Fréttablaðið - 27.10.2022, Blaðsíða 17

Fréttablaðið - 27.10.2022, Blaðsíða 17
KYNN INGARBLAÐ ALLT FIMMTUDAGUR 27. október 2022 Þægilegur og fallegur fatnaður veitir vellíðan hjá Belladonna Fötin skapa manninn, segir máltækið, og má með sanni segja að það sé rétt. Verslunin Belladonna er þekkt fyrir að vera með fallegan og vandaðan klæðnað sem hentar öllum tilfellum. Stella Ingibjörg Leifsdóttir hefur rekið verslunina Belladonna frá árinu 2004. 2 Stella Ingibjörg Leifsdóttir, stofnandi og eigandi verslunarinnar Belladonna, leggur mikla áherslu á að allar eigi að geta fundið eitthvað við sitt hæfi í versluninni. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK HEILAÞOKA? Fæst í helstu apótekum - www.celsus.is AUKIN ORKA OG FÓKUS Ella Bleu ber sterkt svipmót Johns Travolta, föður síns. FRÉTTABLAÐIÐ/ thordisg@frettabladid.is Ella Bleu Travolta, dóttir banda- ríska leikarans John Travolta og leikkonunnar Kelly Preston sál- ugu, stal senunni í partíi Neiman Marcus í Los Angeles í vikunni. Þessi 22 ára fegurðardís og söng- og leikkona er nefnilega við það að feta í fótspor foreldra sinna. Ella Bleu undirbýr sig nú fyrir sitt fyrsta stóra aðalhlutverk í bíómyndinni Get Lost. Hún sýndi fyrst leikhæfileika sína þegar hún lék á móti foreldrum sínum í kvik- myndinni Old Dogs árið 2009. Tíu árum seinna, eða 2019, lék hún hlutverk á móti pabba sínum og stórleikaranum Morgan Freeman í myndinni The Poison Rose. Hæfileikarík á mörgum sviðum Ella Bleu hefur að mestu haldið sig frá sviðsljósinu í gegnum tíðina en er nú ekki aðeins komin með annan fótinn inn í tónlistarheim- inn og Hollywood því hún er líka að setja mark sitt á tískuheiminn og gekk í haust rauða dregilinn í partíi fyrir Cara Loves Karl Capsule Collecton í New York og vakti þá líka verðskuldaða athygli á kynningu Kate Spade á tísku- vikunni í New York. Hún vinnur líka hörðum höndum að tónlistarferli sínum og gaf út sitt fyrsta lag, Dizzy, fyrr á árinu á Spotify. n Í fótspor feðranna

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.