Skessuhorn - 07.09.2022, Síða 1
Í september er vakin athygli á
sjálfsofnæmissjúkdómnum Alopecia
með myllumerkinu #alopecia aware
ness month. Vitundar vakning in á
Alopecia snýr einna helst að því
að sýna það að einstaklingar með
sjálfsofnæmi séu til og eru alls konar.
Þá er líka imprað á því að sköllóttir
einstaklingar séu ekki endilega allir
veikir og í lyfjagjöf.
Aðaleinkenni Alopecia er hár
missir en margt liggur á milli hluta
um orsakir og eðli sjúkdómsins og
þar greinir fræðimönnum á. Það
sem þó er vitað er að ónæmis kerfi
líkamans ræðst á góðar frumur
í líkamanum, í þessu tilfelli á
hársekkina og heldur að þeir séu
vírus. Stress, áfall og hormóna
ójafnvægi er talið geta kveikt sjúk
dóminn en sá listi er ekki tæm
andi þar sem fjölmargir einstakl
ingar hafa greinst með Alopecia án
þess að tikka í þau box. Þá hafa lyf
líka mismunandi áhrif á einstakl
inga með Alopecia, sumir taka t.d.
inn gigtarlyf sem hafa góð áhrif á
hárvöxt þeirra. Alopecia skiptist
í þrjú stig. Fyrsta stig sjúkdóms
ins kallast Alopecia Areata og gæti
þýðst á íslensku sem blettaskalli en
þá koma í ljós skallablettir á höfði.
Annað stig sjúkdómsins er Alopecia
Totalis, þá missir einstaklingur allt
hár af höfði. Þriðja stig sjúkdóms
ins er Alopecia Universalis og þá
missir einstaklingur öll líkamshár
og fær þau líklega ekki aftur.
Þótt ótrúlegt megi virðast herjar
sjúkdómurinn á um 2% jarðarbúa í
einhverri mynd á einhverjum tíma
punkti í þeirra lífi, en þessar tölur
eru fengnar frá Alþjóða Alopecia
samtökunum (NAAF).
Í tilefni septembermánaðar og
vitundarvakningar um Alopecia
ræddi Skessuhorn við Skaga
konuna Rögnu Sólveigu Þórðar
dóttur sem greindist með sjúk
dóminn árið 2019, þá 24 ára.
Sjá viðtal á bls. 14-16 gbþ
FRÉTTAVEITA VESTURLANDS – www.skessuhorn.is 36. tbl. 25. árg. 7. september 2022 - kr. 950 í lausasölu
Ert þú í áskrift?
Sími 433 5500
www.skessuhorn.is
Heyrnarþjónusta
s:534-9600
www.heyrn.is
Opið
alla
daga
ársins
Þinn árangur
Arion
Á nokkrum stöðum á Akranesi eru listamenn að skreyta stóra og áberandi veggi á byggingum. Þeirra á meðal eru nafnarnir Bjarni Skúli Ketilsson, sem lagði í gær loka
hönd á atvinnustemningsmynd á gömlu mjölskemmunni við höfnina. Hér er hins vegar Bjarni Þór Bjarnason listmálari með hundinn sinn Týru, en saman eru þau komin
vel á veg með málverk á gafli Landsbankahússins við Akratorg. Sjá nánar í blaðinu í dag. Ljósm. mm
Ragna Sólveig fór að missa hárið 2019,
af völdum Alopecia. Hún ákvað þá að
raka af hárið sem eftir var. Ingvar Þór
Gylfason eiginmaður Rögnu málaði
þessa mynd af henni.
Vitundarvakning um
sjálfsofnæmissjúkdóminn Alopecia