Fréttablaðið - 27.10.2022, Blaðsíða 16
Í C-riðli Heimsmeistara-
mótsins munu augu allra vera
á Lionel Messi leikmanni Arg-
entínu. Eftir magnaðan feril
er Messi líklega á leið á sitt
síðasta Heimsmeistaramót.
Til að fá goðsagnarstimpil í
heimalandinu þarf hann að
færa þessari knattspyrnuþjóð
bikarinn eftirsótta sem fæst
fyrir að vinna þetta stærsta
íþróttamót í heimi.
hoddi@frettabladid.is
FÓTBOLTI Það eru í raun bara örfáir
dagar í að það verði flautað til leiks
á Heimsmeistaramótinu í Katar. Í C-
riðli má búast við spennandi keppni
en þar má finna lið Argentínu sem
líklegt er til afreka í Katar. Í riðl-
inum eru einnig f leiri sterk lið en
búast má við að Mexíkó og Pólland
berjist um að komast áfram með
Argentínu upp úr riðlinum. Þarna
má einnig finna Sádi-Arabíu sem
mun hita upp fyrir Heimsmeistara-
mótið með því að spila æfingaleik
við Ísland.
Pressa á Messi
Lionel Messi er á leið inn á sitt
fimmta Heimsmeistaramót með
Argentínu en árangurinn hingað
til er undir væntingum. Í Katar
er pressa á Messi að færa þessari
knattspyrnóðu þjóð titilinn sem
hún þráir. Í raun verður Messi aldr-
ei goðsögn í Argentínu nema að
hann færi þjóðinni bikarinn eftir-
sótta, hann dreymir um að komast
á stall með Diego Maradona og
til þess þarf hann að vinna þann
stóra.
„Argentínumenn ætla að vinna
þetta, þeir eru með hörkulið. Það
er langt síðan þeir voru með svona
sterka miðverði og þeir eru nokkrir
þarna sem koma til greina. Þeir
eru líka með fína bakverði, í tíð
Messi er þetta í raun í fyrsta sinn
sem vörnin er í lagi. Miðsvæðið
er eitthvað sem væri hægt að hafa
áhyggjur af, þar er stóra spurningin
hver verður með Leandro Paredes
og Rodrigo De Paul á miðjunni. Ég
væri til í að sjá Alexis Mac Allister,
kraftaverkamanninn í Brighton,
þarna. Lautaro Martinez hefur
virkað vel með Messi í fremstu
víglínu og þeir tengja vel, þeir eru
með Julian Alvarez hjá City þar
líka en það stefnir allt í að Paulo
Dybala verði ekki með. Argentína
getur alveg unnið þetta mót. Ef þeir
vinna riðilinn þá gætu þeir farið
alla leið.
Það er langt síðan Messi var í
svona miklu stuði innan vallar, þeir
koma brattir inn í þetta og munu
keyra á þetta,“ segir Hrafnkell Freyr
Ágústsson, sérfræðingur Frétta-
blaðsins, um stöðuna eins og hún
horfir við honum í C-riðli.
Besti framherji í heimi
Lið Póllands hefur marga öf luga
leikmenn í sínum röðum en enginn
er öflugri en Robert Lewandowski.
Hrafnkell Freyr segir hann líklega
einn besta framherja í heimi en
hann hefur raðað inn mörkum fyrir
Barcelona eftir að hafa gert slíkt hið
sama hjá FC Bayern í mörg ár. Þjálf-
ari liðsins er Gerardo Martino sem
hefur stýrt Barcelona á ferli sínum.
„Aðalmaðurinn er auðvitað
Lewandowski sem þetta snýst allt
um. Þeir eiga ótrúlega marga góða
markverði, þetta eru fimm alvöru
markverðir sem þeir geta valið úr.
Pólland hefur oft komið inn í þessi
stórmót með smá væntingar en
Í tíð Messi er þetta í
raun í fyrsta sinn sem
vörnin er í lagi.
Hrafnkell Freyr
Ágústsson,
sparkspekingur
22
HM KARLA
Í FÓTBOLTA
DAGAR Í
Síðasti séns Lionel Messi til að verða goðsögn
© GRAPHIC NEWS
Heimsmeistaramótið 2022: C-riðill
Innbyrðis viðureignir
22. nóv.
26. nóv.
26. nóv.
22. nóv.
30. nóv.
30. nóv.
Leikjadagskrá
Heimild: FIFA Mynd: Getty Images
Leikmaður til að fylgjast með:
022
004 323
014
51416 326
Sádi-Arabía Mexíkó Pólland
Argentína
Pólland
Mexíkó
Tap Jafnt.Sigur
Lionel Messi ARG
Á síðasta Heims-
meistaramóti
lenti Lionel
Messi á íslenska
varnarveggnum.
FRÉTTABLAÐIÐ/
EYÞÓR
lendir á vegg og veldur vonbrigðum.
Það verður gaman að fylgjast með
þeim og þá sérstaklega Matty Cash
sem verður með áætlunarferðir upp
hægri vænginn,“ segir Hrafnkell.
Léttleikandi Mexíkóar
Það hefur orðið breyting í fótbolt-
anum í Mexíkó en leikmennirnir
spila flestir þar í landi. Peningarnir
í fótboltanum þar hafa aukist hratt
síðustu ár en Raúl Jiménez, fram-
herji Wolves, er líklega þekktasta
stærðin í liði Mexíkómanna.
„Þetta er mikið af leikmönnum
sem hafa verið í Evrópu síðustu ár
og eru komnir heim. Því það eru
bara miklir peningar í fótboltanum,
þeir þurfa að ná Raul Jimenez í gang
en þar er mikil endurhæfing í gangi
fyrir mótið. Það er langt síðan ég hef
séð jafn óspennandi lið frá Mexíkó,
margir af öf lugri leikmönnunum
eru komnir á aldur og má þar nefna
Andrés Guardado sem dæmi. Þeir
verða góðir og fótboltinn er þeirra
ástríða en liðið er ekki spennandi.“
Grænu fálkarnir
Hver og einn einasti leikmaður
Sádi-Arabíu leikur í heimalandinu
en þjálfari liðsins er hinn reyndi
Hervé Renard sem hefur marga
fjöruna sopið í leiknum. Ekki er
búist við miklu af Sádum á mótinu
en liðið mætir Íslandi 6. nóvember
til að undirbúa sig fyrir mótið.
„Ég er ekki djúpur þarna, þeir eru
allir í heimalandinu en það hefur
verið uppbygging í fótboltanum
þarna. Þeir ákveða að velja auðvelda
leið í aðdraganda mótsins, að fara í
C-liðið hjá Íslandi til að undirbúa
sig,“ segir Hrafnkell. n
helgifannar@frettabladid.is
FÓTBOLTI Í kvöld halda Hagsmuna-
samtök knattspyrnukvenna mál-
stofu um framtíð kvennaknatt-
spyrnu. Áhersla verður lögð á það
hvernig hægt er að auka hlutfall
kvenna í stjórnum knattspyrnu-
deilda hér á landi.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir,
formaður Viðreisnar, Gréta María
Grétarsdóttir, forstjóri Artic Advent-
ures, og Helena Jónsdóttir, sem skrif-
aði meistararitgerð um málefnið,
munu flytja erindi á málstofunni.
„Það þekkja það allir að knatt-
spyrnan er karllægur heimur. Sem
kona í íþróttum upplifir maður að
það er eitthvert óréttlæti í gangi. Það
getur verið allt frá því að fá slæma
æfingatíma í það að fá engin laun
fyrir að gera það sama og karlarnir,“
segir Helena.
Hún segir margar konur vilja vera í
stjórnum knattspyrnudeilda.
„Þær hafa áhuga á að komast
þarna inn og starfa í kringum knatt-
spyrnuna, en einhverra hluta vegna
haldast þær ekki þarna. Það hljóta
að vera einhverjar ástæður fyrir því.“
Kynjakvóti verður til umræðu
Á málstofunni verður meðal annars
til umræðu hvort nauðsynlegt sé
að taka upp kynjakvóta í stjórnum
knattspyrnudeilda, líkt og þekkist í
fyrirtækjum.
„Það getur farið á báða vegu. Við
viljum hafa einstaklinga sem hafa
áhuga á að vera þarna og hafa áhuga
á að leggja sitt af mörkum fyrir
íþróttafélagið sitt, ekki setja kynja-
kvóta bara til að vera með einstakl-
inga sem fylla upp í einhvern kvóta.“
Hún telur þó jafnframt að ein-
hverjar reglur um hlutfall kynja gætu
hjálpað.
„Ef við myndum setja einhvers
konar viðmið um að það þyrftu
að vera ákveðið margir frá báðum
kynjum tel ég að það myndi gera
knattspyrnunni ótrúlega gott. Þá
fáum við sjónarmið bæði karla og
kvenna, sem er það sem þarf.“
Sem fyrr segir mun Helena sjálf
flytja erindi á málstofu kvöldsins.
„Ég mun koma inn á fjármagn og
launamun kynjanna. Það er áherslan
mín. Það verða svo mismunandi
sjónarhorn kynnt,“ segir Helena.
Málstofan hefst klukkan 17.30 í
Veröld – húsi Vigdísar. Bogi Ágústs-
son mun stýra henni. n
Framtíð kvennaknattspyrnunnar til umræðu í málstofu
Íslensk kvennaknattspyrna er í miklum vexti. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
16 Íþróttir 27. október 2022 FIMMTUDAGURÍÞRÓTTIR FRÉTTABLAÐIÐ 27. október 2022 FIMMTUDAGUR