Fréttablaðið - 13.10.2022, Blaðsíða 40

Fréttablaðið - 13.10.2022, Blaðsíða 40
tsh@frettabladid.is Á þriðjudag hélt Þjóðleikhúsið mál- þing um samfélagsleg áhrif birting- armynda í listum og inngildingu jað- arhópa. Undanfarnar vikur hefur átt sér stað mikil umræða um þessi mál í kjölfar þess að Nína Hjálmarsdóttir, sviðslistarýnir Víðsjár, birti pistil um söngleikinn Sem á himni þar sem hún gagnrýndi Þjóðleikhúsið meðal annars fyrir að láta ófatlaðan mann leika fatlaða persónu. Inga Björk Margrétar Bjarnadóttir, listfræðingur og aðgerðasinni, er ein þeirra sem héldu erindi á málþing- inu. Hún segir það vera mjög jákvætt að fatlað fólk hafi fengið tækifæri til að ræða þessi mál við fulltrúa helstu menningarstofnana landsins svo sem þjóðleikhússtjóra, rektor Lista- háskóla Íslands og forseta Bandalags íslenskra listamanna. „Það er mjög sjaldan sem réttindi fatlaðs fólks fá að vera í svona mikl- um brennidepli. Það var náttúr- lega bara alveg einstök upplifun og ótrúlega kraft- mikil erindi. Það var mikið af fag- fólki í salnum og ég hef fengið mjög mikil viðbrögð frá leikurum og fólki í sviðslistasenunni sem var mjög ánægt með að geta tekið þátt í þessu samtali. En nú er náttúrlega kominn tími til að fylgja þessu eftir og leyfa ekki þessum stofnunum að komast upp með það sem hefur viðgengist áratugum saman,“ segir hún. Nína Hjálmarsdóttir var einn- ig viðstödd málþingið og segir það magnað að sjá hversu sterkt fatlað fólk hefur komið inn í umræður síðustu vikna. „R æðu r gær- dagsins sýna að nú verður ekki lengur hægt að láta sem ekkert hafi í skor- ist. Á málþinginu afhjúpaðist hversu illa menningar- stofnanir okkar eru undirbúnar til að taka á þessum löngu tímabæru breytingum, sem sést á því að þær eru hvorki tilbúnar til að taka ábyrgð á mistökum sínum né heldur grípa til nauðsynlegra aðgerða til að koma fötluðu fólki og öðrum jaðarhópum í listræn hlut- verk og valdastöður innan geirans. Ég vona að valdhafar þori að hlusta á þessar raddir, og taka til sín slagorðið „ekkert um okkur án okkar“. Breyt- ingin er hafin og stofnanir verða að vera með, annars eiga þær á hættu að heltast úr lestinni.“ n Þetta er bæði samtal við safnið og safneign- ina og líka samtal á milli hinsegin kyn- slóða, sem er mjög spennandi. Ynda Eldborg Nýlistasafnið skoðar hin- seginleika og hinsegin list á nýrri sýningu. Viktoría Guðnadóttir og Ynda Eldborg könnuðu safneign Nýló og fengu hinsegin listafólk til að skapa nýja list í samtali við eldri verk. tsh@frettabladid.is Um síðustu helgi opnaði Nýlista- safnið sýninguna Til sýnis: Hin- segin umfram aðra, sem ætlað er að varpa ljósi á hinsegin myndlist í safneign Nýlistasafnsins í samtali við ný verk eftir framsækið hin- segin listafólk. Sýningunni stýra þær Ynda Eldborg listfræðingur og Viktoría Guðnadóttir myndlistar- manneskja. Viktoría: „Þegar við komum með þessa tillögu til Nýlistasafnsins, um að gera hinsegin sýningu, þá kom fram hugmyndin að taka einhvern veginn safneignina inn í sýning- una. Við fórum í gegnum safneign Nýlistasafnsins og völdum verk sem við gátum á einn eða annan hátt f lokkað sem hinsegin. Það voru 54 verk og síðan báðum við listafólk um að taka eitt af þeim verkum og búa til nýtt verk byggt á því.“ Listafólkinu var frjálst að velja hvaða verk sem var úr safneign Nýló og búa til nýtt verk án nokk- urra hamla. Nýju verkin og verkin úr safneigninni eru svo sýnd sam- hliða á sýningunni. Breitt aldursbil listafólks Ynda segir þær hafa handvalið lista- fólkið sem tekur þátt í sýningunni, sem er allt hinsegin, og lagt áherslu á að hafa aldursbilið nokkuð breitt. Ynda: „Ég held að yngsta lista- manneskjan sé í kringum 24 ára og ennþá í Listaháskólanum. Síðan eru Anna Hallin og Olga Bergmann, sem eru mjög sjóaðar. Þetta er bæði sam- tal við safnið og safneignina og líka samtal á milli hinsegin kynslóða sem er mjög spennandi.“ Eitt af því sem þær Viktoría og Ynda höfðu til hliðsjónar þegar þær settu saman sýninguna er módel sem ber heitið FLINT sem er upp- runnið í Þýskalandi og stendur fyrir Female, Lesbian, Intersex, Non-Bin- ary og Trans. Karlmenn njóti forgangs Ynda: „Við þurfum ekkert að leita langt til að sjá það að karlmenn njóta algjörs forgangs í myndlistar- heimi samtímans. Þetta kerfi sem ríkir hefur gert svo margt fólk ósýni- legt. Í fræðilegu samhengi eigum við mjög mikið póstmódernismanum að þakka og femínistahreyfingum.“ Ynda nefnir sérstaklega kvenna- sýninguna Hér og nú sem haldin var á Kjarvalsstöðum í tilefni Listahá- tíðar kvenna 1985. Hún segir þá sýn- ingu hafa verið ákveðna fyrirmynd fyrir Til sýnis: Hinsegin umfram aðra. Ynda: „Í þeirri sýningu voru konur teknar út úr þessu algilda módeli og urðu að sérstakri stærð. Það er líka það sem okkur langar til að gera, að hinsegin listafólk geti búið til sína myndlist á sínum eigin forsendum án þess að vera bundið af hefðarveldi feðraveldisins.“ Er kominn tími til að hinsegin listafólk fái uppreist æru í listheim- inum? Ynda: „Algjörlega! Þótt fyrr hefði verið. Það eru til sögur um hinsegin listafólk í íslenskri listasögu en því hefur verið ýtt til hliðar og það ekki fengið að tala á eigin forsendum.“ Rétt sýning á réttum tíma Um þessar mundir er mikið rætt um bakslag í réttindum hinsegin fólks. Spurðar hvort þeim finnist listin vera mikilvægur liður í þeirri baráttu segja þær Viktoría og Ynda: Viktoría: „Það er alltaf mikil- vægt að hinsegin fólk sé sýnilegt og það þarf að vera alls staðar í sam- félaginu, líka í listheiminum. Til að vinna á móti bakslagi þá er það mikilvægt.“ Ynda: „Að því leytinu til þá er þessi sýning rétta sýningin á rétta tímanum, því allt listafólkið sem sýnir er ekkert að fela neitt. Hvorki pólitísk viðhorf, né viðkvæmni eða brothætta tilveru, heldur er bara allt sett fram af fullum krafti og sann- færingu.“ Stóru skrefi náð Funduð þið einhver sameiginleg þemu eða þræði í verkum lista- fólksins? Ynda: „Við vorum ekki að reyna að draga fram einhverja sameigin- lega þræði, heldur miklu frekar að reyna að sýna hvernig listafólk af ólíkum kynslóðum nálgast þennan menningararf í Nýló á ólíkan hátt. Það er að sýna sig betur og betur að unga hinsegin listafólkið er að öðl- ast fyrirmyndir og er að fatta að það hefur rödd sem skiptir máli. Ef við getum hjálpað þeim að finna sína eigin rödd á sínum eigin forsendum, þá er stóru skrefi náð.“ Þær Viktoría sammælast um að þótt hinsegin listafólk fái ekki oft brautargengi á listasöfnum þá sé mikil gróska í hinsegin listasenunni. Viktoría: „Það er gróska, það bara hefur ekki komist inn í listasöfnin þangað til núna.“ Ynda: „Það skiptir máli að þessar raddir fái að heyrast.“ n Raddir hinsegin fólks fái að heyrast Kamilla Einarsdóttir rithöfundur segir lesendum Frétta- blaðsins frá list- inni sem breytti lífi hennar. „Þegar ég hitti fólk sem segir mér að það hafi fengið gallsteina skríki ég alltaf og klappa saman lóf- unum af spenningi og gleði. Þetta hefur fækkað nokkuð í núverandi og tilvonandi vinahóp mínum því fólki finnst þetta, nokkuð skiljan- lega, bera vott um skort á allri samhygð hjá mér. Uppáhaldsbókin mín í öllum heiminum er bókin Læknamafían, lítil pen bók, eftir Auði Haralds sem fjallar einmitt um konu sem fær gallsteina. Ég get opnað hana hvar sem er og fer alltaf að hlæja en hugsa líka um hvað þetta er mikil snilld. Hvernig Auður lýsir í þessari bók líf- inu sem einstæð móðir sem lendir í að þurfa að eiga við sérfræðinga er svo brjálæðislega fyndið en líka hræðilega sárt og grimmt. Þess vegna er þetta bók sem ég bæði græt og hlæ við að lesa. Í þau blessunarlega fáu skipti sem ég hef sjálf þurft að eiga við lækna og spítala út af einhverju hjá mér og mínum nánustu hef ég oft getað kímt og brosað út í annað á sárum augnablikum því eitthvað hefur þá minnt mig á þessa bók. Það var mér mikil gæfa að lesa Læknamafíuna sem unglingur því alltaf síðan þá þegar mér finnst lífið hræðilega erfitt vaknar hjá mér vonarneisti um að kannski geti ég þá líka einn daginn skrifað um það jafn góða bók og Læknamafían er. Það gerir vondar uppákomur í lífinu miklu þolanlegri að vita að allt getur orðið góð saga seinna.“ n n Listin sem breytti lífi mínu Viktoría Guðnadóttir og Ynda Eldborg segja löngu kominn tíma á að raddir hinsegin fólks heyrist í listheiminum. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Einstök upplifun og kraftmikil erindi Inga Björk Nína 24 Menning 13. október 2022 FIMMTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐMENNING FRÉTTABLAÐIÐ 13. október 2022 FIMMTUDAGUR

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.