Skessuhorn


Skessuhorn - 07.09.2022, Blaðsíða 6

Skessuhorn - 07.09.2022, Blaðsíða 6
MIÐVIKUDAGUR 7. SEPTEMBER 20226 Í tilkynningu frá sóknarnefnd Hvanneyrarsóknar til íbúa Hvann­ eyrar á FB kemur fram að hún hefur framlengt samning við H Veitingar til 1. september 2023 um leigu á Skemmunni á staðnum sem kaffihúsi. H Veitingar tóku til starfa í ágúst 2021 og eru í eigu Hendriks Hermannssonar. Hugmynd Hendriks er að vera með starfsemi í Skemmunni fimmtudagskvöld og föstudags­ kvöld frá klukkan 16­20 og um helgar af og til eftir aðstæðum. Ennfremur verður hægt að leigja Skemmuna undir ýmsa við­ burði eins og verið hefur. Guð­ mundur Sigurðsson er formaður sóknarnefndar og segir hann að það sé von nefndarinnar að glæða megi lífi í Skemmuna og að íbúar á Hvanneyri og nágrenni geti komið saman þau kvöld sem opið verður og átt notalega stund saman. Á Hvanneyri er um 300 manna háskólaþorp, ekki síst kringum starfsemi Landbúnaðarháskóla Íslands. Skemman á Hvanneyri er elsta húsið á staðnum, byggð árið 1896. Hún hefur verið gerð fal­ lega upp á undanförnum árum og þar hefur verið rekið kaffihús um nokkurra ára skeið. H veitingar hafa haft húsið á leigu undir veitinga­ starfsemi um nokkurn tíma, en Hendrik rak áður veitingastarf­ semi á Food station í Borgarnesi og hefur einnig séð um mötuneyti Landbúnaðarháskólans. gj Nýr aðalbókari til starfa HVALFJ:SV: Guðrún Guð­ mundsdóttir er nýr aðalbók­ ari Hvalfjarðarsveitar. Guðrún hefur mikla reynslu af störfum aðalbókara og í opinberri stjórnsýslu. Hún er viðskipta­ fræðingur að mennt með MS gráðu í forystu og stjórnun. Hún hóf störf hjá sveitarfé­ laginu 1. september sl. Þá mun Elín Thelma Róbertsdóttir félagsráðgjafi leysa félags­ málastjóra Hvalfjarðarsveitar, Freyju Þöll Smáradóttur, af næsta árið meðan Freyja Þöll er í barneignarleyfi. Elín Thelma er með áralanga reynslu af störfum við félags­ þjónustu sveitarfélaga, nú síð­ ast í Kópavogi. -vaks Lokað hjá sýslu- mönnum LANDIÐ: Vakin er athygli á því að lokað verður á skrif­ stofum sýslumanna um land allt föstudaginn 9. september vegna starfsdags starfsfólks. -gbþ Jöfnunarstyrkir til náms LANDIÐ: Nú þegar fram­ haldsskólar eru farnir af stað með vetrarstarf sitt er ekki úr vegi að minna á jöfnunar­ styrk Menntasjóðs náms­ manna. Jöfnunarstyrkur er námsstyrkur fyrir nemendur sem búa og stunda nám fjarri lögheimili og fjölskyldu sinni en bæði er hægt að sækja um dvalarstyrki og akstursstyrki. Hægt er að kynna sér reglur og sækja um námsstyrki á vef­ slóðinni menntasjodur.is en umsóknarfrestur vegna haust­ annar er til 15. október. -gbþ Veggjakrot á vita AKRANES: Umsjónarmaður Akranesvita kom á lögreglu­ stöðina síðasta miðvikudag og tilkynnti um eignaspjöll á vitanum þar sem búið var að krota á hann þau miður fallegu skilaboð; „Kill All Tourists“. Engar vísbendingar liggja fyrir um hverjir gerend­ urnir voru. -vaks Datt af reiðhjóli AKRANES: Síðasta laugar­ dagsmorgun var hringt í Neyðarlínu og tilkynnt um tíu ára barn sem fallið hafði af reiðhjóli. Sjúkrabíll kom á vettvang en barnið fann til eymsla og var flutt á HVE til nánari skoðunar. -vaks Eldur við Breið AKRANES: Á laugardags­ kvöldið var tilkynnt um eld sem hafði kviknað eftir að kveikt hafði verið í rusli í grjót­ varnargarði á Breið. Lögregla fór á staðinn og slökkti eldinn án nokkurra vandkvæða. Ekki er vitað hverjir voru þarna að verki. -vaks Bálhvasst í Staðarsveit SNÆF: Vindhraði mæld­ ist 36 metrar á sekúndu í hviðum um kl. 10.30 síðast­ liðinn föstudagsmorgun við Hraunsmúla í Staðarsveit. Þar var Þröstur Albertsson tengiliður Skessuhorns á ferð og sá að Suzuki Jimny bíll tveggja ferðamanna hafði verið ekið út af veg­ inum vegna hvassviðrisins. Tjald sem hafði verið á þaki bílsins lá öðru megin vegar og bíllinn hins vegar. -gj Yfirlýsing frá Ollu í Nýja-Bæ BORGARFJ: Á Facebook­ síðunni „Hrossarækt Ollu í Nýja­Bæ“ var sl. fimmtu­ dag sett inn færsla í kjölfar fréttaflutnings um vannærð og innilokuð hross í Borgar­ nesi: „Vegna umfjöllun fjöl­ miðla undanfarinn sólar­ hring vill Olla í Nýjabæ koma því skýrt á framfæri að hún er virkilega sorg­ mædd yfir afdrifum þessa dýra og furðu lostin yfir aðgerðarleysi yfirvalda. Hún vill jafnframt taka það fram að umrædd hross eru ekki úr hennar ræktun eða eigu. Hennar hross eru í góðu yfirlæti bæði í heimahaga og hjá öðrum góðum umsjónar­ aðilum.“ -gj H veitingar áfram með Skemmuna á Hvanneyri Gamla bæjartorfan á Hvanneyri. Skemman sést neðst til hægri. Vinstra megin við hana og í forgrunni er Leikfimihúsið/Íþróttahöllin, frá árinu 1911. Á bak við það hús sést Skólastjórahúsð sem reist var árið 1920 og lengst til vinstri er Gamli skóli, byggður árið 1910. Fjær sést í turn Hvanneyrarkirkju sem er frá árinu 1905. Ljósm. mm. Samið hefur verið við Sigstein Grét­ arsson um að taka við sem forstjóri Skagans 3X og Baader á Íslandi. „BAADER styrkir áfram teymið á Íslandi með ráðningu á Sigsteini Grétarssyni í stöðu forstjóra. Sig­ steinn er margreyndur stjórnandi og leiðtogi með margþætta reynslu af alþjóðaviðskiptum og matvæla­ tækni,“ segir í tilkynningu frá fyrir­ tækinu. Þar segir jafnframt: „Ráðn­ ingin er liður í að styrkja enn frekar stöðuna í íslenska hluta fyrirtæk­ isins sem samanstendur af Baader Ísland og Skaginn 3X. Haft er eftir Robert Focke forstjóra Baader Fish í Þýskalandi að þetta sé mik­ ilvæg ráðning til að styrkja íslenska stjórnendateymið og að ráðningin sé lykilskref í áætlunum um að vera óumdeildur leiðtogi í heildar­ kerfum fyrir mismunandi tegundir fisks.“ Fram kemur í tilkynningu að aðspurður segir Sigsteinn að það séu spennandi verkefni framundan. „Baader hefur verið hornsteinn í íslenskum sjávarútvegi í yfir 60 ár og hefur við góðan orðstír leitt sjálfvirkni í tækjabúnaði. Verkefnin halda áfram og við ætlum okkur að vera sá aðili sem er leiðandi í góðu samstarfi við íslenskan sjávarútveg.“ mm. Sigsteinn Grétarsson ráðinn forstjóri Skaginn 3X og Baader Ísland Sigsteinn Grétarsson.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.