Fréttablaðið - 13.10.2022, Blaðsíða 10

Fréttablaðið - 13.10.2022, Blaðsíða 10
Ég myndi frekar vilja deyja en að lifa þennan vetur. Atli Sæmundsson Það er erfitt að geta ekki fest rætur neins staðar. Ragnar Erling Hermannsson Viðmót, samtök um mannúð- lega vímuefnastefnu á Íslandi, hélt setuverkfall í neyðarskýl- inu á Granda í gær. Samtökin krefjast þess að sett verði á laggirnar úrræði þar sem karl- menn án heimilis geti verið á daginn. Ragnar Erling Her- mannsson og Atli Sæmunds- son eru heimilislausir og kvíða vetrinum. birnadrofn@frettabladid.is SAMFÉLAG „Við erum bara að kalla eftir hjálp, það er það sem þetta snýst um,“ segir Ragnar Erling Her- mannsson, meðlimur í Viðmóti, samtökum um mannúðlega vímu- efnastefnu á Íslandi. Samtökin héldu í gær setuverkfall í neyðar- skýlinu á Granda sem er úrræði fyrir heimilislausa karlmenn á vegum velferðarsviðs Reykjavíkurborgar. Þar er opið frá klukkan fimm seinnipartinn og til tíu á morgnana alla daga. Félagar í Viðmóti krefjast þess að Reykjavíkurborg taki ábyrgð á því að það sé ekki starfrækt dagsetur fyrir heimilislausa karlmenn á dag- inn og komi slíku á laggirnar strax, annað hvort sjálf eða í samstarfi við aðra. Þá fara samtökin fram á það að öllum neyðarskýlum í Reykjavík sé ekki lokað yfir daginn sé veðurvið- vörun gul eða hærri. Nú er miðað við að loka ekki ef viðvörun vegna veðurs er appelsínugul eða rauð. Vantar fjármagn Hrafnhildur Ólöf Ólafsdóttir, deild- arstýra í málaflokki heimilislausra með miklar og f lóknar þjónustu- þarfir hjá velferðarsviði Reykja- víkurborgar, segir kröfur Viðmóts skiljanlegar. Eins og svo oft áður sé fjármagn vandamálið. „Þetta snýst um peninga, því miður,“ segir Hrafnhildur. „Það er nú þegar ekki til fjármagn fyrir því að hafa opið þegar það er appelsínugul eða rauð viðvörun en við gerum það samt. Það þarf að manna vaktina og það kostar peninga,“ bætir hún við. Hrafnhildur bendir á að dagsetur fyrir konur sé rekið af Hjálparstarfi kirkjunnar. Ragnar og Atli Sæmundsson, voru meðal þeirra sem tóku þátt í setu- verkfallinu í gær. Þeir segjast báðir bjartsýnir á að hlustað verði á kröf- ur þeirra, annað væri ómannúðlegt. „Við vitum alveg að það vill enginn að við séum úti í kuldanum en við spyrjum okkur samt af hverju það er ekkert gert, hverjir eru það eigin- lega sem taka þessar ákvarðanir?“ segir Ragnar. Hrafnhildur segir mikinn vilja hjá velferðasviði og borginni til að bregðast við og það sé verið að meta stöðuna. Ákvarðanir byggi á stefnu og stefnan sé að leggja áherslu á framboð á húsnæði frekar en aukn- ingu hjá neyðarskýlum. Ekki náðist í Heiðu Björg Hilmisdóttur, formann velferðarráðs, við gerð umfjöllunar- innar. Kvíða komandi vetri Í Reykjavík eru þrjú neyðarskýli fyrir heimilislaust fólk. Þau eru öll opin alla daga frá klukkan 17 til 10 næsta dag. Boðið er upp á kvöld- verð og morgunmat auk stuðnings og þjónustu frá VoR-teymi og starfs- fólki neyðarskýlanna. Ákveðinn fjöldi gistiplássa er í hverju neyðar- skýli en engum er vísað frá. „Þetta er erfitt fyrir okkur en það er líka erfitt fyrir starfsfólkið og þau sem vilja hjálpa okkur að geta og/ eða mega það ekki,“ segir Ragnar. „Þetta eru allt algjörar perlur og reyna allt sem þau geta en þurfa að vinna eftir ómannúðlegum reglum sem fólkið á bak við tjöldin setur,“ bætir hann við. Atli og Ragnar kvíða komandi vetri og kuldanum sem búast má við. Þeir segjast ekki hafa í nein hús að venda. Spurðir hvar þeir hafi hafst við síðastliðinn þriðjudag þegar mikil rigning var í Reykjavík segjast þeir hafa leitað skjóls í bíla- kjallara. „Það er eini staðurinn sem við þannig séð fáum að vera á og fáum frið, en samt erum við líka reknir þaðan út ef einhver kemur,“ segir Atli. Ragnar og Atli neyta báðir vímu- efna og segjast finna fyrir miklum fordómum í sinn garð. „Því miður er mikið stigma í samfélaginu varð- andi það. Það er ekki litið á þetta sem veikindi og við erum ekki vel- komnir á mörgum stöðum,“ segir Ragnar. Kvíðið þið vetrinum? „Já, ég er mjög kvíðinn og stress- aður,“ segir Ragnar. „Við getum fengið hlý föt og svona í skýlinu en sama hvað maður er vel klæddur þá er manni samt kalt ef maður er úti allan daginn,“ segir hann. „Ég myndi frekar vilja deyja en að lifa þennan vetur. Ekki bara af því ég er heimilislaus heldur út af neysl- unni og mörgu öðru,“ segir Atli. Finnst þér þú ekki fá hjálpina sem þú þarft? „Nei, eiginlega ekki, ég veit ekki hvað ég er búinn að bíða í mörg ár eftir íbúð en það er alltaf einhver á undan mér,“ segir Atli. Einstaklingsmiðuð úrræði Atli og Ragnar eru sammála um að nauðsynlegt sé að þau úrræði sem í boði eru séu einstaklingsmiðuð. Ekki geti allir búið einir í íbúð og sumir séu til að mynda veikir og þurfi á læknisaðstoð að halda. Undir orð þeirra tekur Ásbjörg Una Björnsdóttir, forstöðukona Gistiskýlisins á Granda. Hún segir grunnvandamálið það að einstakl- ingar þurfi að vera til langtíma í neyðarskýlum. Samkvæmt tölfræði Reykjavíkurborgar frá október 2021 eru 214 karlmenn og 87 konur heim- ilislaus í Reykjavík og um 30 prósent þeirra eru í neyðarskýlum. Þar er ekki ætlast til að fólk sé lengur en í þrjátíu daga. „Það þarf að horfa á þarfir hvers og eins og mæta þeim,“ segir Ásbjörg. „Það á enginn að þurfa að búa hér til lengri tíma og það á eng- inn að þurfa að upplifa það að hafa í engin hús að venda.“ Ásbjörg segir að í neyðarskýlinu á Granda séu fimmtán rúm en að vanalega sofi þar átján manns. „Við erum með þrjá sófa þar sem þrír geta fengið að hvíla sig. Ef það koma fleiri þá erum við í sambandi við gistiskýlið á Lindargötu og í algjörum neyðartilvikum hringjum við í lögregluna og menn fá að sofa í fangageymslu,“ segir hún. Í gistiskýlinu á Lindargötu eru 25 gistipláss sem Ingi Þór Eyjólfsson, forstöðumaður þar, segir fullnýtt á hverri nóttu. Hann segir að meðal- tali um fimmtíu manns dvelja í neyðarskýlum í Reykjavík á hverri nóttu, á Lindargötu, Granda og í Konukoti. Vantar Skjól fyrir karla Í febrúar á síðasta ári var Skjólið opnað á vegum Hjálparstarfs kirkjunnar að frumkvæði biskups Íslands. Þangað geta heimilislausar konur leitað yfir daginn og þar er boðið upp á hádegismat, hrein- lætis- og þvottaaðstöðu ásamt því að aðstaða er til hvíldar og tóm- stundaiðkunar. Þar geta konurnar einnig komist í tölvu. „Þetta er akkúrat það sem við erum að tala um að okkur vanti og okkur er það óskiljanlegt að við getum ekki fengið líka,“ segir Ragnar. Rósa Björg Br y nja r sdót t ir, umsjónarkona Skjólsins, segir að gengið hafi virkilega vel frá því Skjólið var opnað. Þangað hafi leit- að 94 konur frá opnun, þar af 59 á þessu ári. „Að meðaltali hafa komið um átta til ellefu konur til okkar á dag núna í október,“ segir hún. „Við höfum bara fengið góð við- brögð frá konunum okkar og fagað- ilum. Þeir tala um að auðveldara sé að nálgast konurnar og hér er opið á skrifstofutíma sem er einmitt tíminn þegar maður sækir um vinnu, hittir ráðgjafa og svo fram- vegis,“ segir Sara. Hún segir að þegar Skjólið hafi verið opnað hafi verið framkvæmd þarfagreining þar sem í ljós kom að þörfin var mest fyrir að opna úrræði fyrir konur sem opið væri að deginum til. „Það er samt klárt mál að það þarf líka svona úrræði fyrir karlana.“ Ragnar og Atli segjast þakklátir fyrir þá þjónustu sem þeir fái í neyð- arskýlinu en að dagarnir séu erfiðir. „Við erum í þeirri stöðu að við erum bara að drepa tímann og það er erf- itt að gera það þegar maður er alltaf í lausu lofti,“ segir Atli. „Það er erfitt að geta ekki fest rætur neins staðar,“ segir Ragnar. „Ég er fullfær um að vinna og er alveg til í að vakna á morgnana og fá mér kaffibollann minn, gera mig til og fara í vinnu en ég bara hef enga fótfestu og þá get ég það ekki,“ bætir hann við. „Við munum ekki gefast upp,“ segir Ragnar. „Ég hef fulla trú á því að það verði gengist við okkar kröfum, sérstaklega ef við höldum áfram að berjast fyrir þeim, annað hvort það eða við sitjum bara hér og förum ekkert út.“ n Heimilislausir og kvíða vetrinum Neyðarskýlið á Granda er úrræði fyrir heimilislausa karla. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Viðmót, samtök um mannúðlega vímuefnastefnu á Íslandi, stóðu fyrir setuverkfalli í neyðarskýlinu á Granda í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/BIRNA 10 Fréttir 13. október 2022 FIMMTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.