Fréttablaðið - 14.10.2022, Page 14
„Ég samdi fyrst lag þegar ég var sjö
ára. Það hét Ég hjólaði á staur, og
fjallaði um þegar ég sá pabba keyra
fram hjá mér á bíl og ég hjólaði
óvart á staur. Það gerðist ekki í
alvörunni þannig að ímyndunar
aflið var ekki síður vel virkt þá og
aldrei að vita nema það komi út á
plötu einn daginn.“
Þetta segir Sunna Guðlaugsdótt
ir í hljómsveitinni Tsunnami sem í
dag gefur út fyrstu stuttskífuna af
fjórum sem bera nöfn árstíðanna;
sumar, vetur, vor og haust, en
Haust ríður á vaðið.
„Við erum einn Íslendingur, tveir
Færeyingar og Dani í bandinu.
Við kynntumst við nám í Royal
Academy of Music í Árósum. Ég hef
alltaf laðast að Færeyingum og á
mikið af færeyskum vinum og við
í bandinu smullum bara saman.
Eini Daninn í hljómsveitinni er
meira að segja hálfur Færeyingur
og þó að hann hafi bara komið
þangað einu sinni lítum við á
færeyska blóðið sem mikinn
gæðastimpil,“ segir Sunna um sitt
norræna band.
Spurð hvort Norðurlandabúar
séu í raun allir eins og vinni sem
einn hugur, svarar Sunna:
„Nei, alls ekki. Mér finnst
Íslendingar og Færeyingar eiga
meira sameiginlegt, og held að
einangrunin sem felst í því að
búa sitt á hvorri eyjunni í Atlants
hafinu geri það að verkum.
Íslendingar æða meira út í hlutina
og láta vaða á meðan Danir þurfa
að íhuga allt frá öllum hliðum. Það
væri ákjósanlegt ef maður gæti lent
einhvers staðar þarna í miðjunni.“
En hvað einkennir tónlistar
sköpun nútíma víkinga, eins og
upprunalegu víkinganna í Tsunn
ami?
„Ég fæ oft að heyra að laga
smíðarnar og útsetningarnar séu
„stórbrotnar“, en held að fólk sé
að meina að þær séu dramatískar
á jákvæðan hátt. Á dönsku segir
maður að það sé „hátt til lofts“ í
tónlist og það heyrist í náttúrunni
og víðáttunni. Ég veit ekki hvort
það sé satt, en hef lúmskt gaman
af þessu. Maður getur varla verið
frá Íslandi með sína öfgafengnu
veðráttu og náttúru án þess að vera
svolítið öfgafullur sjálfur,“ segir
Sunna glettin.
Konur geta líka verið reiðar
Nafngiftin Tsunnami vísar í nafn
Sunnu og stórrar flóðbylgju.
„Það byrjaði sem grín en svo fór
ég að nota nafnið af alvöru því mig
langar að skapa tónlist sem skellur
svolítið á fólki, meina það sem ég
segi og vera með svolítinn upp
steyt. Svo er nafnið líka tilvísun í
náttúruöflin sem ég sæki inn
blástur í,“ útskýrir Sunna.
Hún semur öll lögin og textana á
árstíðaplötunum.
„Hugmyndin kviknaði haustið
2020 þegar ég flúði til Íslands í
nokkra mánuði þegar allt lokaði í
Danmörku vegna Covid. Þá ákvað
ég að reyna að semja lög við ljóð
sem ég hafði samið á dönsku og
lögin bara flæddu út. Við tókum
svo upp tíu lög á plötu en mér
fannst samhengið ekki nógu
gott og sagan sem sögð var ekki
nógu sterk. Því settist ég niður og
skoðaði öll lög sem ég hafði samið
á einu ári og tók eftir miklum mun
í textunum og lagasmíðunum, eftir
því á hvaða árstíð þau voru samin.
Þar með fór ég að gæla við hug
myndina að tvöfalda verkefnið og
gefa í staðinn út fjórar smáskífur
með samtals tuttugu lögum og láta
útsetningarnar endurspegla til
finningarnar í lögunum og tilfinn
ingar sem ég tengi við árstíðirnar,
og úr varð verkið Et års tid ,“
upplýsir Sunna.
Lagasmíðar Sunnu á Hausti
Frá vinstri eru Færeyingarnir Árni Jóhannesson og Rasmus Vigant Samuelson, Sunna og Daninn Mikkel Mikkelsen. MYND/VIKTOR BIRGISSON
Þórdís Lilja
Gunnarsdóttir
thordisg
@frettabladid.is
eru sterkar, töff, ásæknar og elta
hlustandann. Þær kostuðu líka
mikil átök.
„Öll haustplatan er reið og
grimm. Ég hef oft átt í baráttu við
sjálfa mig og mitt skap. Ég hef alltaf
verið mjög ákveðin og fundist ég
sem kona þurfa að dempa það til
að vera ekki stimpluð frek eða of
framhleypin. Á haustplötunni
ákvað ég að leyfa mér að vera allt
þetta og vera stolt af því. Draumur
inn er að normalísera að fólk sé alls
konar og að persónuleikar tengist
ekki kyni. Að konur geti líka verið
reiðar og það sé bara allt í lagi.“
Sunna segir tónsmíðarnar á
árstíðaplötunum vera tilraun til
að sýna allar tilfinningar og hliðar
þess að vera manneskja.
„Plöturnar lýsa einu ári í lífi
manneskju sem hefur náð botn
inum eða klesst á vegg og þarf að
byggja sig upp aftur. Það er meiri
háttar ferli og í þessu tilviki gerist
þróunin í takt við árstíðaskiptin.
Innblásturinn kemur að sumu
leyti úr eigin lífi en ég hef einnig
mikinn áhuga á fólki og hvernig
það upplifir hlutina. Ég held að
mörgum líði eins og þeir séu einir
í heiminum að upplifa tilfallandi
tilfinningar en sannleikurinn er
sá að við erum ekkert svo sérstök
þegar kemur að því og tilfinningar
eru allra manna eign.“
Hún fer yfir viðfangsefni sköp
unarverks síns:
„Haustplatan er óvægin með
fókusinn út á við, á allt það sem
allir aðrir eru að gera vitlaust til
að þurfa ekki að horfa inn á við.
Eins og stormur að hausti reyni
ég að lýsa þeirri tilfinningu að
vera á endalausum hlaupum til að
þurfa ekki að staldra við og horfast
í augu við sjálfa mig. Á vetrar
plötunni er komin meiri stilla,
mikil sjálfsskoðun og sorg. Á vor
plötunni byrjar allt að gróa og hún
lýsir einfeldnislegri gleði þegar
byrjar að hlýna á ný og það vaknar
svolítil von. Sumarplatan er bara
hrein gleði og áhyggjuleysi.“
Svolítil gredda alltaf heillað
Sunna útskrifaðist í sumar með
háskólagráðu í söng við popp og
nútímadeild Royal Academy of
Music í Árósum.
„Ég hef alltaf sungið og samið,
en í náminu lærði ég ótrúlega
mikla tækni. Ég var svo heppin að
aðalkennarinn minn skildi mig og
skynjaði að ég yrði ekki söngkona
sem syngi djassstandarda. Hann
reyndi því ekki að þröngva slíku
upp á mig heldur unnum við allt út
frá mínum lögum og einblíndum
á að finna minn eigin stíl þegar
kom að rödd og túlkun,“ útskýrir
Sunna.
Hún kemur úr hæfileikaríkri
tónlistarfjölskyldu en faðir hennar
er Guðlaugur Hjaltason í hljóm
sveitinni Nýríki Nonni, móðir
hennar syngur í kór og bróðir
hennar er tónlistarmaðurinn
Huginn.
„Heima fékk ég einstaklega gott
tónlistaruppeldi. Ég elska Elly og
Vilhjálm, Ingimar Eydal og margt
af þessu íslenska, en þegar ég
heyrði Björk syngja á Gling Gló
plötunni, og söngkonur eins og
Janis Joplin og Kate Bush, hugsaði
ég að mig langaði að syngja eins og
þær. Ég hlustaði líka á Ísbjarnar
blúsinn hans Bubba í ræmur og
öll tónlist sem er svolítið óhamin,
ófullkomin, tekur sig ekki of
hátíðlega og sem svolítil gredda
er í hefur alltaf heillað mig,“ segir
Sunna sem fær mikinn stuðning
frá fjölskyldunni.
„Þau hafa hjálpað mér að koma
heim þegar ég hef þurft á Íslands
skammti að halda, hýstu okkur
hljómsveitina þegar við komum
til Íslands til að taka upp í vita á
Akranesi, hvetja mig áfram þegar
ég hef orðið efins með þetta stóra
verkefni, mæta á tónleika hér úti
og dýrka strákana í hljómsveitinni
minni. Það er mikil gjöf og dýr
mætt að eiga vini og fjölskyldu sem
hafa trú á manni og því sem maður
fæst við, því trúin á sjálfa mig er
stundum hvikul.“
Vann á bókasafninu tíu ára
Árstíðaplöturnar hafa tekið tíma
Sunnu í tvö ár og skrifaði hún
lokaritgerð við Royal Academy of
Music um árstíðirnar og náttúruna
sem aðalviðfangsefni. Á plötunum
semur Sunna og syngur eigin
texta á dönsku, sem fallið hefur
vel í kramið hjá frændum vorum í
Danaveldi.
„Danir elska allt sem tengist
Íslandi og ég segi oft að ódýrasta
trixið í bransanum sé að vera
frá Íslandi. Ég er oft beðin um að
syngja eitthvað á íslensku og segi
þeim þá að bíða þar til vetrar
platan kemur út, því hugsanlega er
smá glaðningur á þeirri plötu.“
Hún hefur gríðargott vald á
dönsku og íslensku tungutaki og
orðaforða.
„Ég hef alltaf lesið mikið og
byrjaði að vinna á bókasafninu á
Skagaströnd þegar ég var tíu ára.
Ég hef oftar en einu sinni heyrt að
sem krakki hafi ég talað eins og
gömul kona, og það kemur pott
þétt úr öllum bókunum sem ég
las. Ég er tungumálanörd og elska
að spá í hvernig samfélagið mótar
tungumálið og öfugt. Svo heyri
ég oft að ég sé skýrmælt, bæði á
íslensku og dönsku, og að fólk skilji
hvert orð sem ég syng. Ég held það
stafi af því að ég hef alltaf haft svo
mikið að segja að ég þurfti að bera
allt skýrt fram til að þurfa ekki að
endurtaka mig og missa þannig
dýrmætan tíma sem ég gæti ann
ars eytt í að tala meira. Ég reyni
að lesa eins mikið og ég get og les
mest íslenskar bókmenntir þessa
dagana,“ greinir Sunna frá.
Hún segist vita að Íslendingar
þoli fæstir dönsku og finnst það
synd því eftir allt saman sé
danskan svöl.
„Ég upplifi oft að bæði Íslend
ingar og Danir skilji ekki að ég
vilji semja á dönsku en ég elska
hvað danskan er einföld og á ekki
til jafn mörg orð yfir hlutina og
íslenskan. Ég fæ hálfgert víðáttu
brjálæði þegar ég ætla að semja á
íslensku og finnst dönsku text
arnir mínir oft verða einlægari og
hreinskilnari því ég get ekki lyft
þeim upp á jafn hátt og abstrakt
plan og á íslensku. Ég nota samt
oft íslensk orð í textunum mínum,
sem til eru á dönsku en orðin úreld
og ekki notuð í daglegu máli. Það
gefur dönskunni skemmtilegan
blæ og gerir textana enn persónu
legri. Mér finnst danskan æðisleg
og vildi óska þess að Íslendingar
gæfu henni aðeins meiri séns,
vegna þess að því fleiri tungumál
sem maður lærir, því betur skilur
maður þau sem maður kann fyrir.“
Fær af og til gríðarlega heimþrá
Sunna bjó sem unglingur í Dan
mörku en flutti heim orðin nítján
ára og svo aftur út fyrir sex árum.
Hún býr nú í Kaupmannahöfn
og segist ástfangin af borginni og
lífinu þar.
„Ég elska hvað veðráttan í
Danmörku er mild og fólk spáir
lítið í hvað öðrum finnst um
það. Danir borða bara nestið sitt
á bekk í miðri stórborg og hafa
það „hyggeligt“. Að sama skapi
elska ég kraftinn í Íslendingum og
íslenskri náttúru, og hversu mikið
af skapandi fólki er að gera spenn
andi og tilraunakennda hluti,“
segir Sunna.
Henni líður iðulega eins og hún
sé klofin á milli tveggja landa.
„Mig langar ekki að búa á Íslandi
því ég fíla stemninguna í dönsku
samfélagi svo vel. En við og við fæ
ég gríðarlega heimþrá og þarf mjög
reglulega að komast til Íslands.
Draumurinn er að eiga lítið hús
heima, þar sem ég get samið og
skrifað, því ég fyllist alltaf rosalegri
andagift þegar ég kem til Íslands,“
segir Sunna.
Hún er alltaf á heimleið en veit
ekki hvenær það verður næst.
„Mig langar rosalega að koma
heim og spila en þarf að sjá hvort
Íslendingar séu opnir fyrir tónlist
á dönsku. Ég er líka byrjuð að
skrifa íslenska skáldsögu og þegar
ég er búin að gefa út allar þessar
plötur langar mig að einbeita mér
að henni. Vetrarplatan kemur út
í febrúar og fyrsta lagið af þeirri
plötu í janúar, en það er tvö
föld útgáfa, sungin á íslensku og
dönsku. Svo koma vor og sumar
plöturnar í lokin. Mig langar líka
að gefa út ljóðabók ásamt plöt
unum fjórum á vínyl. Það er frekar
dýrt og stórt verkefni, en það er
draumurinn.“
Hlustið á Tsunnami og Haust á
Spotify og fleiri streymisveitum og
fylgist með Sunnu á Instagram og
Facebook #tsunnami n
Allt er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og
umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit-
stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Guðmundur
Hilmarsson, gummih@frettabladid.is s. 550 5766 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir,
sandragudrun@frettabladid.is, s. 550 5762 | Starri Freyr Jónsson starri@frettabladid.is,
s. 550 5767 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768
Útgefandi:
Torg ehf.
Ábyrgðarmaður:
Jón Þórisson
Sölumenn:
Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652,
Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654,
Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 694 4103.
Tónlist sem er
svolítið óhamin,
ófullkomin, tekur sig
ekki of hátíðlega og er
svolítil gredda í hefur
alltaf heillað mig.
2 kynningarblað A L LT 14. október 2022 FÖSTUDAGUR