Skessuhorn


Skessuhorn - 07.09.2022, Blaðsíða 20

Skessuhorn - 07.09.2022, Blaðsíða 20
MIÐVIKUDAGUR 7. SEPTEMBER 202220 Vörur og þjónusta H P Pípulagnir ehf. Alhliða pípulagnaþjónusta Hilmir 820-3722 Páll 699-4067 hppipulagnir@gmail.com S K E S S U H O R N 2 01 8 Fyrir alla vigtun Húsarafmagn Töflusmíði Iðnaðarrafmagn Bátarafmagn Bílarafmagn RAFMAGN vogir@vogir.is Sími 433-2202 VOGIR Bílavogir Kranavogir Skeifuvogir Pallvogir Aflestrarhausar Hönnun prentgripa & alhliða prentþjónusta Dreifi bréf - Boðsbréf Ritgerðir - Skýrslur Reikningar - Eyðublöð Umslög - Bréfsefni Fjölritunar- og útgáfuþjónustan Getum við aðstoðað þig? sími: 437 2360 olgeirhelgi@islandia.is - Meirapróf - Fjarnám - Aukin ökuréttindi Verkleg kennsla/próf; Akranes - Reykjavík,- valkvætt. Upplýsingar á aktu.is og í síma 892-1390. Ökuskóli allra landsmanna GJ málun ehf málningarþjónusta Akravellir 12 - Hvalfj arðarsveit sími 896 2356 301 Akranes gardjons@visir.is Garðar Jónsson málarameistari 1990-2020 30 ár TÖKUM AÐ OKKUR AÐ HANNA OG SETJA UPP tímarit, dagblöð, bækur, ársskýrslur, auglýsingar, fréttabréf, nafnspjöld, merkingar og allt sem þarf til að koma þínum skilaboðum á framfæri. Einnig vefsíður, vefborðar og auglýsingar, skjá auglýsingar og annað fyrir stafræna birtingu. Hafið samband á grafisk.smidja@simnet.is eða í síma 897 0203. Grafísk Smiðja ehf. | Síðmúli 13 | Sími: 897 0203 | email : grafisk.smidja@simnet. is Grafísk Smi ja Pennagrein Háskóli Íslands, í samstarfi við Textílmiðstöð Íslands, býður í haust upp á nýsköpunarnámskeið sem tengist textílvinnslu hér á landi. Námskeiðið nefnist „Heldurðu þræði“ og er hugsað fyrir þá sem vilja hrinda viðskiptahugmynd í framkvæmd og hefja eigin rekstur með áherslu á textíl eða eru í atvinnurekstri og vilja auka rekstr­ arþekkingu sína. Námskeiðið er haldið í tengslum við evrópska rannsókna­ og þróunarverkefnið Centrinno sem starfsfólk Háskól­ ans og Textílmiðstöðvar Íslands taka þátt í. Námskeiðið er endur­ gjaldslaust. Þátttakendur fá margháttaðan stuðning og fræðslu á námskeiðinu, m.a. við að búa til heildstæða við­ skiptaáætlun í kringum hugmyndir sínar. Þar verður einnig farið yfir stefnumótun, stjórnun og starfs­ mannamál, markaðssetningu og hagnýtingu samfélagsmiðla til að koma vörum sínum á framfæri en jafnframt er boðið upp á fræðslu um hringrásarhagkerfið, jafnréttis­ áherslur og umhverfismál. Námskeiðið hefst 20. septem­ ber og stendur í níu vikur. Kennt verður í fjarnámi og einni staðlotu. Kynningarfundur fyrir námskeiðið verður mánudaginn 12. septem­ ber kl. 12­12.30 og verður honum streymt á netinu. Skráning er hafin á FB síðu verkefnisins sem heitir: Heldurðu þræði. mm Heilsugæslan í Borgarnesi er ein elsta heilsugæsla landsins og er undirstofnun hjá Heilbrigð­ isstofnun Vesturlands (HVE). Staðan á heilsugæslunni hefur verið mikið til umræðu undanfarin ár. Aðbúnaður hefur ekki þótt nægilega góður og mannekla hefur skapað sérstakar aðstæður sem bitnað hafa á bæði starfsfólki og íbúum. Svæðið sem heilsugæslan sinnir er mjög víðfeðmt, en mikið er um dulda búsetu á svæðinu vegna fjölda sumarhúsa í Borgar­ firði. Húsið, sem heilsugæslan er í, hefur fengið takmarkað viðhald síðustu ár, en ítrekað hefur verið kallað eftir úrbótum. Sem íbúi á svæðinu og notandi heilsugæslunnar hefur þetta ekki farið framhjá mér og hef ég mik­ inn áhuga á að finna lausn á þeim vandamálum sem komið hafa upp. Í sumar kom í huga mér hvort hægt væri að nýta þær byggingar sem fyrirhugað er að byggja á sama reit og heilsugæslan stendur á. Þar á að byggja hús sem munu hýsa íbúðir fyrir eldri borgara á vegum Brákarhlíðar og nemendagarða Menntaskóla Borgarfjarðar. Velta má fyrir sér hvort við séum með óvenju gott tækifæri til samvinnu vegna þeirra áforma. Ef hægt væri að nýta rými í þeim byggingum til þess að hýsa heilsugæsluna á meðan húsnæði heilsugæslunnar yrði gert upp þá þyrfti starfsemi heilsugæslunnar ekki að stöðvast á meðan framkvæmdir eiga sér stað. Með því að færa heilsugæsl­ una í heild í takmarkaðan tíma væri hægt að fara í allar þær fram­ kvæmdir sem nauðsynlegt er að ráðast í, sem og að gera heilsugæsl­ una okkar nútímalegri og að betri vinnuaðstöðu á styttri tíma. Áform um að byggja á þessum reit hafa verið í gangi í töluverðan tíma. Ef farið væri í undirbún­ ing á flutningi heilsugæslunnar núna gæti kostnaðaráætlun og hönnun á heilsugæslunni verið til­ búin þegar framkvæmdum lýkur á nýbyggingu Brákarhlíðar og MB. Því væri hægt að innrétta rými í nýbyggingunni eins og hent­ aði heilsugæslunni. Þegar fram­ kvæmdum á heilsugæslunni er lokið og hún flutt til baka væri hægt að breyta rými nýbyggingar­ innar í það sem upphaflega stóð til og þar með klára það hús. Í sumar hef ég rætt við starfsfólk og stjórnendur hjá HVE, Brák­ arhlíð, sveitarstjórnarfulltrúa, íbúa og aðra, til þess að kanna vilja og áhuga á þessu. Hugmyndin er þó ennþá einungis á byrjunarstigi enda augljóst að margir þurfa að koma að verkefninu og því mik­ ilvægt að vilji sé til þess að fara í framkvæmdirnar. Mögulega er til hentugri leið ­ en svona tækifæri eru ekki oft í boði. Því er mikil­ vægt að skoða þennan kost alvar­ lega því þörfin á að bæta stöðuna á heilsugæslunni í Borgarnesi er mikil. Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir Höf. er alþingismaður Fram- sóknarflokks í NV kjördæmi. Tækifæri fyrir húsnæði HVE í Borgarnesi Nýsköpunarnámskeið fyrir frumkvöðla í textíl

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.