Fréttablaðið - 27.10.2022, Blaðsíða 26
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
Jón Ólafsson
Lágengi 12,
Selfossi,
lést á Heilbrigðisstofnun Suðurlands
20. október. Útför hans verður frá
Selfosskirkju, mánudaginn 31. október, kl. 13.00.
Blóm og kransar eru vinsamlega afþakkaðir, en þeim sem
vilja minnast hans er bent á að styrkja Einstök börn.
www.einstokborn.is
Gunnþórunn Hallgrímsdóttir
Þóra Bjarney Jónsdóttir Elías Þór Baldursson
Anna Dóra Jónsdóttir Hilmar Þór Pálsson
Margrét Jónsdóttir
og fjölskyldur
Ástkær eiginmaður, faðir,
tengdafaðir og afi,
Ásgeir Andrason
Lyngheiði 3,
810 Hveragerði,
lést á Heilbrigðisstofnun Suðurlands
21. október eftir stutt veikindi. Útförin fer fram frá
Hveragerðiskirkju fimmtudaginn 3. nóvember klukkan 13.
Blóm og kransar afþakkaðir.
Anna Margrét Þorfinnsdóttir
Andri Þorfinnur Ásgeirsson María Dís Jóhannsdóttir
Ásdís Alda Runólfsdóttir Kristján Björnsson
og barnabörn
Faðir, stjúpfaðir, tengdafaðir,
bróðir, afi og langafi okkar,
Jón Trausti Karlsson
lést á líknardeild L5 á Landakoti
mánudaginn 10. október.
Sérstakar þakkir til starfsfólks L5 fyrir
hlýja og góða umönnun. Útförin hefur farið
fram í kyrrþey að ósk hins látna.
Berglind Hulda Jónsdóttir Gunnlaugur Jónasson
Stella Fanney Sigurðardóttir Gylfi Harðarson
Elvar Björn Sigurðsson Helma Hreinsdóttir
Anna Kristín Sigurðardóttir Viðar Jóhannesson
systkin, barnabörnin og barnabarnabörn
Ástkær móðir okkar,
tengdamóðir og amma,
Oddný Sigríður Jónasdóttir
lést á Landspítalanum
15. október. Útför hennar fer fram frá
Bústaðakirkju í dag, fimmtudaginn
27. október, klukkan 13.
Sigríður H. Hermannsdóttir Ian David McAdam
Guðbjörg E. Hermannsdóttir Gísli Örn Þórólfsson
og barnabörn
Eyjólfur Þorsteinsson
Ölduhrauni, Hrafnistu Hafnarfirði,
áður Álfaskeiði 72, Hafnarfirði,
lést fimmtudaginn 6. október.
Útförin fór fram í kyrrþey að ósk hins
látna. Sérstakar þakkir til Heimaþjónustu
Hafnarfjarðar og starfsfólks Ölduhrauns, Hrafnistu
Hafnarfirði, fyrir góða umönnun.
Þórdís Birna, Þorsteinn, Sveinbjörn
og fjölskylda hins látna
Við þökkum af alhug samúð
og vinarþel við andlát og útför
ástkærrar móður okkar, tengdamóður,
ömmu og langömmu,
Sigríðar Th. Erlendsdóttur
sagnfræðings.
Ragnhildur Hjaltadóttir
Kristján Hjaltason Rannveig Einarsdóttir
Erlendur Hjaltason Aðalheiður Valgeirsdóttir
Jóhanna Vigdís Hjaltadóttir Guðmundur Magnússon
og fjölskyldur
Ástkær eiginmaður minn, faðir,
tengdafaðir, afi og langafi,
Þór Þorbergsson
búfræðikandídat,
lést á Landspítalanum Fossvogi,
þann 22. október síðastliðinn.
Útför verður auglýst síðar.
Arnfríður M. Hallvarðsdóttir
Þorbergur Þórsson
Ingibjörg Svala Þórsdóttir Wu Shan Zhuan
Valgerður Þórsdóttir Heimir Garðarsson
Guðrún Þórsdóttir
Þóra Kristín Þórsdóttir Kolbeinn Stefánsson
barnabörn og barnabarnabörn
Okkar ástkæri bróðir, mágur,
frændi og fjölskylduvinur,
Jósep Á. Guðmundsson
Hrafnistu Ísafold,
áður Minna-Núpi,
Skeiða- og Gnúpverjahreppi,
lést á Ísafold, Garðabæ, sunnudaginn
16. október 2022. Útför fer fram frá Stóra-Núpskirkju
föstudaginn 28. október kl. 15.
Einar Hafsteinn Guðmundsson Ólöf Lára Jónsdóttir
börn og barnabörn
Ámundi Kristjánsson
Herdís Kristjánsdóttir Trausti Sveinbjörnsson
Guðrún Ingólfsdóttir Auðunn Gestsson
og fjölskyldur
Ferðasaga hinnar austurísku Idu
Pfeiffer frá Íslandi árið 1845 er
nú fáanleg á íslensku. Ida hafði
talsvert meiri mætur á náttúru
Íslands en íbúum þess.
arnartomas@frettabladid.is
Nýlega kom út bókin Íslandsferð Idu
Pfeiffer 1845 sem Guðmundur J. Guð-
mundsson sagnfræðingur hefur íslensk-
að. Hún fjallar um reynslu Idu af landi
okkar og þjóð. Ida lifði tiltölulega venju-
legu lífi þar til að hún var um fertugt og
eiginmaður hennar lést. Þá lagðist hún í
ferðalög og ferðaðist víða um heim.
„Hún er líklega víðförlasta kona heims
á þessum tíma,“ útskýrir Guðmundur.
„Fyrsta ferðalagið var til Istanbúl þar
sem hún laug því að hún væri að fara
til að hitta vinkonu sína, sem hún gerði
reyndar stuttlega, en síðan fór hún til
Sýrlands, landsins helga og Egyptalands.
Hún skrifaði um þetta ferðalag metsölu-
bók og fékk þannig peninga fyrir næstu
reisu, sem var til Íslands.“
Ekki alveg Sjangri-La
Ida steig á land í Hafnarfirði 1845 en hún
hafði alltaf haft mikinn áhuga á Íslandi.
„Hún hafði heyrt og lesið ýmislegt um
landið, meðal annars í ferðabókum,“
segir Guðmundur. „Þótt hún hefði litla
formlega menntun í náttúrufræði hafði
hún lesið sér mikið til og menntað sig
sjálf í þeim fræðum.“
Ida hafði þó ýmsar ranghugmyndir
um Ísland, sér í lagi þegar kom að Íslend-
ingum sjálfum sem ollu henni miklum
vonbrigðum.
„Það verður seint sagt að Ida hafi verið
hrifin af Íslendingum enda hafði hún
gert sér upp óraunhæfa mynd af þjóð-
inni og aðstæðum fólks hér á Íslandi,“
segir Guðmundur. „Í eftirmála bókar-
innar lýsir hún því að hún hafi haldið að
Ísland væri eins og Arkadía – eins konar
Sjangri-La. Hún komst heldur betur að
öðru.“
Náttúrufegurðin stóðst þó væntingar
Idu sem fór á svipaðar slóðir og ferða-
menn í dag.
Hreifst af Íslandi en
ekki Íslendingum
Ida var líklega
víðförlasta
kona síns tíma.
„Hún byrjaði á að fara stuttan leið-
angur til Krýsuvíkur og um Reykja-
nesskagann. Síðan fór hún á Þingvöll
og í Borgarfjörðinn og að Reykholti þar
sem hún skoðaði hveri. Að því búnu fór
hún að Gullfossi og Geysi og gekk síðan
á Heklu, og verður þá líklega fyrsta
konan til þess, að minnsta kosti sem
við vitum um.“
Glataðar ljósmyndir
Ida var fjölhæf kona og hafði ljós-
myndavél með sér í för.
„Hún hafði lært að gera svokallaðar
daguerreótýpur, þeirra tegund af ljós-
myndum,“ segir Guðmundur. „Það er
vitað að hún tók að minnsta kosti tvær
myndir í Reykjavík en þær eru senni-
lega glataðar – það er vitað hvar þær
voru 2012 ekki lengur.“
Þar sem sjaldgæft var að fólk ætti
myndavélar á þessum tíma verður
að teljast ansi merkilegt að tveir ljós-
myndarar haf i vappað um götur
Reykjavíkur sumarið 1845.
„Hingað kom franskur ljósmyndari,
Cloizeaux, líklega með frönsku spítala-
skipi. Hann tók hér myndir af Reykja-
vík og tvær af þeim hafa varðveist og
má sjá aðra þeirra í bókinni.“
Þjóðarstoltið sært
Ferðasaga Idu fékk mjög góða dóma
erlendis og var þýdd á mörg tungu-
mál, meðal annars Norðurlandamál.
Íslendingar gáfu henni þó falleinkunn.
„Sveinbjörn Hallgrímsson, ritstjóri
Ingólfs, birti þýðingu á kaf la úr bók
Idu og hann gaf henni heldur napra
einkunn,“ segir Guðmundur sem segir
Sveinbjörn hafa misskilið hluta af því
sem hún var að segja. „Hann sagði í
ansi háðskum tón að hún hefði orðið
mörgum sem hana hittu eftirminni-
leg.“
Þá birti Þorvaldur Thoroddsen kafla
um Idu í fjórða bindi af Landfræði-
sögunni þar sem hann rakkar bókina
niður og fer beinlínis rangt með.
„Hann segir að Ida hafi haldið að
Ísland hafi orðið til um það leyti sem
Vesúvíus gaus og Pompeii eyddist.
Það var að minnsta kosti hvergi í þeim
texta sem ég las,“ segir Guðmundur. ■
Okkar uppáhalds,
Birgir Ingimarsson
frá Siglufirði,
lést föstudaginn 21. október 2022
á krabbameinsdeild Landspítalans.
Útför hans fer fram frá Langholtskirkju
föstudaginn 4. nóvember kl. 15.
Þeim sem vilja minnast hans er bent á Hollvini Grensáss.
Birna Dís Benediktsdóttir
Vilborg Jónsdóttir
Helga Rún Viktorsdóttir
Brynjar Ýmir Birgisson, Björg Þórsdóttir
Arnar, Birna Rún, Freyja Björk, Dúa, Lóa og Ása
Ástkæri eiginmaður,
faðir og tilvonandi tengdafaðir,
Viðar Árnason
frá Vestmannaeyjum,
var kvaddur í kyrrþey
miðvikudaginn 19. október.
Svandís Ósk Stefánsdóttir
Ísak Bergmann Viðarsson
Jafet Bergmann Viðarsson
Guðrún Clara Sigurðardóttir
TÍMAMÓT FRÉTTABLAÐIÐ 27. október 2022 FIMMTUDAGUR