Skessuhorn - 07.09.2022, Blaðsíða 18
MIÐVIKUDAGUR 7. SEPTEMBER 202218
Hausthátíð Kaupfélags Borgfirðinga var haldin í blíð
skaparveðri síðastliðinn laugardag. Boðið var upp á
pylsur og drykki og góðan vöruafslátt. Söluaðilar voru
með kynningar og síðast en ekki síst var haldið líf
legt uppboð á athyglisverðum vörum. Góð stemning
var á svæðinu og gestir nutu stakrar veðurblíðu í boði
septem bermánaðar.
gj
Hausthátíð Kaupfélagsins í sólinni
Fólk naut þess hvað veðrið var gott á haustdegi.
Anna Helgadóttir, Hanna S. Kjartansdóttir og Agnes Óskarsdóttir ræddu málin
inni á lagernum.
Það var létt yfir þessu fólki; Sigmundi Halldórssyni, Guðmundi Þorgilssyni, Lilju
Jóhannsdóttur og Guðrúnu Maríu Harðardóttur.
Eitt af því sem vakti lukku á uppboðinu var regntjald fyrir einn sem hér sést hamið
í höndum Helgu Rósu Pálsdóttur verslunarstjóra. Rifist var um tjaldið sem einn
hreppti að lokum.
Ingólfur Andrésson og Konráð Andrésson höfðu um margt
að spjalla, mögulega tengt Ströndunum.
Vigfús Friðriksson fyrrum starfsmaður KB fór mikinn við
stjórnun uppboðsins; komst vel að orði og átti skemmtilegt
innlegg í daginn.
Undirbúningur hátíðarinnar var strangur og hér sjást þau
Helga Rósa Pálsdóttir verslunarstjóri og Vigfús Friðriksson á
þönum með hljóðkerfið sem notað var á uppboðinu.
Snorri Jóhannesson og Sigurður Oddsson tylltu sér í kaffihornið.
Glæsifákur Snorra Jóhannessonar prýddi svæðið.
Lukkuhjólið vakti lukku hvort sem því var snúið eða ekki.
Ein verðlaunin voru nefnilega knús frá Þresti Reynissyni
sem skráður er kúanæringarsali í símaskrána og er dygg
ur starfsmaður KB.
Páll Lind Egilsson og Steinar Ragnarsson nýttu sér hið fræga kaffihorn Kaupfé
lagsins, staðinn þar sem sögurnar fá gjarnan vængi.
Þær Brynja Gná Bergmann Heiðarsdóttir og Delia Claes
afgreiddu fjölda vara til viðskiptavina þennan dag.