Skessuhorn


Skessuhorn - 07.09.2022, Blaðsíða 5

Skessuhorn - 07.09.2022, Blaðsíða 5
MIÐVIKUDAGUR 7. SEPTEMBER 2022 5 Heilbrigðisstofnun Vesturlands hefur sent frá sér tilkynningu um erfiða tíma í læknamönnun á Heilsugæslunni í Borgarnesi. Þar segir að vegna skorts á læknum þar hafi þurft að forgangsraða þjónustu undanfarið eða frá því læknir lét af störfum í lok júlí. Svo segir í tilkynn­ ingunni: „Nú hafa bæst við óvænt forföll í september sem veldur því að að þurft hefur að manna lækna­ stöður frá degi til dags. Von er á lækni til fastra starfa 15. september n.k. en ljóst að áfram horfum við fram á erfiða tíma varðandi lækna­ mönnun. Síðustu vikuna hefur náðst að halda upp lágmarkslæknisþjón­ ustu með einum lækni og á þessari stundu er útlit fyrir að það verði einn læknir hverju sinni fram til 15. september en unnið að því að reyna að fá fleiri.“ Á meðan þetta ástand varir þarf að forgangsraða verkefnum. Áfram líkt og áður mun starfsfólk heilsugæslunnar ávallt sinna þeirri bráðaþjónustu sem ekki getur beðið annarra úrlausna. „Eins og staðan er núna er ekki hægt að bóka tíma eða símatíma hjá lækni en hjúkrunarfræðingar munu taka á móti aðkallandi málum og leysa eftir bestu getu eins og aðstæður leyfa.“ gj Það viðraði vel síðastliðinn sunnu­ dagsmorgun fyrir listamennina á Akranesi sem nú skreyta veggi bygginga. Nafnarnir Bjarni Skúli Ketilsson og Bjarni Þór Bjarna­ son voru báðir á fullu við verk sín, langt komnir með þau. Sífellt voru bæjar búar að gefa sig á tal við þá félaga og ekki alltaf sem verkin unnust í samfellu, enda eru þeir báðir ræðnir og kurteisir menn. Baski málaði verk sitt á gafl gömlu mjölgeymslu Brims niður við höfn og lauk við verkið í gær. Bjarni Þór málar hins vegar á norður­ gafl gamla Landsbankahússins við Akratorg. Báðir eru þeir í verkum sínum með skírskotun til atvinnu­ lífs liðinna tíma, en verkin eru engu að síður afar ólík. Baski seg­ ist sækja innblástur til kirkjuglugga í Flórens á Ítalíu, en hann málaði mikið í þessum stíl í kringum 2005. Bjarni Þór tekur fjallahringinn, líkt og horft sé í gegnum húsið, en á myndinni eru ýmis þekkt kennileiti á Akranesi, svo sem kútterinn, skip úr smiðju Þ&E, vitinn, Akranes­ kirkja og fleira sem margir þekkja. Verk þeirra nafna munu ásamt fleiri útilistaverkum prýða bæinn sem hluti af sérstöku vegglistarátaki sem nú er í gangi og sagt hefur verið frá í Skessuhorni. Þeirra á meðal er Edda Karólína Ævarsdóttir sem nú er byrjuð að mála á gafl íþrótta­ hússins við Vesturgötu. mm Listamenn í útivinnu Óvænt forföll valda vanda á heilsugæslustöðinni í Borgarnesi Heilsugæslustöð HVE í Borgarnesi. Garða- og Saurbæjarprestakall Dagsetning Garða- og Saurbæjar- prestakall SK ES SU H O R N 2 02 2 Garða- og Saurbæjarprestakall Dagsetning Laugardagur 10. september 2022 Alþjóða forvarnardagur sjálfsvíga: Minningarstund í Akraneskirkju kl. 20. Ávarp, hugleiðing og bæn ásamt ljúfum tónum. Kveikt á kertum í minningu þeirra sem fallið hafa fyrir eigin hendi. Mjöll Barkardóttir aðstandandi segir frá reynslu sinni. Organisti Hilmar Örn Agnarsson. Prestar kirkjunnar leiða samveruna. Kaffisopi og spjall í Vinaminni eftir stundina. Sunnudagur 11. september Akr neskirkja Fjölskyldumessa kl. 11 – upphaf sunnudagskólans Miðvikudagur 14. september Bænastund í Akraneskirkju kl. 12.10 Opið hús kl. 13.00 Bjarni Þór Bjarnason við verk í vinnslu á gafli gamla Landsbankahússins. Ljósm. mm Fullbúið listaverk Baska á gafli mjölgeymslunnar. Ljósm. vaks Í gærmorgun áritaði Baski verk sitt og þar með var því lokið. Ljósm. vaks. Á gafli íþróttahússins við Vesturgötu er nú verk í vinnslu. Þar er á ferðinni lista­ konan Edda Karólína Ævarsdóttir. Ljósm. vaks

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.