Fréttablaðið - 18.10.2022, Blaðsíða 1
2 3 0 . T Ö L U B L A Ð 2 2 . Á R G A N G U R f rettab lad id . i s Þ R I Ð J U D A G U R 1 8 . O K T Ó B E R 2 0 2 2
Góð tónlist á
Hálendishátíð
Geómetría í
Gerðarsafni
Lífið ➤ 16Menning ➤ 14
Laugavegi 174, 105 Rvk. www.volkswagen.is
Multivan T7 eHybrid
7 manna fjölskyldubíll
Áb. Sigurður Gunnlaugsson löggiltur fasteignasali
520 9595
Við styrkjum Bleiku slaufuna
Engin tillaga hefur verið lögð
fram um móttökubúðir fyrir
flóttafólk. Félags- og vinnu-
markaðsráðherra segir slíkar
búðir hvorki vera á stefnuskrá
ríkisstjórnarinnar né ráðu-
neytisins.
helenaros@frettabladid.is
STJÓRNSÝSLA Móttökubúðir fyrir
umsækjendur um vernd líkt og Jón
Gunnarsson dómsmálaráðherra
hefur talað um undanfarna daga er
ekki stefna ríkisstjórnarinnar, segir
Guðmundur Ingi Guðbrandsson,
félags- og vinnumarkaðsráðherra.
Engin tillaga um slíkt hafi verið
lögð fram.
„Þannig að ég lít á þetta sem
póli tískar skoðanir. Þeim er auð-
vitað algjörlega frjálst að hafa
sínar pólitísku skoðanir en þetta
er ekki stefna mín sem ráðherra
sem fer með þjónustu við f lótta-
fólk og þetta er ekki stefna ríkis-
stjórnarinnar,“ segir Guðmundur
Ingi og bætir við að enginn rök-
stuðningur hafi enn sem komið er
fylgt hugmyndinni.
Jón hefur sagt algjört stjórn-
leysi ríkja hér á landi vegna aukins
fjölda umsækjenda um vernd og að
við því þurfi að bregðast en Guð-
mundur Ingi er ekki sammála.
„Ég á svolítið erfitt með að átta
mig á því hvar þetta stjórnleysi er
og þess vegna finnst mér umræðan
svolítið absúrd. Mér finnst hálf hjá-
kátlegt að halda þessu fram þegar
mörg önnur ríki standa frammi
fyrir mun stærri áskorunum en
við,“ segir Guðmundur Ingi. Stjórn-
leysið sem Jón tali um tilheyri ekki
þeim hluta málaf lokksins sem
hann stýri. „En ráðherra verður
náttúrulega sjálfur að svara fyrir
það hvort það sé í þeim hluta sem
hann stýrir.“
Guðmundur Ingi segir ráðu-
neytið og Vinnumálastofnun ekki
sjá þörfina fyrir sérstakar mót-
tökubúðir. Hann sjái frekar ókosti
við slíkar búðir en kosti. Aðspurður
hvort þeir Jón hafi rætt saman um
hugmyndina segir Guðmundur
Ingi svo ekki vera. „Hann hefur
ekki komið fram með neinar til-
lögur svo hægt sé að ræða þetta á
einhverjum slíkum grundvelli.“
Aðspurður hvort ummæli Jóns
hafi komið á óvart segist Guð-
mundur Ingi ekki viðkvæmur fyrir
því að aðrir ráðherrar hafi skoðanir
á þeim málaflokkum sem tilheyri
honum. „Ég vil bara undirstrika
að þetta er ekki mín skoðun,“ segir
Guðmundur Ingi en hann er ekki
viss um að móttökubúðir á Suður-
nesjum líkt og Jón hefur mælt fyrir
sé góð hugmynd.
Aðspurður hvort frumvarp eða
lagabreytingar séu í farvatninu,
sem varði móttöku umsækjenda
um vernd, segir Guðmundur Ingi
ráðuneytið vera að hefja stefnu-
mótun í mjög víðtæku samráði þar
sem litið er sérstaklega til aðlögun-
ar og inngildingar innflytjenda. Þá
sé verið að skoða lög og framfylgd
laga á hinum Norðurlöndunum
um móttöku og aðlögun innf lytj-
enda. Þegar nánari greining liggur
fyrir muni hann taka ákvörðun um
framhaldið. n
Móttökubúðir ekki stefna ríkisstjórnarinnar
En ráðherra verður
náttúrulega sjálfur að
svara fyrir það hvort
það sé í þeim hluta
sem hann stýrir.
Guðmundur Ingi Guðbrandsson,
félags- og vinnumarkaðsráðherra
Afar fallegt veður var í gær á höfuðborgarsvæðinu, lygnt og stillt. Við ærslabelginn við Ægisíðuna gátu krakkar farið úr skónum og sýnt listir sínar svo eftir var tekið, á sokkaleistunum einum saman.
Heljarstökk, handahlaup og hlátrasköll heyrðust um Seltjarnarnesið enda fátt betra en að fá útrás á ærslabelg – sérstaklega í logni og blíðu. Þá skiptir hitastigið engu máli. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK