún Kristinsdóttir, nýdoktor í frönskum bókmenntum, og bendir á að Þjóðleikhúsið hafi einnig sterkar taugar til skáldsins. „Þegar leikrit fóru að koma hingað til lands með skóla- piltum, þá var Molière mjög vinsæll og leikinn á Herranótt og síðan af ýmsum áhugamannaleikfélögum um land allt. Ímyndunarveikin var leikin í nánast hverju einasta sveitarfélagi úti á landi og að sjálfsögðu í Þjóðleikhúsinu.“ Molière var afkastamikið leikskáld og ná verk hans til margra. Konungur kómedíunnar Nóttina 11. október hélt Sid Vicious, forsprakki hljóm- sveitarinnar Sex Pistols, partí á hótelherbergi sínu ásamt kærustu sinni Nancy Spungen. Vicious tók um þrjátíu töflur af deyfandi lyfinu Tuinol með þeim afleiðingum að hann var rænulaus fram eftir morgni. Um ellefuleytið daginn eftir fann hótelstarfsfólk Spungen látna á baðherbergisgólfinu með hníf í maganum. Tvö vitni sögðu að hún hefði verið lifandi þegar síðast sást til hennar klukkan fimm um nóttina. Vicious var handtekinn og ákærður fyrir morð. Hann sagðist í fyrstu hafa stungið hana en hefði aldrei ætlað sér að drepa hana. Síðar breytti hann vitnisburði sínum og sagðist ekkert muna. Lögfræðingur hans benti á að mikill fjöldi fólks hefði átt leið inn og út af hótelherberginu um nóttina sem hefði mögulega átt sök í málinu. Þann 28. nóvember sagði Vicious í viðtali að dauði Spungen hefði „átt að gerast“ og að hún hefði alltaf talað um að hún myndi látast áður en hún yrði 21 árs. Það var aldrei sannað hvort Vicious hefði orðið Spungen að bana en hann lést sjálfur 2. febrúar 1979 eftir að hafa tekið inn of stóran skammt af eiturlyfjum. n Þetta gerðist: 12. október 1978 Sid Vicious ákærður fyrir morð Nancy Spungen var tvítug þegar hún lést. Glettnar ádeilur Molière á misbeitingu trúarbragða ollu honum óvin- sældum hjá kaþ- ólsku kirkjunni. MYND/AÐSEND „Tungumálið sem Molière notar, sér- staklega í þeim leikritum sem hann skrifar í prósa, er mjög þjált og auð- skiljanlegt,“ útskýrir hún. „Ég hef sjálf leikið í Molière-leikriti í Frakklandi fyrir börn sem veltast um af hlátri, því þau skilja þetta svo vel.“ Sum verkin talsvert flóknari „Þessi stóru skapgerðarleikrit þar sem hann málar upp ýmis konar lesti í fólki, eru sum í bundnu máli og tals- vert erfiðari, en geta verið sérstaklega glæsileg. Leikrit eins og Loddarinn, sem sannarlega á erindi í okkar heimi í dag, hverfist til dæmis um það hvernig hægt er að beita trúnni sem valdatæki.“ Þótt Molière sé í dag eitt þekktasta gamanleikjaskáld sögunnar segir Guð- rún að ef rýnt sé dýpra megi sjá marga mannlega skapgerðareiginleika sem ýtt er út á ystu nöf. „Lestirnir nálgast brjálsemi á köf l- um og örlög einstaklinganna eru oft ansi tragísk ef maður setur sprellið til hliðar. Molière nær yfir allt sviðið. Að fólk í dag hlæi enn dátt yfir verkum hans, fjögur hundruð árum síðar, segir sína sögu.“ Guðrún bendir á að málþingið í dag einskorðist engan veginn við áhuga fólks á frönskum bókmenntum og hvetur allt leikhúsáhugafólk til að mæta. Dagskrána í heild má finna á heimasíðu Veraldar – húss Vigdísar. n TÍMAMÓT FRÉTTABLAÐIÐ 12. október 2022 MIÐVIKUDAGUR

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.