Skessuhorn - 07.09.2022, Blaðsíða 10
MIÐVIKUDAGUR 7. SEPTEMBER 202210
Á miðvikudaginn í liðinni viku
setti Steinunn Árnadóttir hesta
kona í Borgarnesi færslu á Face
book þar sem hún vakti athygli á
illri meðferð hrossa í hesthúsi í
hverfinu við Vindás í Borgarnesi.
Benti hún á að um vanfóðrun væri
greinilega að ræða auk þess sem
hrossin hefðu ekki verið í haga
í sumar og væru að mestu leyti
lokuð inni í húsi. Þar á meðal væri
hryssa með folald. Steinunn birti
mynd af mjóslegnu tryppi í gerði
við nágrannahesthús sitt. Þar sést
greinilega móta fyrir rifbeinum
dýrsins og það hengir haus.
Málið vakti mikil og sterk við
brögð samdægurs, bæði almenn
ings og fjölmiðla. Eftir því sem
næst verður komist hafa ítrekaðar
tilkynningar fólks til eftirlitsaðila
um meinta vanrækslu þarna ekki
orðið til þess að gripið væri inn í
dýrahald viðkomandi aðila, sem
einnig halda skepnur víðar í hér
aðinu. Matvælastofnun er harð
lega gagnrýnd.
Á fimmtudag virðist sem skepn
urnar hafi verið fluttar af svæðinu
nóttina áður og er málið væntan
lega í höndum lögreglu og Mat
vælastofnunar. Í Ríkisútvarpinu þá
um morguninn var rætt við Hönnu
Ólínu Þorsteinsdóttur, forstjóra
MAST, sem sagði að árlega bær
ust fjöldi tilkynninga um illa með
ferð á dýrum, sérlega þó á hestum
og hundum, enda væru þau dýr hvað
sýnilegust í samfélaginu. Hanna
Ólína gaf ekkert uppi um stöðuna
á þessu tiltekna máli enda myndi
hún ekki fjalla um einstök mál í fjöl
miðlum. En það er ljóst að þetta mál
hefur vakið mikla hneykslan og að
stofnunin liggur undir ámæli fyrir
að hafa ekki gripið með afgerandi
hætti inn í það á fyrri stigum í sumar,
þegar athygli var vakin á ástandinu.
Borið er við andmælarétti eigenda,
sem virðist í þessu tilfelli alltof mik
ill á kostnað dýravelferðar. Lesa
má sérstakt svar Matvælastofn
unar í annarri frétt hér í blaðinu.
Úttekt á eftirliti
með velferð dýra
Ríkisendurskoðun ákvað fimmtu
daginn 1. september að hefja frum
kvæðisúttekt á eftirliti Mat
vælastofnunar með velferð dýra
skv. lögum nr. 55/2013. Þetta var
ákveðið daginn eftir að tilkynnt var
opinberlega um meinta illa meðferð
á hrossum í hesthúsi í Borgar nesi.
„Áætlun um afmörkun og fram
kvæmd úttektarinnar liggur ekki
fyrir en slík áætlun mun verða
endurskoðuð eftir því sem úttekt
inni vindur fram. Í því sambandi
er ítrekað að skv. 3. mgr. 1. gr. laga
nr. 46/2016 um ríkisendurskoðanda
og endurskoðun ríkisreikninga er
ríkisendurskoðandi sjálfstæður og
engum háður í störfum sínum og
ákveður sjálfur hvernig hann sinnir
hlutverki sínu samkvæmt lögunum.
Niðurstaða úttektarinnar verður
birt í opinberri skýrslu til Alþingis,“
segir í tilkynningu frá Ríkisendur
skoðun. gj
Vannærð hross í hesthúsahverfi í Borgarnesi
Myndin sem Steinunn Árnadóttir birti á Facebook síðu sinni sl. miðvikudag af
skinhoruðu tryppi við hesthús í Borgarnesi.
Árni B Bragason á Þorgautsstöðum II leitar fjár. Móra dregin í Sámsstaðadilkinn þar sem Þuríður bóndi var hliðvörður. Féð var almennt í góðum holdum, en menn höfðu á orði að dilkarnir
hafi oft verið stærri, einkum í fyrrasumar.
Systurnar Guðrún og Agnes Guðmundsdætur á Síðumúlaveggjum. Guðmundur á Sámsstöðum og Kjartan á Síðumúlaveggjum með
afkvæmin sín.
Sigvaldi í Hægindi og Jón á Kópareykjum skoða hér ofan í feldinn á
svörtu hrútlambi frá Hofsstöðum sem er undan sæðingarstöðvar
hrúti sem notaður er til að rækta upp ullargæði.
Guðjón á Síðumúlaveggjum búinn að handsama hrútlamb úr eigu
sinni.
Þorsteinn Erlendsson er hér ásamt fleirum í Kaldárbakkarétt.
Ljósm. aðsend.
Horft yfir Kaldárbakkarétt. Ljósm. Guðmundur Símonarson.
Það viðraði vel fyrir bændur og
bú smala þegar Síðufjallið var
smalað á laugardaginn og fé rekið
til réttar á Nesmel í Hvítársíðu.
Þægileg gola og sextán stiga hiti
gerði daginn fallegan í alla staði.
Síðufjallið er einkum smalað til að
létta á þeim fjárfjölda sem annars
væri rekinn til Þverárréttar um
næstu helgi. Féð í réttinni var að
stærstum hluta frá þremur bæjum;
Sámsstöðum og Bjarnastöðum í
Hvítársíðu og Ásbjarnarstöðum í
Stafholtstungum. Réttarhaldið tók
ekki langan tíma. Skemmtileg til
breyting var að ísbíllinn renndi í
hlað um svipað leyti og réttin var að
byrja; smölum; bændum og búaliði
þeirra til ómældrar ánægju. Allir
fengu íspinna og jafnvel fleiri en
einn því klára þurfti úr kössunum
því frystir var ekki á staðnum.
Til viðbótar eru einnig tvær ljós
myndir úr Kaldárbakkarétt í Kol
beinsstaðahrepp, en þar var réttað á
sunnudag, einnig í blíðskaparveðri.
Skessuhorn hvetur bændur og búalið
til að senda Skessuhorni myndir úr
göngum og réttum, á netfangið
skessuhorn@skessuhorn.is mm
Fyrstu réttir haustsins afstaðnar