Fréttablaðið - 13.10.2022, Blaðsíða 36
Þetta var algjörlega
óþekkt í íslensku skóla-
kerfi á þessum tíma, að
skóli af þessari tegund
væri einvörðungu rekinn
af grasrótinni.
Viðar Eggertsson
Elsku hjartans móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
Þóra Sigurjónsdóttir
húsmóðir,
áður til heimilis að Boðaþingi 6,
Kópavogi,
lést á Hrafnistu í Hafnarfirði laugardaginn
8. október. Útför fer fram mánudaginn 17. október frá
Kópavogskirkju kl. 13.00.
Sigurjón Birgisson Mjöll Kristjánsdóttir
Guðlaug Birgisdóttir Sigvaldi Einarsson
Birgir Birgisson Elín Rós Hansdóttir
Ásdís Ásgeirsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma, langamma og langalangamma,
Bryndís Elsa Sigurðardóttir
Hraunvangi 7,
Hafnarfirði,
lést á Hrafnistu í Hafnarfirði
16. september. Útförin hefur farið
fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Steinþór Einarsson Sylvie Primel
Guðný Elísabet Einarsdóttir Einar Eyjólfsson
og ömmubörn
Elskulegur eiginmaður minn, faðir
okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
Guðmundur Samúelsson
lést sunnudaginn 2. október á
hjartadeild Landspítalans.
Útförin fer fram frá Guðríðarkirkju
mánudaginn 17. október kl. 15.
Guðrún Jóhannsdóttir
Samúel Guðmundsson Halldóra Kristín Helgadóttir
Jóhann Guðmundsson Hafdís Rósa Sæmundsdóttir
Ingimundur Guðmundsson Harpa Hafberg Gunnlaugsd.
afa- og langafabörn
Innilegar þakkir fyrir samúð og hlýhug
við andlát og útför móður okkar,
tengdamóður, ömmu og langömmu,
Elínar Óladóttur
Kirkjusandi 1,
Reykjavík.
Guðrún Björnsdóttir Trausti Sigurðsson
Arndís Björnsdóttir Sigurður Einarsson
Jens Gunnar Björnsson
barnabörn og barnabarnabörn
Elsku eiginkona mín, mamma okkar,
tengdamamma, amma, dóttir,
tengdadóttir og systir,
Eva Hrund Pétursdóttir
iðjuþjálfi,
Hlíðarbraut 13, Blönduósi,
sem lést þann 21. ágúst, verður jarðsungin
frá Bústaðakirkju þriðjudaginn 18. október klukkan 13.
Beint streymi frá athöfninni verður á vefnum:
skjaskot.is/evahrund
Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir.
Þeim sem vilja minnast Evu er bent á styrktarreikning
fjölskyldu hennar, reikningsnúmer 0307-26-4701,
kennitala 470169-1689.
Kári Kárason
Sandra Dís Káradóttir Björn Þór Sveinbjörnsson
Hilmar Þór Kárason Heba Björg Þórhallsdóttir
Pétur Arnar Kárason Rakel Reynisdóttir
Karen Sól Káradóttir Ásgeir Þröstur Gústavsson
Pétur Guðmundsson
Kári Snorrason
barnabörn og systkini
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Ólöf B. Jónsdóttir
lést á hjúkrunarheimilinu Eir
sunnudaginn 2. október.
Útförin fer fram frá Grafarvogskirkju
föstudaginn 14. október kl. 10.
Magnús Atli Guðmundsson Guðrún Torfhildur Gísladóttir
Jón Pálmi Guðmundsson Þórhildur Lilja Ólafsdóttir
og ömmubörn
Mynd tekin árið 1975 í tilefni jarðarfarar Sálar, varanlegra skólaslita. MYND/JÓN HÓLM
Myndin tekin við leikfimikennslu skólans sem fór fram í ÍR-húsinu.
Fimmtíu ár eru liðin frá því að
Leiklistarskóli SÁL, Sálskólinn
svokallaði, var stofnaður. Skólinn
var einstakur að því leyti að hann
var stofnaður og rekinn af nem-
endum sínum.
arnartomas@frettabladid.is
Í ár eru liðin fimmtíu ár frá stofnun Leik-
listarskóla SÁL. Hópurinn þar að baki
hafði myndað samtökin SÁL, Samtök
áhugafólks um leiklistarnám, með það
að markmiði að hér á landi yrði starf-
ræktur fullgildur leiklistarskóli.
Veturinn 1971 til 1972 var enginn leik-
listarskóli starfandi á landinu þar sem
leiklistarskóla Þjóðleikhússins og leik-
listarskóla Leikfélags Reykjavíkur hafði
báðum verið lokað til þess að knýja á um
að stofnaður yrði ríkisrekinn leiklistar-
skóli sem yrði fullgildur skóli.
Meðan þetta ástand ríkti fór ungt fólk
sem hafði áhuga á að stunda leiklistar-
nám að skoða hvernig leiklistarnámi
væri hagað í öðrum löndum þar sem það
var á háskólastigi. Þegar miklu efni um
þá skóla hafði verið safnað saman ákvað
hópurinn að stofna skólann sjálfur.
„Skólinn var stofnaður og rekinn af
nemendunum sjálfum sem sáu bæði
um að ráða kennara og jafnvel að reka
þá ef þyrfti,“ segir Viðar Eggertsson sem
tók þátt í stofnun skólans. „Þetta var
algjörlega óþekkt í íslensku skólakerfi á
þessum tíma, að skóli af þessari tegund
væri einvörðungu rekinn af grasrótinni
án þess að yfirvöld kæmu þar að. Þetta
fór auðvitað aðeins í taugarnar á ráðandi
fólki í leikhúsgeiranum.“
Ekki síður nám í skólarekstri
Stofnun skólans var að sögn Viðars í
rauninni líka tilraun í skólarekstri og
skoðun á uppbyggingu leiklistarnáms.
„Það var strax hugsað að þetta yrði
heilsdagsskóli með fjögurra ára námi,
þrjú ár í akademísku námi og fjórða árið
væri nemendaleikhús rekið af nemend-
unum sjálfum,“ segir Viðar. „Þegar upp
var staðið voru þrír árgangar í skólanum
þar til Leiklistarskóli Íslands var stofn-
aður af ríkinu 1975. Sá var að megninu
til byggður á hugmyndafræði Sálskólans
og megnið af kennurunum fór beint
þangað inn.“
Viðar segir að stemningin í skólanum
hafi verið mikil.
„Það var mikið haldið af allsherjar-
fundum þar sem skólanum var stjórnað.
Þar var mikið deilt og skipst á skoðunum
áður en ákvarðanir voru teknar eftir
langar og miklar fundarsetur,“ segir
hann. „Við í fyrsta árgangi útskrifuð-
umst ekki síður í því að reka leiklistar-
skóla. Við hefðum þess vegna getað
orðið skólastjórar eða stjórnarformenn
í listaháskólum eftir þetta!“
Samheldinn árgangur
Stofnárgangur Sálskólans heldur enn
þá hópinn í dag. „Við hittumst tvisvar
á hverju einasta ári, alveg frá útskrift.
Alltaf á gamlársdag milli klukkan eitt og
þrjú, á þessum dauða tíma sem enginn
veit hvað hann á að gera við, þá hittumst
við í pálínuboði,“ segir Viðar. „Á sumrin
förum við alltaf í ferðalag, annað hvort
til útlanda eða innanlands. Ég held það
séu fáir árgangar sem halda jafn vel hóp-
inn eftir öll þessi ár.“
Í tilefni af tímamótunum verður
opnuð sýning í Þjóðarbókhlöðunni á
lokuðum viðburði á morgun þar sem
saga skólans er rekin. n
Skóli sem var stofnaður og
rekinn af nemendunum
Merkisatburðir
1987 Kýrin Harpa syndir yfir Önundarfjörð frá Flateyri að
Kirkjubóli í Valþjófsdal á flótta þegar leiða á hana til
slátrunar. Eftir sundafrekið er hún nefnd Sæunn og
fær að lifa lengur.
1989 Dow Jones-vísitalan fellur um 190,58 stig vegna
hruns áhættubréfamarkaðarins.
1994 Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar eru
veitt í fyrsta sinn og hlýtur þau Helgi Ingólfsson.
1996 Strandarkirkja í Selvogi er endurvígð eftir miklar
endurbætur.
1997 Gamanþátturinn Fóstbræður hefur göngu sína á
Stöð 2.
2000 Starfsgreinasamband Íslands er stofnað.
2010 Þrjátíu og þremur námuverkamönnum sem lokaðir
höfðu verið inni í San José-námunni í Chile í 69
daga er bjargað upp um holu sem boruð hafði verið
niður til þeirra og er um 60 cm í þvermál.
TÍMAMÓT FRÉTTABLAÐIÐ 13. október 2022 FIMMTUDAGUR